14.04.1947
Neðri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (1155)
214. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl.
Sigurður Guðnason:
Herra forseti. Ég var búinn að kveðja mér hljóðs um mál það, sem hér liggur fyrir, og hef ætlað að fara nokkrum orðum um þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í frv., frá löggjöfinni, sem áður hefur gilt um þessi mál. Þetta frv. um framleiðsluráð, verðskráningu o. fl. mun að mörgu leyti frekar mega kallast um söluráð og sölunefnd en um framleiðsluráð, og þess gætir um of að mínu áliti, að ákvæði þess eru meira bundin við sölu en að þau séu um skipulagningu á framleiðslunni.
Fyrst 1935 voru sett lög bæði um mjólkursamsölu og verðlagningu á kjöti. Þá var gert ráð fyrir, að neytendur hefðu nokkurn rétt til umsagnar um þessi mál. Í mjólkursölunefnd höfðu neytendur 2 menn af 7, Alþýðusamband Íslands 1 mann og bæjarstjórn Reykjavíkur 1 mann. Þetta fyrirkomulag hélzt til ársins 1943, eða um það bil. Þá hittist svo á, að ég lenti í mjólkursölunefnd frá bæjarstjórn Reykjavíkur, og kom ég þar á einn fund, og þá var tilkynnt, að þessi nefnd væri starfslaus um mjólkursölu, því að það hefði orðið samkomulag um, að mjólkursamsölustjórn tæki það verk að sér, sem mjólkursölunefnd hafði haft með höndum. Þetta hafði þá gefið þá raun — og það er enginn vafi á því —, að þetta væri ekki nema nafnið eitt, því að það var gætt að því, að neytendur hefðu aldrei nema tillögurétt, og voru þeir með smáuppsteyt um málin, og í mjólkursölunefnd a. m. k. varð óánægja fulltrúa neytendanna mjög mikil, en hún fékk engan byr, og afleiðingin af því, hvað neytendur hafa talið þessa hlutdeild í n. lítils virði, er það t. d., að þegar búnaðarráð var skipað — en það var eingöngu skipað af landbrh. og þar með eingöngu af framleiðendum —, þá virðist neytendum — og það með réttu —, að þeir hafi engin réttindi misst, því að þeirra réttindi voru svo sáralítil með því fyrirkomulagi, sem áður gilti, þannig að þeir báru ekki ábyrgð á því ófremdarástandi, sem var í þessum efnum. Með þessu frv. er að miklu leyti verið að taka þetta gamla fyrirkomulag upp. Nú hafa viðskipti neytenda við framleiðendur verið á þá leið í þessum efnum, að verkalýðsfélögin hér í Reykjavík hafa verið fús til samtaka um þetta, en aldrei hefur fengizt virkilegur grundvöllur fyrir því samstarfi. Þegar stofnuð var 6 manna nefndin fræga, þá er enginn vafi á því, að við, a. m. k. í alþýðusambandinu og verkalýðsfélögunum yfirleitt, viðurkenndum, að þar væri farið út á rétta braut. Nú var það ákveðið við stofnun n., að endurskoðaður skyldi sá grundvöllur, sem hún byggði á, en ekki varð þó af því. Afleiðingin hefur orðið sú, að bændur hafa verið það ánægðir með þá útkomu, að þeir hafa alltaf haft það fyrir kröfuorð að fá verð samkv. niðurstöðu 6 manna n. fyrir afurðir sínar, og þeir, sem mest hafa barizt fyrir réttlæti þessu, eru stjórn Alþýðusambands Íslands, þó að menn í því hafi ekki verið alls kostar ánægðir með, hvernig grundvöllurinn var reiknaður. Þar af leiðandi var skipuð önnur nefnd. Ég fyrir mitt leyti álit, að ef framhald hefði orðið á starfi þeirrar n., þá hefði það getað orðið til mikilla bóta, en þá strandaði á bændum og forvígismönnum þeirra, og einmitt þeir agnúar, sem þarna hafa verið á, koma greinilegar fram í þessu frv., m. ö. o., það er um verðlagningu, sem neytendur hafa nokkuð að segja.
