21.09.1946
Sameinað þing: 8. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

11. mál, niðurfelling herverndarsamningsins frá 1941 o.fl.

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. — Þegar Bandaríkin fóru 1. okt. s.l. fram á herstöðvar hér á landi til langs tíma á þrem stöðum, í Keflavík, Reykjavík og Hvalfirði, þá vakti sú málaleitun ólgu og andstöðu íslenzku þjóðarinnar. Það var fjöldi af fjölmennustu félagssamtökum landsmanna, sem reis upp og mótmælti. Ástæðurnar fyrir þeirri ólgu og andstöðu, sem þetta vakti, voru augljósar. Ef hið erlenda stórveldi hefði fengið herstöðvar eins og það fór fram a, hefði það haft víss landssvæði af íslenzku landi á sínu valdi og undir sínum yfirráðum. Hersvæðin og þeir útlendu herflokkar, sem hefðu haft gæzlu stöðvanna á hendi, hefðu orðið utan við landslög og rétt á Íslandi. Íslenzk yfirvöld hefðu engum lögum getað þar fram komið, íslenzkir dómstólar ekki dæmt mál þessara manna, íslenzkir borgarar, sem teldu á hlut sinn gengið af hálfu hersins, ekki náð rétti sínum nema eftir milliríkjaleiðum. Íslendingar hefðu ekki verið frjálsir ferða sinna um sitt eigið land, heldur þurft til þess leyfi annarra. Um áhrifin á þjóðerni okkar, sjálfsvitund, álit okkar út á við, þarf ekki heldur að fara mörgum orðum. Í augum umheimsins hefðum við tæplega talizt til fullvalda þjóða, þegar þrjár herstöðvar væru í landinu, og yfirráð okkar yfir því þar með skert, jafnvel með herstöð í hjarta okkar eigin höfuðborgar. Málaleitunin um herstöðvar af hálfu Bandaríkjanna var gersamlega ósamræmanleg sjálfstæði Íslands. Og mín skoðun er sú, að til lítils hafi þá verið skilnaðurinn við Dani og stofnun lýðveldisins, ef skömmu síðar hefði átt að gera slíka skerðingu á sjálfstæði okkar.

En íslenzka þjóðin reis upp, — að vísu ekki sem einn maður, en yfirgnæfandi hluti hennar lýsti sig andvígan þessari málaleitun. Og í alþingiskosningunum var þetta staðfest. Þær raddir og óskir hér á landi, sem vildu herstöðvar, hafa verið kveðnar niður í eitt skipti fyrir öll. Málstaður þjóðarinnar sigraði. Þessi ákvörðun íslenzku þjóðarinnar stendur óhögguð, að leyfa engu erlendu ríki herstöðvar í landi okkar. Á Alþ., sem haldið .var í júlímánuði s.l., var skýrt tekið fram í nál. utanrmn., sem staðfest var af Alþ., að við vildum engar erlendar herstöðvar hafa í landinu, hvorki á vegum erlends stórveldis né heldur þjóðabandalagsins. Bandaríkjastjórn, sem hafði borið fram þessa ósk, ákvað, eftir að hafa heyrt svör íslenzku stjórnarinnar og þjóðarinnar, að láta málið falla niður í bili, eins og það var orðað.

En herstöðvamálið var ekki það eina, sem íslenzka þjóðin bar áhyggjur út af um þessar mundir. Það var ekki síður hitt, hvenær Bandaríkjaherinn, sem hér sat samkv. herverndarsáttmálanum frá 1941, færi af landi brott.

