21.09.1946
Sameinað þing: 8. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
11. mál, niðurfelling herverndarsamningsins frá 1941 o.fl.
Í gildandi lögum um flugvelli og lendingarstaði fyrir flugvélar eru þessi ákvæði varðandi flugvellina í Keflavík og Reykjavík:
1. gr. — Flugvellir skulu flokkaðir í 4 flokka eftir stærð þeirra, gerð og búnaði til notkunar og rekstrar. Fullnægja skulu þeir eftirtöldum skilyrðum:
1. flokkur. Rennibrautir skulu vera ekki færri en þrjár, gerðar úr steinsteypu, malbiki eða öðru varanlegu slitlagi. Skulu þær fullnægja aðalvindáttum. Lengd brauta og breidd skal nægileg fyrir stórar millilandaflugvélar. Skulu þar vera byggingar þær, tæki og búnaður, sem nauðsynlegt telst til þess að fullnægja millilandaflugi.
2. gr. — Flugvellir skulu vera á eftirtöldum stöðum:
a ) Í 1. flokki:
1. Í Reykjavík.
2. Á Reykjanesi.
Þetta er sá grundvöllur að því er snertir rekstur Reykjavíkurflugvallarins, og hef ég á þessum grundvelli látið gera áætlanir um rekstur hans og Keflavíkurflugvallarins í framtíðinni. Að því er snertir eigin þarfir okkar Íslendinga, hvort heldur er til innanlands- eða millilandaflugs, er engin þörf á að reka Keflavíkurflugvöllinn á eins fullkominn hátt og lög heimta. Reynslan hefur sýnt, að millilandaflugvélar af stærstu gerð, sem nú eru til, og jafnframt af stærstu gerð, sem sérfræðingar telja, að notaðar verði í framtíðinni til flutninga yfir Atlantshaf um Ísland, geta lent fullfermdar á flugvellinum í Rvík og tekið sig upp þaðan án nokkurra erfiðleika, og meira að segja án þess að nota nándar nærri alla lengd flugbrautanna, þótt í logni sé. Þær flugvélar af stærri gerð, sem nú er verið að undirbúa smíði á, hafa enga þýðingu fyrir land vort, þar sem þær eru eingöngu miðaðar við að fljúga á mjög löngum vegalengdum, svo sem frá New York til Lundúna, Parísar eða Moskvu án viðkomu. Mundi oss því nægja að reka Keflavíkurflugvöllinn sem nauðlendingaflugvöll, þ.e. völl, sem hægt er að lenda á, ef snjóar, þoka eða ísing hindra um stundarsakir lendingu á Rvíkurflugvellinum. Með þessu fyrirkomulagi er hægt að reka Keflavíkurflugvöllinn án þess að árlegur rekstrarkostnaður fari fram úr 800 þús. kr. En eins og tekið var fram, gera gildandi lög ráð fyrir því, að Keflavíkurflugvöllurinn, eins og Rvíkurflugvöllurinn, verði rekinn sem fullkominn millilandaflugvöllur, og fyrir þessu hef ég að sjálfsögðu beygt mig. Hef ég því fengið sérfræðinga til að gera áætlun um rekstur Keflavíkurflugvallarins á þessum grundvelli. Áætlun þessa hafa þeir flugvallarfræðingarnir Sigfús H. Guðmundsson og Gunnar Sigurðsson gert, og sýnir hún, að árlegur rekstrar- og víðhaldskostnaður nemur aðeins kr. 1800000 og stofnkostnaður hvað tæki snertir ekki nema 2 millj. kr., þó að rekstur hans sé miðaður við fyllsta öryggi, meðal annars að því er snertir blindfluglendingarútbúnað. Hins vegar gerir áætlunin ráð fyrir, að flugvöllurinn verði rekinn sem útibú frá flugvellinum í Rvík að því er snertir skrifstofuhald og ýmisleg störf, sem starfsmenn Reykjavíkurflugvallarins gætu annazt fyrir báða flugvellina. Þá er gert ráð fyrir 43 manna starfsliði fyrir Keflavíkurflugvöllinn sérstaklega. Að því er Rvíkurflugvöllinn snertir, sýnir rekstraráætlun hans fyrir árið 1947, að árlegur kostnaður við rekstur hans nemur kr. 3150000. Það er ósatt, að rekstrarkostnaður hans í þrjá og hálfan mánuð frá yfirtökunni hafi numið tveimur og hálfri millj. kr., eins og Morgunblaðið staðhæfir. Rekstrarkostnaður fyrir yfirstandandi ár, þar með talinn allur kostnaður við undirbúning og þjálfun starfsmanna, áður en afhendingin fór fram, mun ekki verða meiri en ca. 1720000, en hins vegar varð samkv. hinum upprunalega samningi um flugvöllinn að borga fyrir allar vélar, áhöld, tæki og annan útbúnað, sem á vellinum var og ekki gat talizt múr- og naglfast, og nemur sá stofnkostnaður um 2 millj. kr. Að telja þennan stofnkostnað með rekstrarkostnaði, eins og Morgunblaðið sýnilega gerir, á sér enga stoð. — Það kostar þá innan við 5 millj. kr. að reka báða flugvellina, Keflavíkurflugvöllinn og Rvíkurflugvöllinn, í samræmi við ákvæði flugvallal., og er þá um svo fullkominn rekstur að ræða, að vér eigum óvefengjanlega kröfu til alþjóðatillags upp í þann kostnað samkv. ákvæðum Chicago-sáttmálans um alþjóðaflugmál. Nú er það engan veginn svo, að ekki komi neinar teljandi tekjur á móti þessum kostnaði. Miðað við núverandi ástand, þ.e., að Keflavíkurflugvöllurinn starfar sem aðalmillilandaflugvöllur og ríkissjóður fær engar tekjur af þeim flugvélum, sem þar lenda og því forðast að öðru jöfnu að lenda á Rvíkurflugvellinum, eru tekjur þessa flugvallar áætlaðar kr. 600000 á næsta ári. Ef báðir flugvellirnir væru í íslenzkum höndum, má því gera ráð fyrir mun meiri tekjum og ekki ósennilegt, að þær svari kostnaðinum. Þá hefur ríkisstj. áskilið sér rétt til að taka gjöld af öllu Atlantshafsflugi þeirra flugfélaga, sem sótt hafa um og fengið leyfi til lendinga á Keflavíkurflugvellinum, þegar þeim þykir það hagkvæmt, án þess þó að hafa fastar flugsamgöngur um Ísland. — Samkv. þessu er heildarkostnaðurinn við að reka báða vellina tæpar 5 millj. kr. Tekjurnar eru áætlaðar af Rvíkurflugvellinum miðað við nær