20.09.1946
Sameinað þing: 7. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
11. mál, niðurfelling herverndarsamningsins frá 1941 o.fl.
Hermann Jónasson:
Herra forseti. — Þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, er eins konar framhald af herverndarsáttmálanum, sem gerður var við Bandaríkin árið 1941. Herverndarsamningurinn, sem þá var gerður, er öllum þingheimi kunnur, og er því engin þörf á að rekja hann hér, en út af ummælum, sem hér hafa fallið, vil ég aðeins segja það, að sá samningur var í sjálfu sér enginn nauðungarsamningur. Við vissum vel, hvernig á stóð fyrir engilsaxnesku þjóðunum árið 1941, þegar þessi sáttmáli var gerður, og við vildum — eins og oft hafa verið látin orð falla um —standa við þeirra hlið, þótt við með þessum sáttmála tækjum á okkur verulega áhættu. Ég álít, að þessi sáttmáli, sem gerður var árið 1941, hafi sýnt og sýni enn vilja íslenzku þjóðarinnar og viðhorf gagnvart hinum engilsaxnesku þjóðum, og ég álít rétt að taka þetta fram vegna þess að ég tel, að sá sáttmáli, sem nú kann að verða gerður milli þessara sömu þjóða, verði að byggjast á sama skilningi og sama hugarfari. Þegar samningurinn 1941 var gerður, var reynt að vanda til hans eftir föngum, og satt að segja, þá sé ég tæpast, þótt það ætti að gera þennan sáttmála nú í dag, hvernig orðalag hans um einstök atriði, sem við lögðum sérstaka áherzlu á, geti verið öllu skýrara en það er. Ég vildi satt að segja heyra það, og ég býst ekki við, að það komi nokkurs staðar fram, að orðalag sáttmálans hefði getað verið öllu ljósara um brottflutning herliðsins heldur en það er í sjálfum sáttmálanum; það stendur í 1. gr. hans, og er þar með strax undirstrikað, á hvað mest áherzla er lögð í sáttmálanum, „að herlið Bandaríkjanna hverfi héðan undireins og núverandi ófriði er lokið.“ Þetta bréf var af íslenzku ríkisstj. ritað forseta Bandaríkjanna og síðan staðfest af honum með því að taka nákvæmlega upp orðrétt þau skilyrði, sem sett voru af hálfu Íslendinga. Það hafa verið haldin hátíðleg lok ófriðarins í hinum engilsaxnesku löndum, og ég held, að samkv. íslenzkum og enskum málvenjum geti það ekki verið neinum vafa undirorpið, að þessum samningi var lokið við lok stríðsins, sem við vitum, að nú er ár síðan lauk. Ég fyrir mitt leyti er því ekki í vafa um það, að þessum samningi er lokið og samkv. skýlausu orðalagi samningsins á Bandaríkjaherinn að hverfa héðan, enda mun það rétt vera, að í stunum tilfellum hefur það verið borið fram af hálfu Bandaríkjanna, að það eitt, að ekki hefur komið fram krafa um það frá íslenzku ríkisstj., að svo yrði gert, sé ástæðan fyrir því, að þau hafi ekki flutt her sinn í burt. Ég verð því að segja það, að eitt af því fyrsta, sem ég felldi mig illa við í því nýja samningsuppkasti, sem hér hefur verið lagt fyrir hæstv. Alþ., er 1. gr. þess, þar sem ríkisstj. Bandaríkjanna og ríkisstj. Íslands fallast á, að herverndarsamningurinn, sem gerður var 1. júlí 1941, skuli niður falla, því að um þetta þarf engan samning. Væri eðlilegra að orða þetta þannig, „að um leið og sáttmálinn er úr gildi fallinn“ o.s.frv., en inn á þetta atriði mun ég fara nánar síðar. Ég vil taka það fram, áður en ég kem að þessu atriði, að ég hef aldrei verið í neinum vafa um það, að herir engilsaxnesku þjóðanna mundu hverfa héðan, þegar um það yrði talað milli þjóðanna, og þó að þessi dráttur hafi á orðið af hálfu Bandaríkjanna, sem ef til vill er af ástæðum, sem nú hefur verið um rætt hér, þar sem þeim er nauðsyn á að hafa hér herlið til þess að halda opinni leið til Þýzkalands, þó hef ég aldrei efazt um, að báðar þjóðirnar mundu standa við sína samninga, eins og Englendingar hafa nú gert.