Ég er sammála hv. þm. Siglf. og hv. 6. þm. Reykv. um það, að skipun þessarar n. sé byggð á nákvæmlega sömu hugmynd og gamla fyrirkomulagið, ekki hugmyndinni um það, að þarna verði raunhæft samkomulag, heldur hugmyndinni um að koma að hinum pólitísku sjónarmiðum, sem oft og tíðum torvelda eðlilega, faglega samvinnu í öllum málum. Ég hefði t. d. haldið, að Landssamband iðnaðarmanna væri ekki meiri fulltrúi fyrir neytendur í Reykjavík en Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og viðkomandi neytendum í Reykjavík hefði ég haldið, að væri ekkert mismunandi viðhorf til samninga um svona mál eftir því, hvaða atvinnu þeir stunda. En þessi félög, sem eiga að tilnefna fulltrúa í þessa n., eru greinar af Alþýðusambandi Íslands. T. d. telur Sjómannafél. Reykjavíkur 1500 meðlimi, og það er annað stærsta stéttarfélagið í bænum, en alþýðusambandið er samband stéttarfélaga, sem öll hafa sömu hagsmuna að gæta um lífsafkomu meðlima sinna.
Hæstv. forsrh. var að tala um það, að sjómannafélagið hér í Reykjavík væri virðulegt, gamalt félag, sem hefði fyrirmyndarskipulag. Það er rétt, að það er virðulegt, gamalt félag, en ég er ekki viss um, að það hafi neitt fyrirmyndarskipulag. Ég hygg að ef um væri að ræða landssamband sjómanna, þá ættu ekki að ráða í því menn, sem ekki hafa verið á sjó í 10–20 ár. Það væri engin viðhlítandi skipulagning á verkalýðsfélagi, að maður, sem í því er, sé ekki við þá atvinnu, sem félagið á að gæta hagsmuna fyrir.
Það, sem aðallega kom mér til þess að taka til máls um þetta frv., var skýring hæstv. landbrh. á þessu. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að rétt sé, að verð landbúnaðarafurða sé reiknað út af hagstofustjóra, eða þessari nefnd, eftir því sem verkalýðsfélögin hafa náð sínum kjarabótum. Ég er honum alveg sammála í því, að bændur eigi að fá kjör í samræmi við aðrar stéttir þjóðfélagsins, en það er skrýtinn hugsunarháttur við stofnun stéttarfélags, sem á að verða brautryðjandi um hagsmuni félagsmanna sinna, eins og stéttarfélag bænda á að vera, að ákveða, að það skuli vera fyrsta skilyrðið til þess, að félagar í því nái rétti sinum, að það eigi að reikna eftir starfsemi annarra félaga. Hvað hefði yfirleitt orðið úr félagsskap verkamanna. ef hann hefði verið bundinn við það að einhverjir aðrir aðilar í þjóðfélaginu væru búnir að semja sér góð kjör? Það er með öðrum orðum þetta, að reikna bændum tekjur eftir því, hvort verkalýðurinn vinnur vel og hefur góð kjör. Þetta ber vott um það, að þeir menn, sem svona ætla að fara að, hafa enga hugmynd um það, hvernig stéttarsamtök eiga að vera. Ég hef fundið til þess, og tekið það fram áður, að bændur hafa aldrei haft sín félagslegu átök og völd í gegnum annað en löggjöf, en gert sér ákaflega litla grein fyrir því, hvað hinn virkilega félagslegi andi og uppbygging er. Ég viðurkenni, að það er nokkuð erfitt að byggja upp samtök bænda, eins og nú standa sakir, og mér er vel kunnugt um, að erfiðlega blés á móti bændum, þegar þeir byrjuðu að byggja upp t. d. sláturfélagið og búnaðarfélagið en ef þeir hefðu haldið áfram á þeirri braut að berjast við þá félagslegu örðugleika, sem þeir höfðu átt við að stríða, þá væru þeir komnir lengra áleiðis í félagsmálum.
Ég álít, að ef þær breyt., sem gera á með frv. á gildandi löggjöf, verða samþykktar, þá verði að gera nokkuð margar breyt. á frv., og brtt. við frv. hafa þegar verið boðaðar hv. þm., í hv. þd. Þar sem þetta frv. kemur til landbn., mun ég gera þar aths. við ýmsar greinar frv., sem mér finnast athugaverðar.