eingöngu innlent flug um 600 þús. kr. Hins vegar hefur flugvöllurinn í Keflavík oft tekið á móti 10 millilandaflugvélum á dag, svo að ef báðir flugvellirnir væru í íslenzkum höndum, eru allar líkur til þess, að tekjurnar af þeim báðum stæðu undir kostnaðinum – eða meira. Þegar það er athugað, að við rekum strandferðir okkar með milljóna króna tekjuhalla og síma okkar einnig, sem fyllilega er sambærilegt við það, sem hér um ræðir, en það getur mest orðið 1–2 millj. kr. tekjuhalli, þá er það fáránlegt, að nokkur maður skuli láta sér sæma að reyna að færa rök fyrir því, að við séum ekki menn til að standa undir þeim kostnaði, sem þarf til að halda uppi rekstrinum. Þessar háu tölur, sem nefndar hafa verið, eru eingöngu byggðar á fleipri, sem ýmsir menn kasta fram. Ég veit t.d. ekki, hvaðan það kemur um þessar 30 millj. kr., sem hæstv. forsrh. talaði um áðan. Ég býst ekki við, að nokkur maður vilji binda nafn sitt við þá tölu. Það er eitt af því sorglega við þann samning, sem hér liggur fyrir, að það hefur engin rannsókn farið fram. Utanrrh. hefur ekki látið fara fram nokkra rannsókn um það, hvað þetta kostaði. Og þó er þessi kostnaður notaður sem veruleg röksemd í þessu máli. Ég veit, að utanrrh. veit, að þetta eru engin rök, þessu er aðeins slegið fram, svo að fólkið verði síður vart við, hvað er aðalatriði málsins. — Þá vil ég geta þess, að flugmálastjóri hefur síðan stríðinu lauk farið fram á bæði við Englendinga og Ameríkumenn að fá að setja menn inn á vellina til að láta kenna þeim, svo að Íslendingar gætu orðið búnir til að stjórna völlunum. Englendingar svöruðu fljótt játandi, og þangað voru ráðnir menn til að láta kenna stjórn flugvallarins, enda kom það fljótt á daginn, að Englendingar afhentu okkur völlinn mjög skömmu eftir að stríðið hætti. En enn þá hefur ekki fengizt leyfi til að láta menn læra að stjórna Keflavíkurflugvellinum eða kynna sér meðferð hans. Ameríkumenn hafa verið mjög strangir í þessu efni. Það situr því ekki á þeim mönnum, sem vilja gera þennan samning, að vera að álasa nokkrum fyrir, að ekki hafa verið settir menn inn á Keflavíkurflugvöllinn. Það eru Ameríkumenn, sem þar hafa staðið á móti. Þetta vildi ég segja um flugvellína. En. ég sagðist mundu ræða nánar um þær tölur sem hæstv. forsrh. nefndi í sambandi við þær lagfæringar, sem hann taldi, að gera þyrfti á Keflavíkurflugvellinum. Hæstv. ráðh. nefndi 30 millj. kr., sem þyrfti til að endurbæta völlinn strax fyrir og e.t.v. 60–70 millj. kr. síðar. Ég mun ræða þetta mál síðar, því að þetta kastar miklu ljósi á málið, og það hefur ekki komið fram áður.
Sá samningur, sem hér liggur fyrir, er sennilega verst undirbúinn af öllum samningum, sem Íslendingar hafa gert varðandi utanríkismál. Það er áberandi, hvað kastað er höndunum til þessa. Þegar hæstv. forsrh. útbýtti honum til flokkanna í íslenzkri þýðingu, var þýðingin ekki letri en það, að þegar skjalið kemur prentað, er búið að breyta því á 10 stöðum. Og þrátt fyrir þessa breyt. verður forsrh. að lýsa yfir, að þýðingin sé flaustursleg. Ég býst víð, að margar aðrar þjóðir mundi reka í rogastanz, ef forsrh. þeirra fylgdi jafnþýðingarmiklu plaggi og þetta er þannig úr hlaði. Þetta sýnir, hvernig höndunum hefur verið kastað til þessa samnings, þar sem ekki var hægt að gefa sér tíma til að þýða hann rétt. Það hafa verið svipuð vinnubrögð við samningsgerðina sjálfa, enda tók hæstv. forsrh það fram, að hann hefði rætt eingöngu við þá menn, sem hann gat treyst, þá menn, sem honum voru sammála. Það var sem sagt ekki rætt við þá, sem voru á annarri skoðun en hann, til þess að sjá, hvað menn læsu úr hinum ýmsu ákvæðum. Það er geysilega þýðingarmikið, að utanríkismálasamningar séu vel orðaðir, svo að enginn vafi geti orðið um það, við hvað er átt. Og það er ekki hvað sízt þýðingarmikið þegar um samning er að ræða milli stórveldís og smáþjóðar. Þegar skilja má samninginn á tvo vegu, hefur sá sterki betri aðstöðu til að láta sinn skilning vera ríkjandi. Ég býst við því, að ekki hafi verið hægt að kveða öllu skýrar á um endalok herverndarsamningsins en gert var, en þó hefur verið reynt að draga í efa, að Bandaríkjaherinn ætti að fara við lok stríðsins, þrátt fyrir það þótt orðalagið sé eins ákveðið og frekast mátti vera. Ég álít, að þótt menn hefðu séð „situationina“ eins og hún er nú, þá hefðu þeir ekki getað haft orðalagið öllu skýrar. Þetta sýnir, hve veigamikið það el að athuga hverja setningu, svo að enginn vafi geti leikið á um það, hvað hver setning eigi að þýða. Það var svo að skilja á ræðu þjóðréttarfræðingsins Gunnars Thoroddsens sem það væri allt í lagi með mismunandi skilning á samningnum, því að við réðum yfir vellinum og segðum þar síðasta orðið. Þetta eru svigurmæli og mannalæti, sem smáþjóð sæmir ekki. Og ein ástæðan fyrir því, að við stöndum veikir þegar ákvæðin eru tvíræð, er sú, að hér á þ. sitja ekki kraftmeiri menn en þessi hv. þm. Þegar við þorum ekki að neita að gera svona samning, þorum við þá að standa á rétti okkar þegar um vafaatriði er að ræða? Það hefur hér verið margbent á, að þessi samningur er langt frá því að vera þannig úr garði gerður, að í honum felist ekki mörg vafaatriði, sem leggja megi mismunandi skilning í.
