19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)
214. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl.
Frsm. meiri hl. (Jón Sigurðsson) :
Ég á hér skrifl. brtt., sem er aðeins orðabreyt. til betra máls. Um umr. verð ég að segja, að mér þykir þær nokkuð undarlegar, og sumar staðhæfingar, sem bornar eru fram, eru fjarri öllum sanni. En þar sem klukkan er farin að ganga tvö, ætla ég ekki að elta ólar við það. En ég vil benda á, að það er beinlínis tekið fram í frv., að framleiðsluráð ákveði verðlag í samræmi við þær niðurstöður, sem n. kemst að. Það getur vel farið svo, ef ekki verða tíðar breytingar á þessu verðlagi, að sú vísitala, sem fundin er, geti í fyrsta skipti gilt um fleiri ár. Allan þann tíma, sem slíkt stæði, ákveður framleiðsluráð verðlagið í samræmi við þá vísitölu, sem hagstofan reiknar út á hverjum tíma. Þetta er nákvæmlega sama hugsunin og á bak við löggjöfina. Þegar er verið að ræða um afstöðu bænda, má benda á, að búnaðarþingið samþykkti ákveðin meðmæli með þessu frv., og var ekki eitt einasta atkv. á móti.
Að öðru leyti ætla ég mér ekki að svara hv. þm. S-Þ. Ég hef heyrt þessa ræðu áður og lesið hana líka í „Ófeigi“, og svo býst ég við, að sé um marga aðra. Og þær árásir, sem hv. þm. nú og endranær hefur leyft sér að beina að stéttarsamtökum bænda, mun ég láta sem vind um eyrun þjóta, eins og bændur munu gera yfirleitt. Ég ræði þetta mál ekki frekar. með því að nú er komin nótt. enda þótt full ástæða væri til þess að öðru leyti.