Á Alþ. í júlí s.l. gaf hæstv. forsrh. yfirlýsingu um, að hann mundi hef ja víðræður við stjórnarvöld Bandaríkjanna um niðurfellingu og fullnægingu herverndarsáttmálans. Þegar forsrh. hóf þessar víðræður, lá tvennt fyrir. Í fyrsta lagi höfðu Bandaríkin ekki fallið frá ósk sinni um herstöðvar á Íslandi, heldur lýst yfir, að málið væri látið falla niður í bili. Enginn vissi, hvenær þau tækju málið upp að nýju. Í öðru lagi var alveg óvíst, hvenær Bandaríkin ætluðu að fara brott með herlið sitt. Eins og hæstv. forsrh. tók fram, hafa Bandaríkin haldið fram öðrum skilningi á vissum ákvæðum í samningnum en við. Skyldu þeirra til að fara brott með herliðið strax og ófriðnum er lokið hafa þeir túlkað eins og hæstv. forsrh. hefur lýst. Samkv. þeirra skilningi er ófriðarástandi ekki lokið fyrr en gerðir hafa verið friðarsamningar eða þing Bandaríkjamanna hefur lýst yfir, að ófriðnum sé lokið, og tekið hervaldið af forsetanum, en það mun hann hafa enn. Þegar víðræður hófust, var þessi ólíki skilningur fyrir hendi og óvíst, hve lengi þyrfti að bíða þess, að Bandaríkjaher færi úr landi. Og í þriðja lagi lá fyrir, að Bandaríkin töldu sér brýna nauðsyn á lendingarrétti hér á landi fyrir herflugvélar, vegna hernámsins í Þýzkalandi.

Þegar á þetta er litið, má það teljast sérstakt afrek hjá hæstv. forsrh. að hafa náð þeim árangri, sem felst í þessu samningsuppkasti. Árangurinn er fyrst og fremst að þakka ötulleik hans og lagni. Með þessu uppkasti er fullnægt meginatriðum í margendurteknum óskum okkar. Í fyrsta lagi hafa Bandaríkin fallið frá herstöðvakröfum sínum, og í öðru lagi flyzt allur her burt af íslenzkri grund. Ekki sízt ætti þessi árangur að gleðja flm. till. á þskj. 13, um brottflutning Bandaríkjahers, þm. Sósfl., þar sem sú till. er nú óþörf orðin.

Ég skal þá víkja að samningi þeim, er hér liggur fyrir, og þeirri gagnrýni, er hann hefur sætt. Með þeim hártogunum og rangfærslu á orðalagi samningsins, sem hér hafa verið hafðar í frammi, er tilgangurinn vitaskuld sá, að menn missi sjónar á þeim aðalatriðum málsins, að Ísland losni við hið erlenda herlið, að íslenzk lög nái til allra manna, innlendra og útlendra, sem á Íslandi dveljast, að Ísland fær nú aftur yfirráð yfir öllu landi sínu, og að herstöðva kröfurnar eru niður fallnar. Eitt meginatriðið í gagnrýni hæstv. menntmrh., Brynjólfs Bjarnasonar, og hv. þm. Str., Hermanns Jónassonar, var það, að öll réttindi Bandaríkjamanna væru skýrt orðuð í samningnum, en að láðst hefði að kveða skýrt á um réttindi Íslendinga. Þannig sé ekkert á það minnzt, að þeir erlendu menn, sem hér kynnu að dveljast samkv. samningnum, skuli heyra undir íslenzk lög, dómsvald og tollgæzlu. Ég verð að segja, að þetta er lítt afsakanlegur misskilningur á þeim grundvelli, sem samningurinn er byggður á. Svo virðist sem þessir hv. þm. hafi gleymt því, að Ísland er fullvalda ríki. En það er viðurkennt um allan heim, að af fullveldi ríkis leiðir, að það ræður því eitt, hvaða lög gilda í landi, og að lög þess nái til allra manna, sem í landinu eru, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir borgarar. Af fullveldi Íslands leiðir, að íslenzk lög, dómsvald og lögsaga ríkir yfir öllu íslenzku landi og nær til allra manna, sem í landinu dveljast, án þess að slíkt þurfi að tryggja með samningi við Bandaríkin. Þær takmarkanir, sem fólust í samningnum frá 1941, falla nú niður. Hæstv. menntmrh. og hv. þm. Str. segja, að þetta þurfi að taka fram í samningnum. É g tel víst, að Bandaríkin hefðu ekkert á móti því, að slík ákvæði væru tekin inn. En mér virðist það mjög óviðeigandi frá íslenzku sjónarmiði. Bandaríkin fá hér engin réttindi önnur en þau, sem sérstaklega eru fram tekin í þessum samningi, og bandarískir borgarar lúta í einu og öllu íslenzkum lögum, nemi annað sé fram tekið í samningnum, og það er gert varðandi skattgreiðslu þeirra.