Fyrir skömmu samþ. Alþ., að Ísland gengi í bandalag sameinuðu þjóðanna. Þá voru sérfræðingar látnir rannsaka, hvers konar skuldbindingar, hve víðtækar og hvers eðlis, það væru, sem Ísland tæki á sig með því að ganga inn í samtökin. Þetta álit sérfræðinganna var svo lagt fyrir þm. til leiðbeiningar. Engar slíkar rannsóknir hafa verið gerðar á samningi þeim, sem hér liggur fyrir, enda ekki tími til þess, þar sem ekki hefur gefizt tími til að þýða samninginn á íslenzku, svo að í lagi sé. En þetta þyrfti að gera, og það þarf vandaðri þjóðréttarfræðinga en hv. þm. Snæf. til að annast það verk. Það þyrfti jafnvel að leita til þjóðréttarfræðinga nágrannalanda okkar til þess að gefa okkur hlutlaust álit um það, hvað felist í þessum samningi. (Forsrh.: Væri ekki öruggara að fara austur?) Við skulum ekki blanda inn í þessar umr. mismunandi sjónarmiðum á utanríkismálum. Þetta væri jafnnauðsynlegt, þótt við værum að semja við Sovétríkin. Ég veit, að hæstv. forsrh. er brandaramaður mikill, og ég ætla ekki að fara í einvígi við hann á því sviði. En það er leitt til þess að vita, ef hæstv. ráðh. hefur talið þennan samning brandara og ekki gengið til samningagerðarinnar með meiri alvöru en hann svarar andstæðingum sínum hér. (Forsrh.: Er þetta brandari?) Nei, mér er ekki brandari í hug nú. Við eigum að ræða um þetta mál af alvöru og hugsa um, hvað er íslenzku þjóðinni fyrir beztu. Við erum að gera hluti, sem eiga eftir að hafa mikil áhrif á þjóðlíf Íslendinga í langan tíma, kannske áratugi. Það getur farið svo, að afkomendur okkar rannsaki þennan samning af sams konar kostgæfni og undanfarandi kynslóðir hafa rannsakað og byggt rétt þjóðar innar á Gamla sáttmála. Ég álít, að það sé óverjandi að samþ. þennan samning áður en fyrir liggur álit um hann frá þjóðréttarfræðingum, er við getum treyst, svo að við vitum, hvað í greinum hans felst. Fyrst þegar slíkt álit liggur fyrir, getur þjóðin gert sér grein fyrir, hve langt er gengið með samþykkt hans. Ég hef ekki enn þá fengið skýringu á því, hvers vegna slíkt álit liggur ekki fyrir. Það þótti sjálfsagt að láta slíkt sérfræðingaálit fylgja, þegar samþ. var inntökubeiðnin í bandalag sameinuðu þjóðanna. En það er margfalt sjálfsagðara, þegar um þennan samning er að ræða. Enda er það þegar komið á daginn, að menn draga mismunandi skilning út úr greinum hans. Þessi samningur hefur ekki inni að halda sumt af því, sem Bandaríkin telja sig eiga hér á landi. Bandaríkin telja sig eiga tvö flugvélaskýli á Reykjavíkurflugvellinum, og þar að auki braggahverfi, svokallað „mangernose“, sem er mikið mannvirki. Þetta allt er margra millj. virði, þar sem eitt flugvélaskýli er talið kosta a.m.k. 2 millj. kr. Englendingar höfðu afhent Íslendingum þetta mannvirki, en þegar til kom báðu þeir afsökunar og sögðust ekki hafa átt það, þar sem Bandaríkin gátu tekið það aftur samkv. láns- og leigul. Þetta eru mjög nauðsynlegar byggingar og vont að láta taka þær burtu þaðan. Það er því mikilvægt, að samið sé um þetta. Og hafi þetta verið ensk eign, eins og gert var ráð fyrir þegar samið var við Englendingana, þá voru þetta eignir, sem Englendingar áttu að láta fylgja endurgjaldslaust. — Svo er það annað atriði, sem ekki hefur verið samið um. Það er Hvalfjörður. Það er eins með hann og flugskýlin. Ameríkumenn afhentu Englendingum flotastöð sína og olíugeymslustöð í Hvalfirði, sem mun rúma 140 þús. tonn af olíu, en tóku hana svo aftur samkv. heimild úr láns- og leigul. Síðan var olíustöðin afhent umboðsfélagi Standard Oil, Hinu íslenzka steinolíufélagi, og þar starfar eitthvað af erlendum mönnum. En það verður að gera ráðstafanir varðandi það, hvað verða á um þessar eignir. Ríkisstj. getur ekki sætt sig við það, að eignirnar séu afhentar einstaklingum til eignar. Hún gat t.d. ekki sætt sig við það hvað braggaeignirnar snerti.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um samninginn sjálfan. Mun ég leitast við að ræða þau atriði, sem ekki hafa verið rædd áður. — Því hefur verið lýst yfir, að það sé geysilegur vinningur að fá þennan samning, því að Bandaríkin fari þá með her sinn af landi burt. Ég verð að segja, að það sé rannsóknaratriði, hver vinningur okkur sé við það, að herliðið fari upp á þessi býti. Bandaríkjaliðið er skyldugt að fara héðan samkv. herverndarsamningnum. Það er því fyrsta gjöfin, sem Íslendingar fá með þessum samningi, að þessi samningur falli niður. Þetta er því gersamlega gert út í bláinn og ekki sett í samninginn í öðrum tilgangi en þeim að flagga með það og nota það sem röksemd fyrir því, að veitt skuli þau hlunnindi, sem síðar koma í samningnum. Það er þó eitt, sem er dálítið óheppilegt fyrir okkur, ef samningurinn verður samþ. eins og hann liggur fyrir. Það er, að þarna er því slegið föstu, sem Bandaríkin hafa viljað halda fram opinberlega, að þau væru ekki skyldug að fara héðan með herinn og að þeirra skilningur væri réttur. En þetta viðurkennum víð, ef við samþ. þetta þannig. Það hefði því verið hægt að gera samning um hlunnindin eingöngu, því að þetta var ekki annað en það, sem þeir áttu að fullnægja og voru búnir að draga of lengi.
3. gr. er um það, að flugvöllurinn í Keflavík skuli verða íslenzk eign. Um þetta hefur verið gerður sérstakur samningur, og var það í forsætisráðherratíð Ólafs Thors 1942, sérstakur bindandi samningur milli íslenzku ríkisstj. og Bandaríkjanna um það, að þessi flugvöllur skyldi verða íslenzk eign. Það er því engin nauður, sem rekur til að taka upp þennan samning. Þetta er aðeins gert í þeim tilgangi að gefa þessu fallegra útlít, að hér sé um fallegan samning að ræða, en ekki afsal frá Íslands hálfu.
Að því er snertir 3. gr., var helzt að heyra á hv. þm. Snæf., að hann teldi hana ekki eiga heima í þessum samningi, og hefði hún slysazt af vélritun úr annarri átt. Kom það fram hjá hæstv. utanrrh., að þýðingin þarna væri röng, og að orðin „öðrum en hervélum“ ættu ekki að vera þarna. Ef maður les þýðinguna, sér maður, að þýðingin er rétt, og er þetta undirstrikað vafalaust til þess að útiloka herflugvélar, og þurfa menn ekki að vera neitt hissa á því, þegar þeir athuga fyrirætlanir Bandaríkjamanna, þó að þeir vilji áskilja sér, að Íslendingar geti ekki veitt flugvélum annarra ríkja aðgang að þessum velli.
