30.10.1946
Efri deild: 6. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (113)
23. mál, gjaldaviðauki 1947
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Með þessu frv. er farið fram á heimild fyrir ríkisstj. til að innheimta ýmis gjöld með viðauka fyrir árið 1947. Raunar er hér um endurframlengingu að ræða, og hefur þessi heimild áður verið framlengd, en með þessu frv. er gert ráð fyrir að innheimta fleiri gjöld, en verið hefur.
Í núgildandi l. nær heimildin aðeins til 1.–6. kafla, en nú er ætlazt til, að bætt verði við 6.–8. kafla. Enn fremur sé heimilað að innheimta með 50% viðauka gjöld af innlendum tollvörutegundum. N. virtist ekki breytt út af þeirri venju, sem verið hefur, annað en það, að 6. og 7. kafla aukatekjulaganna er bætt í, ef ekki ber að skilja ákvæðið um 1.–6. kafla þannig, að 6. kafli felist í því. N. áleit rétt. þó að um þessa breyt. væri að ræða, að mæla með frv. óbreyttu.