19.12.1946
Efri deild: 39. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (100)
45. mál, menntaskólar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég hefði gjarnan viljað fá upplýsingar varóandi það, sem hv. 1. landsk. hefur sagt hér. Hv. þm. minntist á það í gær, að með launal. hefðu laun menntaskólakennara verið lækkuð óbeint. Nú skal ég ekkert um þetta segja, en hitt vil ég fullyrða, að með launal. voru laun nokkurra manna lækkuð beinlínis frá því sem áður var. Í öðru lagi voru laun yfirleitt ákveðin lægri í launal. en Reykjavíkurbær borgaði sínu starfsfólki. það er hins vegar upplýst mál eftir því, sem hæstv. ráðh. sagði í gær og 1. landsk., að þetta frv. er flutt til þess að færa laun menntaskólakennara í samræmi við það, sem áður var. Lenging vinnutíma þeirra var sama og kauplækkun. Persónulega er mér kunnugt um, að sumum þeirra manna, sem lækkaðir voru í launum með launal., er borgað hærra en l. heimila eða eins og áður. Mér er kunnugt um, að sumum embættismönnum er borgað hærra en launal. ákveða og launin miðuð við það, sem Reykjavíkurbær borgar hliðstæðum starfsmönnum sínum. Ég spyr því:
Hvað er mikið borgað af slíkum yfirgreiðslum? Hvað eru þeir launamenn margir, sem nú taka hærri laun, en launal. gera ráð fyrir? Mér skilst, að þetta með menntaskólakennarana sé einn liðurinn hér í. Ég veit dæmi um, að mönnum við símann er borgað hærra en l. ákveða og fólki á skattstofunni er einnig borgað hærra. Hér getur verið að ræða um miklu stærri hóp, þótt ég viti ekki um það. En mig langar til að fá upplýsingar um það, hvað þessi hópur er orðinn stór.