14.05.1947
Neðri deild: 128. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (1157)
214. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl.
Frsm. meiri hl. (Jón Sigurðsson) :
Frv. það, sem hér um ræðir, er samið og flutt samkvæmt því samkomulagi, sem stjórnarflokkarnir gerðu með sér um afurðasölu landbúnaðarins. Auk þeirra nýmæla, sem um var samið, voru einnig eldri ákvæði felld saman í einn lagabálk. Þegar þetta frv. var lagt fyrir þessa deild, gerði hæstv. landbrh. ýtarlega grein fyrir frv., og ætla ég ekki að endurtaka hana.
Frv. þetta, sem var vísað til landbn., var sent nokkrum aðilum til umsagnar. Svör og till. hafa borizt frá flestum þeirra. Till. þessar hefur meiri hl. tekið til athugunar og reynt að ganga nokkuð til móts við tillögumenn um nokkrar þeirra. En um aðrar hefur orðið samkomulag að láta þær bíða nánari athugunar til 3. umr. Eins og nál. ber með sér, gat n. ekki orðið samferða, og meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. með nokkrum breyt. En hinir nm. munu að sjálfsögðu gera grein fyrir afstöðu sinni.
Ég skal þessu næst gera nokkra grein fyrir þeim brtt., sem liggja fyrir, sem meiri hl. n. leggur fram. Við 1. gr. leggur n. til, að bætt sé inn í, að framleiðsluráð kjósi sér formann til sama tíma. Í álitsgerðunum, sem fram komu, voru aths. þess efnis, að þörf væri að taka skýrar fram um fleiri atriði, svo sem eins og kosningu fulltrúa fyrir mjólkursamsölur úti á landi. En n. lítur svo á, að eðlilegast sé, að bæði það og fleira sé tekið fram í reglugerð, sem landbrh. gefur út og gert er beinlínis ráð fyrir í þessum lögum.
Þá er 2. brtt., að í stað orðanna í 7. gr., „fullnægja óskum neytenda“ komi: fullnægja eftirspurn neytenda.
Þá er í síðari málsgr. 7. gr. vísað til laga um sölu garðávaxta, og taldi n., að betur færi á því að taka þau ákvæði, sem er vísað til, upp í l. sjálf, svo að ekki þyrfti að leita í öðrum l. N. leggur því til, að þessi hluti gr. verði tekinn upp sem ný grein á eftir 7. gr. Sér n. ekki ástæðu til að amast við, þó að sams konar ákvæði séu einnig í öðrum l.
Þá er í 8. gr. leiðrétting, að breyta „af“ í „úr“. Við 15. gr. leggur n. til, að orðið „viðunandi“ í lok gr. falli burt. Það hefur komið fram ósk um, að það héldist, sem verið hefur, að nýtt skyr félli undir skipulagið, og hefur n. fallizt á að taka þá aths. til greina. Við 20. gr. leggur n. til, að fyrir orðin „neyzlumjólk og rjóma“ komi neyzlumjólk, rjóma og nýju skyri — þ. e. ófrystu. Aftur eru allir sammála um það, að um fryst skyr gildi hið sama og um gamalt skyr og ost og slíkt falli ekki undir þessi ákvæði. Að þessari breyt. miða einnig næstu brtt., sú 7. og 8. 9. brtt. er leiðrétting á prentvillu. Við 27. gr. flytur n. till. um nokkuð breytt orðalag. Var aðallega talað um, að framleiðsluráð hefði ekki það vald yfir þessum málum, sem eðlilegt væri og æskilegt. N. féllst á þetta og leggur þess vegna til, að 1. málsl. 1. málsgreinar verði orðaður þannig, að framleiðsluráð hlutist til um, að mjólkurframleiðendur komi sér upp mjólkurstöðvum í þeim kauptúnum og kaupstöðum, þar sem engar eru fyrir eða ófullnægjandi, en er full þörf fyrir að dómi framleiðsluráðs. Af sama toga er spunninn b-liður við sömu gr.: og framleiðsluráð telur þeirra þörf. Loks leggur n. til, að bætt sé inn í 4. málsgr. orðunum: í samráði við heilbrigðisstjórn ríkisins o. s. frv.
