03.10.1946
Efri deild: 10. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

12. mál, niðurgreiðsla á verði landbúnarafurða

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. — Ég vildi gjarnan benda hæstv. atvinnu- og landbúnaðarráðherra á það, að almenningur er mjög í vafa um það, hvort nú verði greitt niður kjöt eða ekki. Ég geri ráð fyrir, að hann líti svo á, að eftir 1. gr. l. um áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu, frá 17. apríl 1946, verði kjötið að ganga enn inn í framfærsluvísitöluna á kr. 6.50, og verði því að greiðast niður með kr. 5:35, en mér er kunnugt um það af tali við menn og eftir því, sem mér hefur verið sagt í kjötverzlunum, að kjötsalan er minni en verið hefur, og það er af því, að almenningur veit ekki um þetta. Ég lít svo á, að skyldugt sé að greiða niður kjötið með kr. 5.35, en vildi spyrja að því, hvernig stendur á, að þetta er ekki tilkynnt. Ég skal ekki fara út í þetta meira. Mjólkin er greidd niður um 22 aura, og það er gert þannig, að það er auglýst falskt verð, sem menn borga, og til þess að þetta sé hægt vantar heimild.

Ég vildi, að eitthvað væri sagt um þessa niðurgreiðslu á kjötinu, svo hið háa verð dragi ekki lengur úr sölu þess. Salan í fyrra haust var a.m.k. 1/5–1/3 minni en verið hafði undanfarið, af því hve kjötverðið var lengi í óvissu, og það lítur út fyrir, að þetta endurtaki sig í haust, af því að almenningur veit ekki, hvernig verðið er eða verður, og það tel ég ráðherrans skuld. Allir vita, að því minna, sem selst í sláturtíðinni, því meira þarf að flytja úr landinu. Ég vildi því óska þess, að hæstv. atvmrh. sæi sér fært að auglýsa þetta sem fyrst.