Það er leitt, að þessir tveir menn, núv. og fyrrv. ráðh., skuli gera sig seka um slíka glapsýni. Þeir virðast líta á Ísland sem ósjálfstæða nýlendu, en ekki sem fullvalda lýðveldi. Ef fylgja ætti þessum hugsanahætti út í yztu æsar, hefði 1. gr. samningsins átt að hljóða svo: „Stjórn Bandaríkjanna fellst á, að á Íslandi skuli gilda íslenzk lög.“ Og 2. gr.: „Stjórn Bandaríkjanna fellst á, að í málum manna á Íslandi skuli íslenzkir dómstólar dæma.“ Og þá hefði einnig mátt ákveða í 3. gr.: „Stjórn Bandaríkjanna samþykkir, að Alþ. Íslendinga skuli ráða því, hverjir séu ráðherrar á Íslandi.“

Þetta grundvallaratriði ætti að vera mönnum ljóst. Það væri óviðeigandi gagnvart sjálfstæði Íslands, ef upp í þennan samning væri tekið samþykki Bandaríkjanna til þess að Íslenzk lög skyldu ná til Bandaríkjaborgara hér á landi. En um leið og menn átta sig á þessu, er grundvellinum kippt undan meginatriðunum í gagnrýninni á samningsuppkastinu. Af fullveldi Íslands leiðir tvímælalaust, að þeir amerísku starfsmenn, sem samkv. samningnum yrðu á flugvellinum, væru háðir íslenzkri lögsögu, dómsvaldi, tollgæzlu, lögregluvaldi o.s.frv.

Við skulum nú athuga nánar, hvað gerist, ef samningurinn er samþ. og gengur í gildi. Allur herinn fer á brott, og allt landssvæði Íslands kemst undir íslenzk yfirráð: Keflavíkurflugvöllurinn, Hvalfjörður, herbúðirnar í Rvík. Bandaríkjastjórn fer fram á, að bandarískir starfsmenn og sérfræðingar, ekki hermenn, starfi við flugvöllinn. Enginn þeirra getur verið hér, nema með landvistarleyfi íslenzka dómsmrh. Hann getur að sjálfsögðu ekki sagt: „Ég veiti engum landvistarleyfi,“ en hann getur neitað tilteknum mönnum, ef honum sýnist svo, og ef tala hinna erlendu starfsmanna er komin upp í það, sem eðlilegt má teljast, getur hann neitað að veita fleiri mönnum leyfi. Það er því alrangt, þegar hæstv. menntmrh. segir, að Bandaríkin megi hafa allt það starfslið á vellinum, sem þeim þykir nauðsynlegt, mannafla svo að þúsundum skiptir. Ef Íslendingum þykir Bandaríkin óska eftir fleiri starfsmönnum en eðlilegt má teljast, verða Bandaríkin að færa sönnur á það fyrir íslenzkum stjórnarvöldum, að slíkt sé brýn nauðsyn, samkv. samningnum, og fá leyfi þeirra.

Þegar þessir menn taka til starfa á flugvellinum, fá þeir ekki svokallaðan „exterritorial“ rétt, eins og starfsmenn sendisveita eða hermenn þeir, sem nú dveljast hér. Þeir verða að hlýða íslenzkum lögum og fyrirskipunum íslenzku lögreglunnar. Ef þeir brjóta af sér, getur lögreglan tekið þá fasta. Þeir verða leiddir fyrir íslenzka dómstóla og dæmdir af þeim og afplána refsinguna í íslenzku fangelsi, nema þeim sé þegar vísað úr landi. Þeir njóta engra sérréttinda nema þeirra, sem beint eru fram tekin í samningnum, en þau eru, að þessir menn skuli ekki greiða tekjuskatt af þeim tekjum, er þeir fá erlendis frá.