Mér virðist satt að segja, að þegar taka á afstöðu til samnings eins og þessa eða samningstill., þá þurfi eitt að liggja alveg ljóst fyrir hér á Alþ., og það er: Hvaða stefnu ætlar hæstv. Alþ. að taka í flugmálum þjóðarinnar? Flugmálin eru eitt af stærstu málum okkar og þau, sem ekki má kasta til höndunum, og mér virðist þess vegna, að ef gerður er samningur eins og þessi, þá verðum við fyrst og fremst að leitast við að gera hann út frá íslenzkum sjónarmiðum. Við alþm. hljótum að gera kröfu til þess, að fyrir okkur verði lagt, hvað það kostar að koma flugvellinum hér við Rvík í lag, hvað það kostar að reka hann og hvaða tekjur verði af honum. Við hljótum líka að spyrja um það, hvað muni kosta að gera við flugvöllinn við Keflavík, þannig að hann sé nothæfur fyrir millilandaflug, hvað rekstur hans kostar og hvaða tekjur hann muni gefa. Það er ómögulegt fyrir okkur að komast hjá því í sambandi við þetta mál að fá að vita um þessi atriði, og það er raunverulega einn megingrundvöllur þess, að við gerum okkur ljóst, hvort við munum þurfa að nota báða flugvellina, eða hvorn þeirra heldur, ef það yrði ekkí nema annar. É g álít, að þetta þyrfti að liggja hér fyrir hæstv. Alþ., og ég geri ráð fyrir, að hjá hæstv. ríkisstj. séu til nákvæmar áætlanir um þetta, sem ég hef nú nefnt, og greinargerð fyrir því, hvaða stefna hefur verið ákveðin í flugmálum okkar að þessu leyti. Ég skal ekki fara inn á það hér, hvaða stefnu er heppilegt að velja, því að það þurfa fyrst og fremst að liggja fyrir þessi gögn, sem ég minntist á, og okkur þm. hefur verið það ljóst fyrir löngu síðan, að þessi gögn þurfa að liggja fyrir, og að stefnu í þessum málum þarf að ákveða, því að hv. utanrmn. hefur tvívegis lagt fyrir hæstv. ríkisstj. að afla þeirra. Þegar þessi atriði liggja fyrir og við förum að athuga þann samning, sem hér liggur fyrir, þá hljótum við fyrst og fremst að athuga, að hve miklu leyti hann samrýmist íslenzkum hagsmunum og þeirri stefnu, sem við kunnum að taka í flugmálum okkar. Ég segi ekki þar með, að það sé útilokað, að við gerum samning við Bandaríkin eða aðrar þjóðir um lendingarrétt á flugvellinum við Keflavík, jafnvel þótt það sé að einhverju leyti úr leið fyrir okkar beinu hagsmuni, en vissulega hljótum við samt sem áður að leggja þetta sjónarmið fyrst og fremst til grundvallar og nauðsynlegrar athugunar, um leið og þetta samningsuppkast er athugað og krufið til mergjar. En hvað sem þessu líður og þegar þetta samningsuppkast, sem hér liggur fyrir, er athugað, eftir að sá sáttmáli, sem við gerðum við Bandaríkin um hervernd, er niður fallinn, þá verðum við einnig jafnhliða og út af fyrir sig að athuga, hvernig við viljum hafa þann samning, sem við kunnum að gera við Bandaríkin eða aðrar þjóðir um lendingarréttindi á flugvöllum okkar. Í því sambandi vil ég segja það, að ég álít, að við eigum að leggja okkur fram til þess að finna möguleika til þess að fullnægja þörfum annarra þjóða, þ. á m. Bandaríkjanna, en því aðeins, að það sé í samræmi við það, sem eru okkar eigin hagsmunir og öryggi.