Í 4. gr. segir, að stjórn Bandaríkjanna muni svo fljótt sem auðið er flytja á brott það herlið og sjólið Bandaríkjanna, sem nú er í Rvík, og innan 180 daga frá gildistöku samnings þessa muni. hún smátt og smátt flytja á brott allt annað herlið og sjólið Bandaríkjanna, sem nú er á Íslandi. Þetta er ekki annað en það, sem fellur undir 1. gr. og þeir eru búnir að draga of lengi, og hafa þeir gert sér það ljóst.
Þá er eiginlega talið það, sem Bandaríkjastjórn lætur Íslendingum í té gegn þeim hlunnindum, sem hún síðar í samningnum áskilur sjálfri sér. Öll þessi atriði er óþarft að taka fram í samningnum, því að það liggja fyrir aðrir samningar um þessa hluti, sem Bandaríkjastjórn er skylt að uppfylla, þannig að þessi ákvæði eru óeðlileg og því ekki Bandaríkjastjórn, sem hefur ýtt þessu inn í samninginn, heldur þeir menn, sem vildu hafa samninginn í því formi, að þeir gætu frekar fengið íslenzku þjóðina til þess að fallast á hann, þannig að það mundi fremur vera innlend stjórnkænska, sem kemur fram í þessu.
Þá kem ég að þessari makalausu 5. gr. samningsins, sem menn hafa mikið deilt um og sumir telja dulbúnar herstöðvar, en aðrir sönnuzt fyrir því, að við höfum óskorað vald yfir þessum flugvelli. Ég man ekki, hvernig hæstv. forsrh. orðaði það, að Íslendingar fái óskorað vald yfir flugvellinum. En ég held, að breyta mætti þessum orðum og segja, að Íslendingar fái óskoraða ábyrgð á því, sem þar verður gert gagnvart öðrum þjóðum. Í gr. segir: „Flugförum þeim, sem rekin eru af Bandaríkjastjórn eða á hennar vegum í sambandi við framkvæmd þeirrar skyldu, er Bandaríkin hafa tekizt á hendur, að hafa á hendi herstjórn og eftirlit í Þýzkalandi, skulu áfram heimil afnot af Keflavíkurflugvellinum.“ — Byggir Bandaríkjastjórn þessa ósk sína, um að fá að nota flugvöll okkar, á því, að hún hafi tekizt á hendur skyldur í sambandi við hernám Þýzkalands. Í hvaða skyni er hernám Þýzkalands gert? Í því skyni að fyrirbyggja, að Þjóðverjar geti gert nýtt herhlaup á nágranna sína og valdið þeim tjóni. Þetta eru þær skyldur, sem Bandaríkjamenn hafa tekið á sig gagnvart nágrönnum Þýzkalands og bandamönnum sínum í styrjöldinni. Má í því sambandi nefna ýmsa, sem Hitler réðst á, svo sem Frakka, Englendinga, Pólverja og fleiri. Nú, — segjum, að þau hafi tekið á sig þessa ábyrgð. En hvers vegna að taka bara endilega orð Bandaríkjamanna trúanleg, en spyrja ekki þá, sem eru kunnugir þessum skyldum? Hví ekki að spyrja Frakka, Breta og fleiri þær þjóðir, sem hér um ræðir: „Er það til þess að fullnægja skyldum gagnvart ykkur, að Bandaríkjamenn þurfa þessa aðstöðu?“ Hví ekki að spyrja þessar þjóðir, spyrja öryggisráðið? Vegna þess, að sú niðurstaða yrði neikvæð, það kæmi neitandi svar úr þessari átt. Og svo mikið er víst, að Bandaríkin væru síður en svo ánægð með að þurfa að taka þetta fram, þar eð þau vita, að þessar þjóðir ekki einasta óska ekki eftir, að þau fengju þessi réttindi, heldur eru beinlínis andvígar því. Þetta er bara gert til þess að sýnast hér, það er dálítið hægara að segja íslenzku þjóðinni, að við verðum að gera þetta, þegar Bandaríkin segja sjálf, að þetta sé skylda, sem Bandaríkin hafi tekið á sig gagnvart bandaþjóðum sínum í styrjöldinni.
Þá kem ég að 2. málsl. þessarar gr.: „Í þessu skyni skal stjórn Bandaríkjanna heimilt að halda uppi á eigin kostnað, beinlínis eða á sína ábyrgð, þeirri starfsemi, þeim tækjum og því starfsliði, sem nauðsynlegt kann að vera til slíkra afnota.“ — Úr þessari gr. má lesa ýmislegt, en þó hygg ég, að enginn þjóðréttarfræðingur mundi líta svo á, að út úr þessu mætti lesa það, að Íslendingar ættu að hafa hin endanlegu yfirráð á flugvellinum. Það stendur: „Í þessu skyni skal stjórn Bandaríkjanna heimilt að halda uppi á eigin kostnað, beinlínis eða á sína ábyrgð ...“ Þetta „að halda uppi“ er miklu nær meiningunni að segja „að reka“, og yrði þá setningin þannig : „Í þessu skyni skal stjórn Bandaríkjanna heimilt að reka á eigin kostnað, beinlínis eða á sína ábyrgð, þá starfsemi, þau tæki og það starfslið, sem“ o.s.frv. Það er sýnilegt, að þarna eru það Bandaríkin, sem eiga að reka flugvöllinn á sína ábyrgð og reka hann beinlínis. Það er engum vafa undirorpið.
Þá stendur og í samningsuppkastinu, að stjórnir Bandaríkjanna og Íslands skuli í samráði setja reglugerðir um ýmislegt, sem snertir flugvöllinn, og að slík ákvæði raski þó ekki úrslitayfirráðum ríkisstj. Íslands hvað rekstur og umráð vallarins snertir. Hugsum okkur nú, hvernig getur íslenzk framkvæmd úrslitayfirráða verið yfir flugvelli, sem Bandaríkjastjórn rekur á sína ábyrgð, hugsum okkur framkvæmdina á þessu. Það er hugsanlegt, að þetta yrði framkvæmt þannig, að skipaður yrði einhver forstjóri tilnefndur af Íslendingum. Hvernig gæti hann snúið sér til einstakra starfsmanna Bandaríkjastjórnar og sagt þeim fyrir verkum? Þessu hefur ekki verið svarað hérna. Í hvert skipti, sem þennan mann langaði til að gera eitthvað, yrði hann að snúa sér til amerísks höfuðsmanns, og hann mundi segja: „Ég skal taka þetta til athugunar“, — og þar með væri það úr sögunni. Þetta eru skipanir Bandaríkjastjórnar, Bandaríkin reka þetta á sína ábyrgð, og þó á þetta í engu að raska úrslitayfirráðum ríkisstj. Íslands yfir flugvellinum. Það hefur ekki verið skýrt, hvernig þessi tvö atriði geta heyrt saman. Þetta er atriði, sem hefði sérstaklega þurft að liggja fyrir þjóðréttarfræðingum, og ekki aðeins þeim eina, sem við höfum hér, — ég hef ekki mikla trú á honum, eftir að hafa hlustað á ræðu hans og aths., — heldur hefði þurft að fá aðra menn, hlutlausa menn, og ég álít, að við getum svo vel treyst nágrannaþjóðum okkar á Norðurlöndum, að við gætum leitað til þeirra um skýringar á þessu.