Það er nauðsynlegt að minnast á nokkur einstök atriði samningsins og leiðrétta misskilning, sem fram hefur komið. Fyrst er að nefna 1. gr. samningsins. Hæstv. menntmrh. og hv. þm. Str. telja hana óheppilega, af því að herverndarsamningurinn frá 1941 sé fallinn niður fyrir meira en ári síðan. Þetta er misskilningur. Margar gr. samningsins eru ótímabundnar. Og við Íslendingar höfum alls ekki haldið því fram, að samningurinn í heild væri niður fallinn. En það er ágreiningur milli íslenzku og bandarísku stj. um skilning á 1. gr. herverndarsáttmálans, þ.e.a.s. um það, hvenær herliðið skuli fara á brott. Bandaríkin halda því fram eins og fyrr er getið, að þau hafi enn rétt til að hafa herinn hér í landinu. Við Íslendingar höldum því hins vegar eindregið fram, að herinn hafi átt að fara, þegar ófriðnum lauk eftir okkar skilningi, þ.e. fyrir meira en ári síðan. Hæstv. ráðh. slær því föstu, að skilningur Bandaríkjanna sé fáránlegur. Í augum okkar Íslendinga er skilningur þeirra rangur. En hitt er staðreynd, að þessi ágreiningur er fyrir hendi. Og það er fjarstæða, sem fram hefur verið haldið, að í henni felist viðurkenning af Íslands hendi á því, að skilningur okkar hafi verið rangur. Þvert á móti. Bandaríkin falla með 1. gr. uppkastsins frá því að byggja á sínum skilningi. Gagnrýnin á 1. gr. uppkastsins er því á misskilningi byggð.

Um 3. gr. samningsins vil ég segja þetta: Í mínum augum er gr. óþörf. En á hinn bóginn getur hún á engan hátt skert réttindi eða hagsmuni Íslands. Gr. er stefnuyfirlýsing um, að Keflavíkurflugvöllurinn skuli vera opinn kaupflugförum allra þjóða, sem stj. Íslands veitir slík réttindi. Það er Ísland eitt og engir aðrir, sem veitir slík réttindi. Í gr. felst, að völlurinn skuli vera alþjóðaflugvöllur undir stjórn Íslands. Þetta ákvæði nefnir aðeins kaupflugför (civil aircraft), en nefnir ekki hernaðarflugvélar og takmarkar ekki rétt Íslendinga til að veita öðrum þjóðum en Bandaríkjunum lendingarrétt fyrir herflugvélar.

Í 5. gr. segir, að Bandaríkjastjórn sé heimilt, í sambandi við framkvæmd skuldbindinga þeirra, sem á Bandaríkjunum hvíla, um herstjórn í Þýzkalandi, að halda uppi á Keflavíkurflugvellinum þeirri starfsemi, tækjum og starfsliði, sem nauðsynlegt kann að vera í þessu skyni. Hæstv. menntmrh. slær því föstu, að það séu Bandaríkin, sem ákveða, hvað sé nauðsynlegt í þessu efni. Hann segir: Þeir mega hafa það starfslið og starfsemi, sem þeim þykir nauðsynleg. Hvar stendur þetta í samningnum? Hvar er heimildin til þessarar ályktunar? Hvergi nema í heilabúi ráðh, og löngun hans til að túlka samninginn Íslendingum í óhag. Í 7. gr. samningsins eru skýr ákvæði um, að Íslendingar hafi úrslitayfirráð yfir flugvellinum. Liggur þá ekki nær að álykta, að Íslendingar hafi eitthvað um það að segja, hvaða starfsemi og hvaða starfslið megi hafa á vellinum?

Hæstv. ráðh. gagnrýnir mjög 7. gr. Hann telur óviðeigandi, að við setjum reglur um rekstur og öryggi á flugvellinum í samráði við aðra þjóð. Hann gleymir því, að sem meðlimir í PICAO, alþjóðaflugmálasambandinu, eigum við að setja reglur í samráði við 50 aðrar þjóðir. Ráðh. segir: Bandaríkin geta neitað till. Íslendinga í sambandi við þessar reglur, þá verður engin reglugerð sett, og þá hafa Bandaríkin öll ráðin á flugvellinum. Þetta er ákaflega haldgóð ályktun. Ætli lægi ekki nær, þar sem Íslendingar hafa úrslitayfirráð um rekstur og umráð vallarins, að álykta, að það séu Íslendingar, sem í því tilfelli gætu ráðið þar reglum?