Mér finnst, að þetta sé í lausum dráttum sá grundvöllur, sem íslenzki málstaðurinn á að standa á, sá málstaður, sem jafnframt er velviljaður þeirri þjóð, sem fer fram á, að hennar þörfum verði fullnægt þarna á flugvellinum. Ég sé ekki í raun og sannleika, að hægt sé að færa rök fyrir því, að svona fyrirkomulag fullnægi ekki á allan hátt þörfum Bandaríkjanna um flug að vestan til meginlands Evrópu. Á þessu stigi málsins skal ég ekkert um það segja og ekki gera neinar till. um það, hvernig samningunum yrði komið í þetta horf. Það er vitanlega hugsanlegt, að teknir yrðu upp samningar í framhaldi af þessum uppástungum Bandaríkjanna og skipuð yrði n. frá báðum þjóðunum, sem reyndi að finna þann grundvöll, sem báðar þjóðirnar gætu sætt sig við. En það er jafnframt hugsanlegt að koma fram með brtt. við þetta samningsuppkast. Og þær brtt. hljóðuðu þá á þá leið, sem ég hef bent hér á, og yrðu jafnframt till. frá okkar hendi. En hitt vil ég segja að lokum í sambandi við þetta mál, að ef málsmeðferð öll fram til þessa hefur verið þannig, að málið sé komið í svo þröngar skorður, að ekki sé nú um annað að ræða en segja já eða nei við því uppkasti, sem hér liggur fyrir, þá tel ég málið mjög illa komið. Ég tel það mjög illa komið vegna þess, að það er ekki óeðlilegt, ef stj. eða stór hluti hennar hefur lofað að mæla með samningsuppkasti sem þessu, að þá sé sú þjóð, sem hlut á að máli, í þessu tilfelli Bandaríkin, sem vilja komast eins langt í samningum sínum og þau geta, búin að vera of lengi í þeirri trú, að mögulegt sé að koma samningunum á eins og þeir liggja fyrir. Ég harma þetta sérstaklega vegna þess, að ég er ekki í neinum vafa um það, að ef málið er komið í þennan farveg, þá gefur það ranga mynd af viðhorfi Alþ. gagnvart hinni bandarísku þjóð. Í raun og veru er þinginu settur ákaflega takmarkaður bás um það að láta í ljós skoðun sína á málinu. Ég fyrir mitt leyti fullyrði það, og sú fullyrðing er ekki byggð á öðru en þeirri þekkingu, sem ég tel mig hafa á íslenzku þjóðinni, og sú þekking er takmörkuð eins og þekking okkar á öllum hlutum er, að í raun og veru sé það vilji íslenzku þjóðarinnar að verða við nauðsynlegum kröfum Bandaríkjanna um það að geta notað flugvöllinn í Keflavík. En það er jafnskýlaust af Íslands hálfu, að það vill ekki fullnægja þessum þörfum, ef til þess þarf að koma, að við þurfum að gera skuldbindingar fram í tímann, sem okkur er ekki samboðið og áreiðanlega er óeðlilegt af Íslands hálfu í þessu sambandi. Íslenzka þjóðin gerir kröfu til þess, samningurinn byggist á gagnkvæmri vináttu og tiltrú milli þessara þjóða án skuldbindinga langt fram í tímann. Og ég er sannfærður um, að í viðræðum við engilsaxnesku þjóðirnar væri hægt og auðvelt að gera Bandaríkjunum þetta skiljanlegt. Þetta er sterkasti samningsgrundvöllurinn, sem þau geta fengið við okkur Íslendinga, og þeim á að vera áhættulaust að treysta því eftir reynslunni af herverndarsamningnum. Einn yfirmaður hersins lét þau ummæli falla um það, að það væri einsdæmi í veröldinni, að ekki hefði verið skorinn í sundur einn einasti símaþráður til skemmda fyrir herinn. Við tókum á okkur mikla áhættu þá vegna þess, að við vildum hafa vináttu og velvilja þessarar þjóðar. Og hinn sami velvilji er enn ríkjandi til Bandaríkjanna hjá meiri hluta þjóðarinnar, og engar líkur eru til þess að sá meiri hl. raskist á næstu sex og hálfu ári. Ég álít þess vegna og vona, að samningarnir séu ekki með þessu uppkasti komnir inn í þann farveg, að það valdi óbætanlegu tjóni í viðskiptunum við þessa þjóð, því að það mundi líka gefa alranga mynd af því viðhorfi, sem við höfum gagnvart Bandaríkjaþjóðinni. Þess vegna álít ég, að koma eigi þessu máli út úr þeim farvegi, sem því hefur verið markaður með þessum samningi, og það verður að vera verk Alþ. að finna leið til þess, að, svo megi verða.