Svo kemur 3. málsgr. 5. gr.: „Taka skal sérstakt tillit til sérstöðu slíkra flugfara og áhafna þeirra, hvað snertir tolla, landvistarleyfi og önnur formsatriði: — Þarna er verið að tala um þau flugför, sem þarna megi koma, um þann mannafla, sem á að setja á völlinn til að gæta þeirra. Vitanlega verða það ekki hermenn, bara fínir menn í jakkafötum, sem geta smogið inn alls staðar, án þess að vera komnir í ástandið. Það er atriði, sem ég mun koma að síðar, ef það skyldi reynast rétt, sem kom fram hjá þjóðréttarfræðingnum, að þeir heyrðu undir íslenzka lögsögu, og mun ég koma að því síðar, hve mikil vinna það yrði fyrir íslenzku þjóðina, ef það skyldi reynast rétt. En þessir menn mega vera eins margir og Bandaríkjastjórn lízt. Þjóðréttarfræðingurinn var að reyna að skýra þetta atriði. Stjórn Íslands, Finnur Jónsson, gefur út landvistarleyfin. Svo sér hann, að komið er of mikið af leyfum, þá á hann að dæma, að nú sé of mikið á flugvellinum. Finnst þjóðréttarfræðingnum sennilegt, að svona sé framkvæmanlegt fyrir íslenzka ríkið, sennilegt, að við getum með árangri fylgzt með því, hve mikið starfslið Bandaríkjamenn hafa á flugvellinum. Hann veit, að þetta er fjarstæða, við höfum ekki minnstu aðstöðu til þess. Við vitum það eitt, að þeir Bandaríkjamenn, sem áttu að vera hér fyrst um sinn, eru margfalt fleiri en nauðsynlegt er til að reka flugvöllinn. Þetta vita íslenzkir flugmenn. Til þess að reka þennan völl þarf 43 menn, en þeir eru hér 600, og eru engin takmörk fyrir því hvað þeir mega vera margir. Ég spurði hæstv. forsrh., hvaða takmörk hann léti sér detta í hug fyrir þessari tölu. Hann sagði fullum fetum: Fjöldi þeirra manna, sem þarf að vera á vellinum að áliti Bandaríkjastjórnar, því að hún ætti að meta þetta og færi það eftir því, hvernig hún meti ástandið í Evrópu. Þetta sagði forsrh., og þetta er alveg rétt, Bandaríkin eiga að meta, hvenær þörfin er mest. Ef Ísland hefur vald til þess að setja þar einhverjar skorður, þ.e. má með samningi setja skorður, er nauðsynlegt, að það sé sérstaklega tekið fram, vegna smæðar Íslands, hvað við höfum vonda aðstöðu til að koma fram rétti okkar, ef hann er ekki fram tekinn í samningnum. — Þetta er nú um þetta lið, sem þarna er. Svo þurfum við að veita þeim byssuleyfi, undir ströngu eftirliti íslenzkra stjórnarvalda. Við vitum, hvaða aðstöðu við höfum til að gera þetta. Það getur svo sem verið nógu gott að vera með flottar skýringar, en það þarf þrek til þess að standa á skýringunum þegar vafaatriði eru og íslenzka sjónarmiðið rekst á það ameríska, þá þarf meira en fræðimennsku til staðar. Og því miður höfum við orðið að reka okkur á það, að það hefur ekki alltaf verið mikið til af þreki hjá þeim mönnum, sem hafa talið sig gegna þýðingarmestu störfunum fyrir þjóðfélagið. Annars er ekki að neinu leyti tekið fram, að þessir menn skuli falla undir íslenzk l. að öðru leyti, því að það væri talin móðgun í garð hins íslenzka fullveldis. Það er gert eftir ásetningi að móðga ekki hið íslenzka fullveldi, en „taka skal sérstakt tillit til sérstöðu slíkra flugfara og áhafna þeirra, hvað snertir tolla, landvistarleyfi og önnur formsatriði.“ Það er formsatriði landvistarleyfið. Hvað þýðir, að taka eigi sérstaka tillit til slíkra flugfara? Ég sé ekki, að það geti haft annan tilgang en þann, að þessi flugför megi koma til Íslands, eins mörg og Bandaríkjastjórn sýnist, vera á Íslandi eins lengi og þeim sýnist og hafa eins stórar áhafnir og þeim sýnist. Ég sé ekki, að lesa megi annað út úr þessu. Annars vegar á að taka sérstakt tillit til þessa, en hins vegar eru það svo formsatriði. Eins og þetta liggur fyrir, eru engin takmörk fyrir þessu. Bandaríkjastjórn getur hvað sem henni sýnist í þessum efnum.
