20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1062)
239. mál, þjóðleikhús
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Þetta frv. fer í kjölfar tveggja annarra, sem komin eru áður í d. og ég hef mælt fyrir áður. Nú er þannig ástatt, að líða fer að því, að þjóðleikhúsbyggingin verði tilbúin, og þarf að setja reglugerð um, hvernig leikstarfsemin skuli fara fram þar. Þetta frv. er ætlað til þess að setja slíka reglugerð fyrir starfsemina, og hefur nú gengið gegnum Nd. og tekið dálitlum breytingum. Ég sé ekki ástæðu til að setja á langa ræðu um þetta, málið mun fá íhugun í menntmn., og mun ég eiga viðtal við n. um nokkur atriði, sem mér eru í hug að tekin verði til athugunar, sérstaklega á þann hátt að tryggja nokkuð meir en í frv. er gert fjárhagslegu hliðina í rekstri leikhússins. Ég leyfi mér að óska eftir, að frv. verði vísað til menntmn.