Þá kem ég að 11. brtt., sem einnig er fram komin vegna óska, sem lágu fyrir n. frá bæjarráði Reykjavíkur. 2., 3. og 4. till. beindust að því að tryggja neytendum betri vöru og auka öryggi þeirra á því sviði. Með brtt. sínum vildi n. fyrir sitt leyti ganga til móts við þessar óskir. Okkur er það ljóst, að það er ekki síður hagur framleiðenda en neytenda, að varan sé vönduð og að kaupendur séu ánægðir með hana. Að því ber vitanlega að stefna og að því er reynt að stefna alls staðar þar, sem ég þekki til. Það má vel vera, að einhverjum þyki ekki nógu ákveðið tekið hér til orða. Hér er lagt til, eins og yfirleitt í þessu frv., að valdið sé að miklu leyti í höndum framleiðsluráðs. Er ætlazt til, að það gæti hagsmuna bæði framleiðenda og neytenda, því að við lítum svo á, að það sé skylda þess gagnvart framleiðendum líka, vegna þess að það sé báðum hagur. Það er þá fyrst, að n. leggur til, að framleiðsluráð hlutist til um, að fylgt sé fyrirmælum l. og reglugerða um hreinlæti og hollustuhætti við alla meðferð og vinnslu sölumjólkur og að lakari mjólk sé notuð til vinnslu. Tilsvarandi ákvæði þessu hafa ekki verið í mjólkurl., og taldi n. sjálfsagt að taka slík ákvæði upp, enda benti hv. þm. Snæf. á þetta við 1. umr. málsins hér í d. Það að lakari mjólkin sé notuð til vinnslu fyrst og fremst er eðlilegt og sjálfsagt. Og þess verða menn vel að gæta, að jafnvel þótt gætt sé alveg ýtrustu vandvirkni um alla meðferð mjólkur, getur alltaf svo farið vegna ýmissa óhappa, að mjólk, sem fer frá heimilinu sem fyrsta flokks vara, spillist á leiðinni. Þarf ekki annað en mjólkin bíði óeðlilega lengi eða annað þess háttar. En hvað snertir mjólkurgæðin, hygg ég heimilin séu þar langstærsta atriðið, að þau hafi góða aðstöðu til að kæla mjólkina, undireins og mjólkað hefur verið, svo að gerlar þrífist ekki.
Annar liðurinn í þessari gr., sem við leggjum til, er að framleiðsluráð geti krafizt þess, að gerður sé hæfilegur verðmunur til mjólkurframleiðenda, miðað við flokkun mjólkurinnar eftir gæðum, og að mjólk frá framleiðendum, sem tvisvar í röð hefur reynzt í 4. flokki við bláprófun, verði endursend eða synjað móttöku. þar til vissa er fyrir, að úr þessu hefur verið bætt. Það að gera slíkan greinarmun á mjólk munu nú flest félög þegar hafa tekið upp. Tel ég sjálfsagt, að framleiðsluráð fylgi fullkomlega eftir, að þetta verði gert, vegna þess að það er mikilsvert atriði til þess að tryggja mönnum góða vöru, ekki einasta neyzlumjólk, heldur einnig vinnslumjólk. Ákvæðið um það, þegar mjólk hefur tvisvar í röð reynzt í 4. flokki, er einnig nýmæli og talsvert mikilsvert. Ætti það að verða verulegt spor til að tryggja, að skemmd mjólk yrði ekki á markaðnum að staðaldri.
Þetta eru þá þær till., sem n. ber fram við þessa umr. En eins og ég gat um áðan, eru þarna fleiri atriði, sem n. taldi ástæðu til að taka til athugunar. Kom meiri hl. n. saman um að láta þau bíða til 3. umr., ræða við þá aðila. sem að þeim stóðu, og einnig betur innan n.
Áður en ég lýk máli mínu vil ég geta þess, að þetta frv. á að sjálfsögðu sammerkt við aðra lagasmíð, sem er til orðin fyrir samkomulag tveggja eða fleiri flokka. Það er svo um slíka lagasmíð, að enginn fær allt. sem hann hefði kosið sér, en gera má ráð fyrir. að allir fái nokkuð. Ég persónulega hefði kosið, að nokkur ákvæði frv. hefðu verið á annan veg en þau eru. Á hina hliðina lít ég svo á, að að því beri að keppa, að stéttarsamtök bænda taki með aðstoð fulltrúa frá afurðasölufélögum þeirra að sér alla yfirstjórn afurðasölumála landbúnaðarins og skipi landbúnaðarframleiðslunni. Og ég tel, að með þessu frv. sé stigið svo stórt skref að þessu marki, að ég hika ekki við að styðja frv. Og þannig leit einnig búnaðarþing á, þegar málið var lagt fyrir það. Ég er sannfærður um, að þroski bændastéttarinnar er svo mikill og ábyrgðartilfinning þeirra yfirleitt það rík, að þeim sé fulltreystandi til að skipa þessum málum sjálfir með frjálsu vali manna til þessara trúnaðarstarfa. Læt ég svo máli mínu lokið og vænti þess, að frv. fái að ganga áfram til 3. umr.