Því hefur verið haldið fram af hæstv. forsrh., að til þess að gera Keflavíkurflugvöllinn nothæfan þurfi yfir 30 millj. kr., eða, eins og hann komst að orði, 5 millj. í dollurum. Mér er kunnugt um það, að Keflavíkurflugvöllurinn er í mjög góðu ástandi og mjög vel við haldið. Ég skildi ekki í fyrstu, hvernig stóð á þessari háu tölu, hélt, að þetta væri út í loftið. En það var dálítið atvik, sem gerði að verkum, að mér datt í hug, að þarna væri meiri alvara á bak víð, en það var, að atvmrn. var að taka eignarnámi land undir flugvöll við Keflavík nú um þessar mundir, og gerði ráð fyrir, þegar það ákvað takmörk þess lands, sem eignarnámi skyldi taka, að þar yrðu byggðar brautir eins og þær stærstu, sem hin alþjóðlega stofnun gerir ráð fyrir, en þær brautir, sem eru þarna, eru tæplega 7 þús. fet. En þá kemur orðsending frá utanrrh. þess efnis, að tekið sé svo stórt svæði, að byggja megi brautir upp á 10 þús. fet. Ég varð dálítið hissa og tók að afla mér upplýsinga um þetta. Jú, tilfellið var, það er til í heiminum, að flugbrautir þurfa að vera 10 þús. fet. Það eru brautir fyrir risaflugvirki, sem þurfa að vera þetta stórar, og lagið þarf helzt að vera margfalt sterkara en á þeirri braut, sem nú er í Keflavík. Ef það er rétt, að Bandaríkjamenn hafi sagt, að þeir þurfi að gera við flugvöllinn fyrir 5 millj. dollara, þá er það því til þess að byggja flughöfn fyrir risaflugvirki. Þau voru byggð í Ameríku með tilliti til Kyrrahafsstyrjaldarinnar og hinna gífurlegu vegalengda, sem þurfti að fara í árásarskyni. Þau voru aldrei í styrjöldinni notuð í Evrópu, aldrei send til árása á Þýzkaland. Meðan sú barátta stóð, var ekki þörf fyrir risaflugvirki í Evrópu. Nú hefur Bandaríkjastjórn, að því er bezt verður séð, fengið augastað á flughöfn fyrir risaflugvirki hér á Íslandi, og þessi tala, 10 þús. fet, er sú lengd á flugbraut, sem talin er nauðsynleg fyrir þessi flugvirki. Ég býst við, að það sé ekki af sérstakri flugvélaþekkingu hjá ráðh., að hann óskar eftir, að mögulegt verði að stækka flugvöllinn svona mikið, heldur fyrir tilmæli Bandaríkjastjórnar, svo að þau geti lengt brautina svona mikið. Þá standa sakir þannig, að við stöndum kannske andspænis því, að Bandaríkin séu að byggja hér á Íslandi flugstöð, þá fyrstu í Evrópu, fyrir þessi risaflugvirki. Það kann að vera, að þau hafi gert bráðabirgðaflugstöð í Þýzkalandi, — ég hef ekki heyrt um það, — en þetta yrði fyrsta varanlega flugstöðin fyrir risaflugvirki, sem byggð yrði. Þegar það er athugað, að við höfum ekkert vald til að segja Bandaríkjamönnum fyrir verkum hvað þeir eiga að byggja þarna, eigum að hafa yfirstjórn á þessu samkv. samningnum og höfum flugvallarstjóra, sem ber ábyrgð á öllu saman, og verðum að horfa á Bandaríkjamenn búa til sinn flugvöll, — meira getum við ekki gert, — þá er tekið fram okkur til hugarléttis, að við eigum ekki að borga flugvöllinn. Það er nú gott, en því nær sama hvort það er tekið fram eða ekki, því að við hefðum ekki getað það. En það er það eina, sem tekið er fram í því sambandi. — Ef það er tilfellið, að eftir að þessi bráðabirgðaviðgerð upp á 5 millj. dollara hafi farið fram, þá þurfi að gera enn endurbætur upp á um 70–80 millj., eins og hæstv. forsrh. sagði, þá er þetta meira en lítill flugvöllur. Keflavíkurflugvöllurinn var um skeið annar stærsti flugvöllur í heimi. Ég veit ekki, hvort hann er það nú, en hann var það um eitt skeið. En þegar búið er að setja í hann 100 millj. íslenzkra króna í viðbót, hvað verður hann þá stór? Nú kann einhver að segja sem svo: Hvað kemur þetta okkur við, Bandaríkin borga okkur það? En þetta kemur okkur við að því leyti, að við verðum ekki dregnir til sérstakrar ábyrgðar fyrir hvert atvik, sem þarna er gert.
Ég vil leyfa mér að bera saman herstöðvasamninginn samkv. nótu Bandaríkjanna frá 1. okt. 1945 og þann samning, sem hér er verið að ræða. Ég álít, að það sé stórt rannsóknaratriði, og það kannske fleiri en þjóðréttarfræðinga að finna út, að hvaða leyti sá samningur, sem hér liggur fyrir, sé betri en herstöðvasamningur Bandaríkjanna frá 1. okt. 1945. Þetta er vitanlega hlutur, sem við hefðum ekki getað sætt okkur við og þjóðin hefði talið brot á sínu sjálfstæði. En ef við hefðum gert þennan samning, þá hefðum við ekki borið ábyrgð á því, sem fram fór innan gaddavírsgirðinganna. En það er hægt að draga okkur til ábyrgðar, ef eitthvað slettist upp á vinskap Bandaríkjanna og evrópiskra þjóða fyrir að hafa leyft flugvélum þeirra að setjast hér, leyft þeim að undirbúa sig í hverju nákvæmu atriði. Við höfum haft mann, sem borið hefur alla ábyrgðina. Ég skal segja ykkur, að ég er í stórkostlegum vafa um það, hvort betra sé fyrir íslenzku þjóðina að hafa hér gaddavírsgirðingar eða hvort við eigum að hafa hér íslenzkan fána og íslenzkan flugmálastjóra, sem getur ekki annað en horft á, hvað Bandaríkjamenn gera. Það er enginn vafi á því, að það, sem við verðum að varast, ef við viljum forða okkur frá því að dragast algerlega inn í deilur annarra þjóða, er að setja íslenzkan fána og íslenzka embættismenn yfir það, sem þarna fer fram undir stjórn Bandaríkjanna, samkv. þessum samningi. Ég tel það stórkostlegt vafamál, hvort það er betra en herstöðvamálið. Munurinn er aðeins sá, að hægt er að spyrja okkur um einstök atriði. Erlendar þjóðir geta komið og spurt okkur um hvert einstakt atriði, hve margar flugvélar við höfum hér og hve marga menn, og dregið okkur til ábyrgðar. Ef við hefðum gaddavírsgirðingarnar, gætum við alltaf sagt það sama, að við vissum ekkert um það. Þjóðin getur haft sína skoðun á því, hvort rétt sé að gera þennan samning. En það mundi þó ekki vera hægt að draga okkur til ábyrgðar sérstaklega. Ég get trúað því, að þjóðréttarfræðingurinn segi, að ég muni halda þessu fram vegna þess, að búizt er við, að Bandaríkin ráðist á Rússland. Þetta er komið fram til þess, að menn hætti að hugsa málið. Ég er sannfærður um, að þótt Bandaríkin hefðu hér engan hernaðarstyrk, þá hefðu þau þann hernaðarmátt að geta gert hvað sem þau vildu með flugvélamóðurskipum sínum. En sá stóri munur er á, hvort við tökum sérstaka afstöðu eða fáum ekkert að gert. Það getur enginn ásakað þjóð með 126 þús. íbúum fyrir það, sem við hana er gert, en það er hægt að ásaka hana fyrir slíkan samning. Það hefur e.t.v. engin áhrif á gang málsins, hvort við segjum já eða nei. Heimsviðburðirnir ganga fyrir sig með svipuðum hætti og áður, en við höfum bara hreina samvizku. Það er verulegt atriði. Þjóðin getur ekki varið sig með vopnum. Við treystum á siðferðislegan rétt, treystum, að friður haldist og allar þjóðir virði rétt hennar. En eftir að hún er búin að stíga þetta skref, þá er hún búin að missa þennan siðferðislega rétt, ef hún stígur þetta skref, sem allar þjóðir telja hlutleysisbrot á sér, að við höfum veitt einu ríki herstöðvar til undirbúnings árása á annað. Það er þetta, sem mér finnst ekki koma nógu rækilega fram. Við getum vitaskuld ekki haft nein áhrif á gang mála úti í heimi. Við verðum að hugsa um sjálfa okkur, hugsa um það, að við séum hlutlaus, að engin þjóð geti komið til okkar og lagt hnefann á borðið og sagt: Þið hafið hjálpað andstæðingunum til að undirbúa árásir á okkur. Það kann að vera, að einhver sé svo barnalegur að halda, að einhver stoð sé í slíkum herstöðvum. En vitanlegt er það, að vera erlends herliðs getur á engan hátt tryggt þjóðina. Ég efast ekki um það, að ef stórkostleg styrjöld brytist út, sem við vonum, að komi ekki til, og ég er þeirrar skoðunar, að engin ástæða sé til að búast við, að styrjöld verði, a.m.k. í náinni framtíð, og er það álit manna yfirleitt, sem horfa æsingalaust á málið, — að þá kann að vera, að það verði barizt um Ísland hvort sem er. Það verður rás viðburðanna að skera úr um. En það er bara þetta, að ef við veitum einni þjóð hernaðaraðstöðu hér á landi, þá eigum við sök á því, að barizt verði hér frá fyrstu mínútu. Ef við leyfum einni þjóð að hafa hér bækistöðvar, sem gefa henni aðstöðu til að vera hér með herstöðvar og flugvélar, getur það orðið til þess, að barizt verði um Ísland frá fyrsta degi, sem allir vona samt, að verði ekki. En þá getum við ekki komið til þessara þjóða og sagt, að það hafi verið ráðizt á saklausa smáþjóð. Ef við veitum einu ríki rétt umfram annað, erum við búnir að missa hinn siðferðislega rétt smáþjóðar.