Till. verður vísað til utanrmn., og ef einhver ákvæði samningsins þykja óljós, verður það að sjálfsögðu athugað þar.

Ýmis fleiri atriði í gagnrýninni hefði verið ástæða til að nefna, en hæstv. forsrh. og hv. 5. landsk. þm. (StJSt) hafa gert því svo góð skil, að þar þarf engu við að bæta.

Gagnrýnin á þessum samningi mótast mjög af misskilningi á grundvallaratriðum og vísvitandi löngun til að leita ekki að eðlilegum skilningi, heldur að rangfæra samninginn okkur í óhag. Ég ætla, að eftir þær umr., sem fram hafa farið, standi ekki mikið eftir af þessari gagnrýni, en þá er eitt vígið eftir, sem hæstv. menntmrh. drap á í gær, og þar mun hann og flokksbræður hans ætla að hafast við, þegar öll sund eru lokuð. Hann sagði: „Við höfum enga ástæðu til að ætla, að Bandaríkin haldi hinn nýja samning.“ Þeir um það, hv. þm. Sósfl., ef þeir ætla að byggja utanríkispólitík Íslendinga á því, að víss stórveldi séu ekki samningshæf. Ég tel, að öll þau ríki, sem við eigum skipti við, séu samningshæf. En hitt fer maður að efast um, hvort ráðh., sem þannig tala, séu stjórnarhæfir. Ég tel, að Íslendingar eigi að semja við aðrar þjóðir um hagsmunamál og ágreiningsmál, og að þennan samning eigi að gera, þar sem hann leysir viss hagsmuna- og ágreiningsmál þessara tveggja ríkja, án þess á nokkurn hátt að skerða sjálfstæði og landsréttindi Íslendinga. Það hefur verið fundið upp vígorðið „dulbúnar herstöðvar“, og sósíalistar reyna að telja þjóðinni trú um, að það sé jafnvel farið fram á raunverulegar herstöðvar, eins og beðið var um 1. okt. s.l. Ég veit, að þessi málflutningur er vonlaus iðja. En það er bert, að sósíalistar vilja ekki semja við Bandaríkin, og gremja þeirra stafar ekki sízt af því, að nú sjá þeir ganga úr greipum sér hið langþráða tækifæri að kæra Bandaríkin fyrir öryggisráðinu.

Hvað tekur við, ef ekki takast samningar? Þá er hugsanlegt, að Bandaríkin haldi fast við sinn skilning á herverndarsáttmálanum og hafi her sinn hér áfram.

Ég vil nefna eitt dæmi enn um málflutninginn af hendi sósíalista. Í Þjóðviljanum í gær var birt samningsuppkastið. En við hlið þess var stór mynd af húsaþyrpingu í Reykjavík, þar sem ameríski fáninn blakti við hún. Og blaðið spurði: Hve lengi á ameríski fáninn að blakta á íslenzku landi? Með þessu var gefið í skyn, að samkv. samningsuppkastinu ætti ameríski fáninn að blakta hér áfram yfir íslenzku landi. Hann kann að blakta hér áfram, ef samningurinn verður felldur. En verði hann samþ., mun íslenzki fáninn dreginn að hún í stað hins ameríska.

Því hefur verið haldið fram, að þetta sé einhliða samningur, þannig að Bandaríkin fái allar óskir sínar uppfylltar, en Íslendingar fái ekkert á móti. Hvað fá Bandaríkjamenn með þessum samningi? Þeir fá hinn margumrædda umferðarétt á flugvellinum og rétt til að hafa þar nokkurt starfslið. Hvað fá Íslendingar? Bandaríkjastjórn, sem hingað til hefur ekki viljað viðurkenna skyldu sína til að flytja herinn á brott, fellst nú á að flytja allt herlið af landi burt, afhenda Íslendingum aftur fullan yfirráðarétt yfir landi þeirra, falla frá herstöðvakröfum sínum og tryggja fjárhagslegan rekstur Keflavíkurflugvallarins. Ég tel, að með þessu samningsuppkasti, þegar það er rétt skilið og eins og á að skilja það, en ekki gersamlega rangfært, þá sé svo mikið unnið fyrir Íslendinga, að ekki sé rétt að hafna því.