17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)

239. mál, þjóðleikhús

Jónas Jónsson:

Hv. þm. N-Ísf. viðhafði þau orð um störf n. þeirrar, sem hefur haft þetta mál til meðferðar, að hún hafi athugað málið mjög gaumgæfilega. Ég vil benda hv. þm. á, að í fyrra hafði hann og þessi hv. n. til meðferðar ákaflega mikilvægt stórmál. Þessi n. og þessir sömu menn höfðu til meðferðar héraðsskólana, gagnfræðaskólana og húsmæðraskólana. N. kom sér saman um, að sjálfsagt væri að leggja þá niður sem sjálfstæðar stofnanir og gera þá að ríkisstofnunum, eins og leikhúsið. Og n. sagðist hafa unnið vel, en þó fundust þar nokkrir smíðagallar. Þessar stofnanir eru nú gjaldþrota og í fullkominni upplausn öll þeirra ráð. Þetta var nefnilega ekki athugað gaumgæfilega. Grunnfærnin og vanþekkingin var svo mikil, að búið er nú að eyðileggja hið mikla verk, sem unnið var til að koma þessum stofnunum upp. Nú er t. d. svo komið, að gömul stofnun eins og Blönduósskólinn, sem er búin að basla lengi sem prívatstofnun með styrk úr ríkis- og sýslusjóði, getur ekki staðið í skilum með gjöld til sinna kennara. Þetta kemur af því, að þessi hv. menntmn., sem hv. þm. N-Ísf. var að tala um, að athugaði mál gaumgæfilega, hún hefur athugað þessi mál þannig, að hún eyðilagði stofnanirnar alveg. Ná býst ég við, að næst sé að loka þessum skólum, þar sem ekki er hægt að borga. Auk þess hefur ýmiss konar starfsemi, sem við þessa skóla hefur verið. lagzt niður, svo sem gistihúsarekstur, vegna þess, hvernig menntmn. hefur með málið farið. Ég vil geta þessa vegna þess áhugamáls hv. þm. N-Ísf., að einnig hér verði viðhafður ríkisrekstur.

Bæði hv. þm. og hæstv. menntmrh. hafa talað á móti till. hv. 2. þm. Eyf. og talið hana óframkvæmanlega. Það er nú ekki öðruvísi en það, að nokkurn veginn öll leikhús utan Rússlands eru rekin á svipaðan hátt og hv. þm. Eyf. leggur til. Aftur á móti varð hæstv. ráðh. að játa, að hann vissi ekki nema eitt fordæmi, og það er leikhúsið í Kaupmannahöfn. Og það, sem virðist hurðarás um öxl fyrir Danmörk, það mun verða erfitt fyrir Íslendinga. Leikhúsið hefur verið sá mesta plága fyrir viðkomandi ráðh. í Danmörku vegna látlauss peningaausturs og ósamkomulags ráðh. og leikara. Það var broslegt að heyra hæstv. ráðh. halda því fram, að ég hefði farið með ósannindi, þegar ég gerði lítið úr því, að fordæmi væru fyrir um ríkisrekstur varðandi þessi mál, því að rétt á eftir, að hann hafði sagt, að ég hefði farið skakkt með, þá lýsti hann yfir, að ég hefði farið með rétt mál. Hann varð að játa, að bæði þjóðleikhúsið í Ósló og Svíþjóð væru einkafyrirtæki, þótt ríkið legði þeim til styrk. Það er mikill munur á því, hvort stofnanir verði að bjarga sér og fái hjálp eða hvort þær geti heimtað hjálp. Það er ástæðan til þess, að hvorki Norðmenn né Svíar hafa þessi leikhús í opinberum rekstri. Það er vegna þess, að þeim finnst það of heimskulegt, sem hæstv. ráðh. og hv. þm. N-Ísf. eru að beita sér fyrir. Sem sagt, það hefur ekki verið nóg til af heimskingjum í ábyrgðarstöðum í þessum löndum, til þess að hægt væri að koma þessu fyrirkomulagi á. Ég held, að þótt hæstv. ráðh. sé ekki við, þá hafi hann hér einhvern þann sagnaranda. að hann viti, hvað fram fer. En það er eins og að síðan hann komst í þessa nýju stöðu, þá hafi hann ekki eins fastan grundvöll undir fótum. (EystJ: Hefur hann nokkurn tíma haft það?). Það er gott, að hæstv. ráðh. heyrir þá til mín. Ég vil geta þess sem dæmis um það, hvað þessi ríkisrekstur er erfiður, að hæstv. ráðh. fékk í arf frá fyrirrennara sínum 2 flugvelli með ríkisrekstri. Ég spurði þennan hæstv. ráðh., eins og þm. eiga rétt til, hvað kostnaðurinn væri mikill við þessar stofnanir. Ráðh. brást illa við og vildi ekki svara. Það var auðheyrt, að hann var málinu ekki kunnugur. Nú skal ég fræða hæstv. ráðh. og aðra um, hvernig þessi ríkisrekstur er. Ríkissjóður er nú að byrja 8. millj. vegna kostnaðar við flugvellina hér. Og þó er kostnaðurinn sjálfsagt meiri, því að einhverjar tekjur hafa komið inn á Reykjavíkurvöllinn, sem hér eru ekki reiknaðar með. Þessi ríkisrekstur er hliðstæður við þann, sem hér er verið að ræða um. Þetta er undir eftirliti ráðh., framkvæmdastjóra og alls konar eftirlitsnefnda. En samt var þessi ríkisrekstur ekki betri en það, að þegar forseti Íslands var að fara til útlanda, þá var ekki flaggað, því að engin flaggstöng var til nema fjöl á skúrþaki. Í viðbót við þetta varð forseti, en hann var að fara sér til lækninga, að bíða í bil sínum í klukkutíma, því að ekkert afdrep var fyrir hann. Þetta er nú samt sá ríkisrekstur. sem búið er að kasta 8 millj. kr. í. Þessi hæstv. ráðh. er búinn að vera yfirmaður þessa ríkisrekstrar í marga mánuði, en hefur ekki komið nokkru í lag. Og ég verð að segja það. að þótt ég greiði ekki atkv. með vantrausti á ríkisstj., þá mun ég sjálfur reyna að kenna henni betri siði.

