22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

216. mál, Bernarsambandið

Frsm. (Lárus Jóhannesson) :

Eins og kunnugt er, hefur Ísland ekki séð sér fært hingað til að gerast þátttakandi í Bernarsambandinu, en það er samband milli þjóða um gagnkvæma vernd á rétti yfir bókmennta- og listaverkum. Ástæðan til þess, að þetta hefur ekki verið gert, var náttúrlega áður fyrr aðallega sú, að landið taldi sér það ekki fært vegna fátæktar. Það kaus þess vegna að standa fyrir utan þetta og taka nokkurs konar traustataki erlendar bókmenntir til þýðingar, því að aðallega skiptir þetta máli um þær. En aftur á móti kemur svo það, að af þessu leiðir, að bókmenntir íslenzkra rithöfunda eru réttlausar gagnvart þeim erlendu útgefendum, sem gefa vildu þær út.

Vernd á eignarrétti eða réttindum yfir andlegum verðmætum, eins og rithöfundaritum og þess háttar, kemur miklu seinna til í löggjöfinni en vernd yfir áþreifanlegum hlutum. Og það eru aðeins síðustu tímar, sem veita nokkra víðtæka vernd á nokkru sviði fyrir þeim verðmætum, sem erfitt er eða ómögulegt að meta til fjár. Þessi afstaða Íslendinga til erlendra mennta hefur sætt nokkuð mikilli gagnrýni, sérstaklega á Norðurlöndum, og einkum eftir að farið var að fréttast, að útgáfa bóka væri hér gróðafyrirtæki. Hefur þetta orðið til þess, að erlendis hefur verið skrifað um, að það væri ekki sæmandi menningarþjóð að veita ekki erlendum höfundum vernd fyrir þeirra andlegu verðmæti. Og það munu hafa borizt ýmsar kvartanir út af þessu.

Ég er þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að veita þessa vernd, en ekki að nauðsynlegt sé að ganga í Bernarsambandið. Það er vitað, að stórar þjóðir, eins og Rússland og Ameríka, hafa haldið sér þarna fyrir utan. Þau hafa tekið upp það fyrirkomulag að semja um gagnkvæma vernd andlegra verðmæta við hvert land. Ég hefði helzt kosið, að þessi leið hefði verið farin. En það mun vera þingmeirihl. tryggður fyrir því, að þetta frv. nái fram að ganga, og það er náttúrlega ekki hægt að halda fram því ástandi, sem nú ríkir og er engum til góðs, hvorki útgefendum né rithöfundum. Það hefur því orðið að samkomulagi, að n. stendur óskipt með frv. Í sambandi við þetta kemur millibilsástand. sem verður eftir getu að reyna að koma lögum yfir. Ástand þetta er, þegar menn hafa án leyfis látið þýða bækur eftir erlenda höfunda og lagt í það starf, en síðan ganga Íslendingar í Bernarsambandið og hafa þar með engan rétt til að gefa út þessar bækur. Þess vegna hefur n. orðið sammála um, að eftir 2. gr. frv. komi ný gr., að þeir útgefendur, sem hafa látið þýða erlend verk, hafi forgangsrétt til útgáfu þeirra gegn sanngjarnri þóknun. Ég geri ráð fyrir, að mönnum þyki þetta sanngjörn aðferð. Orsök til þess, að leyfi erlendra höfunda hefur ekki fengizt, er í flestum tilfellum sú, að ekki hefur náðst til þeirra. Prentsmiðja, sem ég er við riðinn, hefur fengið svör við færri fyrirspurnum til erlendra rithöfunda um útgáfuleyfi en þær eru, sem ósvarað var. En allir hafa verið spurðir eða til þeirra leitað.

Það mætti mikið segja um þetta mál, ef tími væri til. En ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, enda forlög frv. ákveðin. Legg ég til. að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem felast í brtt. í nái. á þskj. 954.