14.05.1947
Neðri deild: 128. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

214. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl.

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Við 1. umr., þessa máls ræddi ég nokkuð einstök atriði þess. Landbn., sem fékk málið til meðferðar, sendi það til bæjarráðs Reykjavíkur til umsagnar. Umsögn bæjarráðs er prentuð í nál. og þar kemur fram, að það eru 4 atriði, sem bæjarráð taldi nauðsynlegt að fá inn til þess að tryggja hagsmuni neytenda. Eins og greinir í bréfi bæjarráðs, lætur það ekki í ljós aths. við frv. í heild, aðeins við V. kafla þess, um sölu mjólkur og mjólkurafurða, og skal ég ekki heldur fara út í frv. sem heild, en aðeins skýra þær 4 brtt., sem ég flyt hér ásamt nokkrum þm. Reykv.

1. brtt. er við 19. gr. og er viðbót um, að skylt sé að greiða framleiðendum mjólkur hæst verð fyrir 1. flokks mjólk, en stiglækkandi fyrir aðra flokka. Eins og kunnugt er, hefur mjólkursamsalan ekki fengizt til að ganga inn á þessa breyt. á undanförnum árum, og allt til þessa dags er það þannig, að greitt er sama verð fyrir fyrsta og annars flokks mjólk. Þetta ákvæði er tekið upp úr reglugerð um sölu mjólkur og mjólkurafurða, sem nýlega gekk í gildi og er samhljóða 14. gr. í þeirri reglugerð. Hins vegar teljum við nauðsynlegt, að þetta sé sett inn í l.

Það er nauðsynlegt fyrir neytendur, að framleiðendum sé veitt hvatning til þess að framleiða góða mjólk. Meiri hl. hefur gengið þar til móts við okkur með 11. brtt. sinni, en aðeins að nokkru leyti, því að svo segir í till. n., að framleiðsluráð geti krafizt þess, að gerður sé hæfilegur verðmunur til mjólkurframleiðenda. Þetta er aðeins heimild, nákvæmlega eins og stjórn mjólkursamsölunnar hefur. Þess vegna má segja, að þetta geri ekki mikinn mun frá því, sem nú er. Eftir því sem mér er sagt, er töluverður hugur hjá forgöngumönnum þessa máls á því, að gera verðmun eftir gæðum, og gætu þeir þá gengið inn á að lögfesta það.

Við 20. gr. 3. mgr. er brtt. svo hljóðandi: „Skylt er þeim, sem hafa heimild til að selja mjólk, að hlíta þeim fyrirmælum um hreinlæti og hollustuhætti, sem tilskilin eru í lögum, heilbrigðissamþykktum og mjólkurreglugerðum á hverjum tíma,“ en í frv. er þessi skylda aðeins lögð á þá, sem selja mjólk beint til neytenda, en ekki á mjólkursamsöluna sjálfa. Landbn. hefur tekið þessa ósk bæjarráðs upp í því formi, að framleiðsluráði verði falið að hlutast til um þetta, en í þessu sjónarmiði frsm. kemur fram stefnumunur. Hann lítur svo á, að framleiðendur eigi að stjórna þessu, en ég er á þeirri skoðun, að neytendur eigi ekki aðeins að hafa rétt til þess að gera athugasemdir og umkvartanir, heldur eigi fulltrúi þeirra beinlínis að hafa vald til þess að stöðva sölu mjólkur.

3. brtt. er um það. að aftan við 24. gr. komi ný málsgr., svo hljóðandi: „Nú telur héraðslæknir eða heilbrigðisfulltrúi, að sölumjólk sé óhæf til neyzlu, og getur hann þá stöðvað sölu á þeirri mjólk.“ Nú virðist þessir aðilar ekki hafa slíkt vald, en það verður að teljast nauðsynlegt, að slíkt sé lögfest. Ég vil taka það fram í þessu sambandi, að það spáir ekki góðu gagnvart neytendum — þótt ég efist ekki um góðan vilja frsm. n. — það spáir ekki góðu, hvernig reynslan hefur verið af þessu á undanförnum árum í þau 12 ár, sem stjórn mjólkursamsölunnar hefur haft þau með höndum, og enn fremur spáir það ekki góðu, að þeim sérfræðingi, sem með þetta fer, skuli af hv. menntmrh. (EystJ) hafa verið vikið frá störfum, en hann hefur gert aths. við það, hve mjólkin er gömul, þegar hún kemur til neytenda, og hlýtur nú verðlaun fyrir það.

4. brtt. er við 20. gr. frv., að aftan við 1. málsgr. bætist: „Skylt er að veita slíka undanþágu mjólkurbúum, sem bæjarfélög reka eða eru þátttakendur í.“ Nú hefur mjög komið til orða, að kaupstaðirnir sjálfir eða bæjarstjórnir setji upp mjólkurbú. Mér virðist sjálfsagt, að bæjarstjórnirnar fari út í slíkt og að í l. sé ekki heimild, heldur skylda til að veita slíkar undanþágur.

Ég leyfi mér að leggja fram þessar brtt. Ég geri ekki ráð fyrir, að atkvgr. fari fram nú, þannig að þær ættu að geta legið fyrir prentaðar, þegar atkvgr. fer fram.