Þá vil ég víkja að einu atriði enn. Hv. þm. N-Ísf. var mjög ánægður með það, að lagt skuli til. að ekki sé ákveðið í l., hvað marga fastráðna leikara megi ráða, heldur gæti menntmrh. gert í því efni sem hann vildi. Þetta fyrirkomulag er svo slæmt, að ég held, að engin þjóð, sem vill hafa nokkra reglu á sinni fjármálastarfsemi, hafi tekið það upp, að ríkisstj. geti fjölgað starfsmönnum eftir vild. Þetta er hér um bil það aumasta ráð, sem hægt er að hugsa sér. Það er ekki hægt að spilla þingræðinu, þar sem 3–4 flokkar semja um stjórnarmyndun, ef ekki með svona fyrirkomulagi. Og þá vil ég segja, að kommúnistar eru í þessu langtum heiðarlegri. Þeir lögðu til að 20 leikarar skyldu ráðnir. Þeir höfðu það þó við að nefna einhverja tölu. Ég held, að menn ættu að minnast þess, að fyrrv. ráðh. kommúnista réð 11–12 menn nýja við atvinnudeild háskólans. Þetta voru allt menn, sem ekkert höfðu gert, nema taka próf og sumir ekki, svo að vitað sé. Svo kom Þjóðviljinn með þá frétt, að menntmrh. hafi tekið 2 menn úr atvinnudeildinni og flutt þá í náttúrugripasafnið. Og svo kom klausa um það, að nú hefði tekizt að spara tvo menn við atvinnudeildina. Ég vona. að hv. þm. N-Ísf., sem nú situr í forsetastóli, verði leystur frá störfum, svo að hann geti svarað fyrir sig og skýrt málið betur. Ég vil nú spyrja hv. þm. að því, hvort honum finnist það of mikið fyrir fólkið í kaupstöðunum utan Reykjavíkur og sveitirnar að fá hlutfallslega það sama og þjóðleikhúsið, meðan verið var að byggja það. Ég vil spyrja hann, hvers vegna honum finnist þetta of mikið, ef ekki eru til nægileg hús í þessu efni. Ef búið væri að sjá fyrir þessu, þá er ekkert við það að athuga, þótt helmingurinn væri tekinn burtu. En sannleikurinn er sá, að það er naumast nokkuð til í þessum efnum. Ég vil spyrja hann, hvers vegna hann telji nauðsynlegt að hafa hér ríkislaunaða leikara, en ekki annars staðar. Og ekki einu sinni leikhúshæf hús úti um land. Er það meining hv. þm., að hjá þessu fólki komi engir hæfileikar fram?