Tveim ræðumönnum var sérstaklega hugleikið a ð sanna, að hér væri ekki verið að ræða um herstöðvar, sérstaklega þjóðréttarfræðingnum, hv. þm. Snæf. (honum er nú vorkunn vegna ræðunnar, sem hann flutti 1. des. s.l.) og enn fremur formanni Alþfl., hv. 5. landsk., og mér fannst r æður þeirra bera vott um, að þeim væri dálítið erfitt um að útskýra, hvað væru herstöðvar. Þessir amerísku menn eru allir í jakkafötum, hafa engin vopn og verða að fá landvistarleyfi hjá Finni Jónssyni. En þegar stríð skellur á, verður ekki spurt um þjóðréttarstöðu, þá verður spurt um, hvað margar flugvélar þarf til að gera árás. Þá veit ég ekki, hvað margar flugvélar þarf að hafa hér, þær geta verið þúsundir, geta verið fullar af hermönnum og vopnum. Þá geta þeir klætt sig úr jökkunum og gripið til vopna. Samningurinn hjá hv. þm. Snæf. er í framkvæmdinni um hernaðarstöðvar. Ef byggður er fyrsta flokks flugvöllur, sérstakir menn hafðir til að annast völlinn sjálfir, með fjölda flugvéla, þá getur enginn horft á þetta öðruvísi en sem hernaðarstöð, og þá býst ég við, að þegar til þess kemur, þá verði lítið um þjóðréttarskýringar þm. Snæf. Þegar búið er að veita einu herveldi hér leyfi til að hafa stöðvar, þá , eru þær ekki lengur á okkar valdi. Þetta eru herstöðvar og ekkert annað. Þetta eru raunverulegar herstöðvar, dulbúnar í augum þjóðarinnar, vegna þess að þjóðin er búin að hafna herstöðvum, og þess vegna þýddi ekki að koma með það. Og það er því sérstök nauðsyn og þjóðin á heimtingu á því að segja álit sitt um þennan samning. — Þá eiga Bandaríkjamenn að þjálfa hér sérstaka menn, eins og hæstv. forsrh. sagði. En ef þeir hafa 600 menn og taka ekki aðra en þeir þurfa, þá taka þeir enga. Og þeir þurfa ekki á neinum að halda, en við höfum hér nóga menn, sem við gætum treyst til að reka þennan völl algerlega íslenzkt.
Þá er það hér í 7. gr., þar sem segir svo: „Stjórnir Bandaríkjanna og Íslands skulu í samráði setja reglugerðir um rekstur, öryggi og önnur mál, er varða afnot allra flugfara af flugvellinum.“ Það er ekki tekið fram, hvor aðili eigi að setja slíka reglugerð. Við eigum ekki að setja þessa reglugerð í samráði við Bandaríkin, heldur stjórn Bandaríkjanna í samráði við okkur. Það er alveg ugglaust, að þessi reglugerð verður ekki sett nema báðir aðilar verði sammála. Það er algerlega ugglaust, að þessi reglugerð eigi að vera um rekstur, öryggi og önnur mál, sem varða völlinn. Hæstv. forsrh. var að tala um, að það væri eins hægt að hafa samráð við Bandaríkjastjórn, fyrst við höfum samráð við 50 aðrar þjóðir. Ég vil segja, að Bandaríkin voru með í að semja þessa reglugerð. Það er þess vegna engin nauðsyn á því að taka það fram sérstaklega um að semja öryggisreglur. Það er búið að semja ýtarlega reglugerð. Það sannar, að ekki er átt við þetta hér. Það er, að fyrirkomulagið á stjórn Íslendinga á þessum velli á að vera í samráði við Bandaríkjastjórn. Hún á að hafa úrslitavaldið, hún á að segja þjóðinni, hvernig fyrirkomulagið á þessari stjórn á að vera. Og í öðru lagi á Bandaríkjastjórn að hafa völdin um það, hvaða annarra þjóða flugvélar megi koma á flugvöllinn. Þannig er mergurinn málsins. Ég hef aldrei efazt um það eitt augnablik, að Bandaríkin mundu ekki sætta sig við, að flugvélar allra þjóða mættu koma á þennan völl, eftir að þeir væru búnir að útbúa völlinn eins og þeir vildu. Svo kom seinni hluti þessarar gr., sem mikið hefur verið talað um og hljóðar svo: „Slík ákvæði raska þó ekki úrslitayfirráðum ríkisstj. Íslands hvað umráð og rekstur flugvallarins snertir.“ Í fyrri málsgr. er það tekið fram, að stjórnir Bandaríkjanna “og Íslands þurfi að hafa samráð varðandi rekstur og afnot flugfara á vellinum. Á eftir kemur, að slík ákvæði raski þó ekki úrslitayfirráðum Íslendinga hvað rekstur flugvallarins snertir. Þarna er ekki tekið fram, hvað snertir afnot og rekstur flugfara. Það er til þess að undirstrika það, að samþykki Bandaríkjastjórnar sé óhjákvæmilega nauðsynlegt, áður en flugför annarra þjóða gætu komið á þennan flugvöll. Það má segja, að það sé eiginlega árangur þessa samnings, sem kemur fram í þessari gr. Í fyrri málsgr. kemur fram það, sem Bandaríkin vilja, en í seinni hlutanum það, sem forsrh. segir, að Íslendingar yrðu að fá til þess að hægt væri að fallast á samninginn. Það á að ganga til samkomulags við Bandaríkin, ef mögulegt væri að fá þjóðina, sem búin er að hafna herstöðvasamningnum, til að fallast á þetta.
