25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. — Með tilvísun til yfirlýsingar hæstv. forsrh. um það, að hæstv. ríkisstj. muni svo fljótt sem auðið er hefja umr. við stj. Bandaríkjanna um fullnægingu og niðurfellingu herverndarsáttmálans frá 1941, en í þeim samningi lofar stj. Bandaríkjanna að tryggja sjálfstæði Íslands og fara á brott héðan með herinn, og með því að hæstv. forsrh. hefur lofað að leggja fyrir Alþ. næst þegar það kemur saman skýrslu um þetta mál, segi ég nei við þessari till.