Ef viðurkennt er, að fólk í sveitum og kaupstöðum utan Reykjavíkur hafi eins gott af að njóta leiklistar, en vinna á fyrir Reykjavík eina í því efni, væri þá ekki bezt að flytja t. d. þessar hræður hingað og leggja niður Norður-Ísafjarðarsýslu! (Rödd af þingbekkjum: Þær eru á leiðinni!). Já, en þeir hafa sérstakan fulltrúa að nafninu til, sem kenndur er við þeirra hérað ennþá. Ég vil alls ekki gera þennan mun, sem hv. þm. hlýtur að gera, hvorki telja verri leikaraefni á Ísafirði. Akureyri, Eyjafirði né Þingeyjarsýslu heldur en hér, og heldur ekki álíta, að þar sé lítilfjörlegra fólk, svo að það megi ekki njóta leikskemmtunar.

Þá vil ég spyrja hann að því. hvort hann trúi þeirri þjóðsögu hæstv. ráðh., að nú. þegar leikfélagið hér í Reykjavík er að byrja sitt 51. starfsár, sé kominn svo undarlegur þverbrestur í sál þessara manna, að þegar þeir geta verið lausir frá því húsnæði, sem þeir nú búa við, og eftir að hafa losnað úr „Fjalakettinum“ hér á árunum, og þegar þeim er boðið senn í þjóðleikhúsið fullbúið, hið fallegasta og glæsilegasta hús, sem byggt hefur verið á Íslandi, þá muni þeir neita að fara inn í þetta hús. Ef þetta er satt — en það er nú bara ósatt —, þá væri Leikfélag Reykjavíkur samsafn af „idiótum“, eða edjótum, eins og Laxness skrifar það. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Hæstv. menntmrh. mælti móti því, að þær breyt. yrðu gerðar á frv., sem hv. 2. þm. Eyf. hefur lagt hér fram. Þær breyt. tel ég hins vegar þess eðlis, að þær mundu ganga langt í þá átt að bjarga málinu við inn á sæmilegan grundvöll. Samkv. till. á þskj. 851 yrði leikhúsið sjálfseignarstofnun, og er slíkt engin nýjung hvað snertir rekstur leikhúsa, hvorki hér á landi né úti um heim. Hæstv. ráðh. sagði að leikararnir hér mundu ekki vilja vinna við þjóðleikhúsið, nema þeir væru á föstum, opinberum launum. Slíkt er hægt að bera á borð fyrir börn, en ekki fullorðið fólk. Má á það benda, að öll engilsaxnesk leikhús, stór og smá, og öll leikhús á hinum Norðurlöndunum, að undanskildu einu, eru ekki rekin sem opinberar stofnanir og skora ég á hann að útskýra það eftir mína ræðu, hvernig hægt sé að halda öllum þessum leikhúsum gangandi, án þess að á þeim sé ríkisrekstur. Vil ég hér taka sem dæmi leikhúsið í Bergen. Það er enginn nýgræðingur í sinni grein. Þar voru t. d. Ibsen og Björnstjerne Björnson leikhússtjórar á sínum tíma. Hefur leikhúsið alltaf verið rekið af félagi þar í bæ og notið gjafa og aðstoðar frá einstaklingum og ýmiss konar styrks frá ríki og bæ, en félagið, sem stendur fyrir rekstri þess, hefur haldið með ráðdeild á öllu varðandi rekstur þess, og þess vegna hefur leikhúsið alltaf staðið með blóma. Ég hef áður minnzt á Mikkelsen, sem svo mikið hafði að segja í norsku þjóðlífi og lengi var í stjórn leikhússins í Bergen, að í þau tvö skipti, sem hann kom á norska þingið, reyndi hann aldrei að koma rekstri þess á Bergenbæ eða ríkið. Þessi maður var svo voldugur og áhrifamikill, að hann hefði átt mjög auðvelt með að koma þessu í gegn, en hann var þeirrar skoðunar að frjáls rekstur væri hagkvæmastur.

Þá má benda á það, í hvílíku eymdarástandi allur ríkisrekstur er hér á landi og hve erfitt er að ráða við hann vegna flokkadrátta og flokkshagsmuna. Má í því sambandi minnast á rekstur ríkisútvarpsins undir stjórn hr. Brynjólfs Bjarnasonar fyrrv. menntmrh., en þar lenti í svo hörðu milli Sjálfstfl. og kommúnistafl, út af stjórn þeirra mála, að það átti sinn þátt í því, að Brynjólfur Bjarnason gat ekki haldið áfram að vera ráðh.