Hv. þm. Snæf. hafði sérstaklega orð á því, hvað mundi ske, ef þessi samningur yrði ekki gerður. Það voru voðalegir hlutir. Það, sem ske mundi, væri, að Bandaríkjamenn mundu sennilega vera hér áfram. Eðlilega þyrfti að gera ráð fyrir því. Ég vil benda þjóðréttarfræðingnum á það, að Bandaríkjastjórn var svo nærgætin, að sama daginn sem forsrh. hafði samninginn fyrir þingið, birti hún í blöðum í Bandaríkjunum hótanir um, að yrði samningurinn ekki samþykktur, þá yrði herinn látinn sitja áfram í landinu. En ég er ekki trúaður á það, að þeir yrðu langan tíma í landinu, og ástæðan er sú, að ég álít, að forráðamenn Bandaríkjanna sjái, að það er langt frá því, að styrjöld sé í aðsigi, og þeir hætti við að vera hér. Ég er svo bjartsýnn. Það hefur sætt gagnrýni, að í Bandaríkjunum eru hernaðarfjárlög núna eins há og síðasta stríðsárið, og hefur þess verið krafizt, að þau yrðu lækkuð, og ég held, að það sé ekkert einstakt með Bandaríkin. Það tekur sinn tíma að kippa þessu í lag. Þetta liggur m.a. í því, að hershöfðingjarnir sjá fram á, að þeir eru að missa völd sín, og vilja endilega verða stjórnmálamenn. Þetta er ekki fyrirbrigði, sem á sérstaklega við Bandaríkin, þetta hefur verið svo í flestum löndum og sennilega komið fyrir eftir svo að segja hverja einustu styrjöld. Þess vegna álít ég, að við ættum ekki að fallast á þennan samning. Við viljum vera laus við allar þjóðir, hlutlaus, eins og við vorum fyrir stríðið. Þetta svar er vitanlega það, sem við áttum að gefa, og það hefði borið mestan árangur. Það held ég sé okkur fyrir beztu, að Bandaríkin hafi her sinn áfram eins og er, og ég held, að það væri eins gott og að gera þennan samning. Ég er þeirrar skoðunar. Ég held, að það nái engri átt að gera slíkan samning meðan bandarískur her situr enn hér í trássi
við gefin loforð. Af því gætum við haft þjóðréttarlegan skaða að gera þennan samning. Það hefði átt að vera eitt af þeim atriðum, sem utanrrh. léti sérfræðinga rannsaka, og þá væri sérstaklega þýðingarmikið að leita til norrænu grannríkjanna, því að ég býst við, að samningurinn muni snerta þau, eftir því sem komið hefur fram í blöðum í Skandinavíu, að þær þjóðir gætu e.t.v. orðið fyrir áreitni, sem annars hefði ekki orðið, ef við hefðum ekki gert þennan samning.
Þm. Snæf. lét þess getið, að sú gagnrýni, sem fram hefur komið gegn þessum samningi, væri svona og svona í garð málstaðar Íslands. Þetta sögðu þeir alltaf, eldri þm., konungkjörnu þm. í gamla daga. Í hvert sinn, sem þm. sjálfur gerði aths., þá var alltaf sagt eins og nú er sagt um gagnrýnina á þessum samningi, að það væri verið að veikja aðstöðu Íslands. Og nú kemur þessi þjóðréttarfræðingur og segir, að það sé verið að veikja aðstöðu Íslands. Ég vil minna á, að þessir samningar hafa verið gerðir bæði á bak við mig og Brynjólf Bjarnason, bak við Framsfl., Alþfl. og Sósfl. (Forsrh.: Nei, þetta er ekki rétt, ég svaraði öllum spurningum. Það er ekki erfitt að bera hér úr einkaviðtölum okkar, ef ljúga á af mér æruna). Hv. þm. Snæf. sagði, að við, þm. Sósfl., virtumst hafa gleymt því, að Ísland væri fullvalda ríki. Nei, við höfum ekki gleymt því, því að ef svo v ær i, þá værum við ekki að bjástra á móti samþykkt þessa samnings og hefðum ekkert við hann að athuga, en það er einmitt vegna þess að við vitum, að Ísland er fullvalda ríki, að við getum ekki sætt okkur við þennan samning, og það er ekki fyrst og fremst vegna þess að við erum sósíalistar, heldur er fjöldinn allur af þjóðinni á móti samningi eins og þessum, vegna þess að hún er sannfærð um það, að þessi samningur samrýmist ekki. fullvalda þjóð. Ef þessi samningur yrði gerður, gætum við ekki sagt frammi fyrir nokkurri þjóð Evrópu, að við værum hlutlaus, og ef stríð brytist út að nýju, gætu hinar þjóðir Evrópu komið til með að segja við okkur: Það eruð þið, sem veittuð stórveldi aðstoð til þess að vígbúast og neydduð okkur þannig til að vígbúast á móti. Við mundum því standa mjög illa að vígi, ef við þyrftum að liggja undir slíkri ákæru. Það er því óljákvæmilegt, ef við Íslendingar eigum að geta haldið sjálfstæði okkar, að vera miskunnarlausir gagnvart öllum þjóðum, sem fara fram á herstöðvar á Íslandi. Við verðum að vera fullkomlega og undantekningarlaust miskunnarlausir og segja blátt nei við slíkum kröfum, hvað sem í húfi er. Þetta mál snýst um tilveru þjóðarinnar, og ef svona samningur hefði verið borinn fyrir Dani, Svía eða Norðmenn, þá veit ég ekki, hvað orðið hefði um þann forsrh. þeirra, sem hefði viljað verða við slíkum kröfum. Ég er hræddur um, að ef meiri hl. íslenzku þjóðarinnar féllist á svona samning, þá hafi hún ekki enn þá öðlazt þroska til þess að vera sjálfstæð, og ef til vill væri það þá vegna þess, að hún hefur ekki þurft að fórna nógu miklu fyrir sjálfstæði sitt. Ég hef þó ástæðu til að ætla, að íslenzka þjóðin skilji aðstöðu sína til herstöðvamálsins og skilji þær hættur, sem í þessum samningi felast. Ástæðan fyrir því, að þetta samningsuppkast er nú lagt fram og ætlazt er til, að það verði samþ., er sú, að kosningar eru nú nýafstaðnar og því reiknað með því, að svo langt verði um liðið þegar næstu kosningar fara fram, að kjósendur verði búnir að gleyma þessu máli, og það hefði áreiðanlega enginn þorað að sýna svona samning mánuði áður en kosningar fóru fram í vor. Ég vil undirstrika það, að ég álít, að þjóðin eigi heimtingu á að segja sitt orð um samninginn með þjóðaratkvæðagreiðslu.