17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)
239. mál, þjóðleikhús
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
. . . . . . . . Því að þetta frv. er aðallega rammi fyrir ráðh. og þjóðleikhússtjóra að vinna eftir.
Ég vil benda hv. þm. S-Þ, á það, sem óttast eins og ég og fleiri, að þetta geti allt orðið of dýrt, að ég hef sett inn í frv. ákvæði um, að menntmrh. og þjóðleikhúsráð verði að samþykkja tölu fastra leikara og annarra starfsmanna, og er þetta sem eins konar bremsa eða meira í „konservatíva“ átt, því að ég álít, að menn verði að þreifa sig áfram í þessu efni og ráða aðeins í fyrstu fáa fasta leikara og sem allra fæsta starfsmenn.