Þá finnst mér rétt, úr því verið er að gera upp þessa reikninga og af því að hæstv. ráðh. lét falla orð á þann veg í sinni fyrstu ræðu, að mínar skoðanir í þessum efnum væru ofstækiskenndar, að rifja dálítið upp fyrir honum gang þessa máls frá upphafi. Hæstv. menntmrh. hefur nú og áður skipað sér sérstöðu í þessu máli, og hafa margir áður skipað sér hliðstæðan sess og allir séð eftir því. Ætla ég því að undirbúa hæstv. ráðh., áður en hann strandar eins og allir fyrirrennarar hans, sem haft hafa sömu skoðun. — Það vorum við Páll Steingrímsson, ritstjóri Vísis, sem lögðum til árið 1923, að skemmtanaskattur yrði lagður á til þess að byggja fyrir leikhús í Reykjavík. Frv. um skattinn komst gegnum þingið, en það hefur alltaf verið segin saga, að þetta hefur verið eins og ljós, sem borið er í hvassviðri, því að alltaf hefur átt að drepa þetta ljós. Jón heitinn Magnússon reis upp gegn málinu og árið 1924 gerði hann tilraun til þess að fá því framgengt, að fénu yrði varið til allt annarra hluta, en sú tilraun mistókst. Efast ég ekki um það, að ef Jón heitinn væri hér nú og væri minntur á þetta, mundi hann fyrirverða sig fyrir þessa framkomu sína, því að hann var svo greindur maður, að hann mundi sjá, að hann hafði verið afvegaleiddur. Svo liðu nokkur ár, en á árunum 1927–1929 kom upp nokkuð almennur mótþrói meðal bæjarbúa gegn málinu. Margir embættismenn í bænum sögðu, að búið væri að drepa málið, og síðan var rifizt um stað fyrir leikhúsið og spillt fyrir að fá heppilegan stað undir það. Reynt var að útvega lóð við Fríkirkjuveg 11, þar sem íshúsið er vestan Tjarnarbrúar og uppi á Skólavörðuhæð, en þröngsýnir menn útilokuðu alla þessa staði. Loks sagði n., sem Indriði Einarsson og Jakob Möller áttu sæti í, að ekki væri hægt að útvega neina lóð í þessu skyni nema Arnarhólstúnið. Var reynt að rægja þann stað eins og mögulegt var og draga allan kjark úr n., en ég sagði þá við Indriða: „Ef þið viljið ekki halda áfram, útvega ég aðra menn.“ Var þá hafin bygging leikhússins og var unnið að henni í 2–3 ár. — Síðan kemur stóri slagurinn árið 1932, sem getur verið hæstv. menntmrh. mest til aðvörunar og hv. þm. N-Ísf. Þá var búið að gera samband allra þeirra afla í landinu, sem voru á móti framfaramálum, eins og t. d. leikhúsi og sundhöll hér í bæ. Og þetta samband heimskingja kom sér saman um, að ég væri þröskuldur í vegi þeirra. Þessi nýja stjórn ætlaði að bjarga landinu. Hún gerði tvennt. Hún ákvað að hætta við byggingu sundhallarinnar, og auk þess gerði hún þær breyt. á löggjöfinni frá 1923 um þjóðleikhúsið að fyrirskipa að féð skyldi renna í ríkissjóð og að hætt skyldi við byggingu þjóðleikhússins. — Er áreiðanlega ekki hátt á þeim risið nú, sem næst stóðu að þessu, því að þeir vita nú, að þeir urðu sér til minnkunar með þessu framferði sínu. Þeir héldu, að þessar aðgerðir kæmu illa við mig persónulega og að þeir gætu gert mér skaða með þessu. En sá, sem var ánægður, var Jónas Jónsson, því að þarna stóð þetta steinbákn fokhelt við Hverfisgötu, og héðan í frá var ekki hægt að drepa málið. Fyrir mig sem Íslending hafði það mikla þýðingu, að eitt gott verk hafði hér verið unnið, sem mundi geta haft þýðingu fyrir margar aldir. — Árið 1934 kemur ágætt tækifæri fyrir hæstv. menntmrh. (EystJ), sem þá var fjmrh., til þess að sýna vilja sinn í þessu máli.............

[Hér vantar í hndr. kafla frá innanþingsskrifara, niðurlag ræðu JJ og að því er virðist meginhluta næstu ræðu.]