19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

255. mál, eignakönnun

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Að sjálfsögðu hef ég ekki haft tíma til þess að lesa þetta frv. niður í kjölinn, en við lauslegt yfirlit virðist mér það bera fullmikinn svip af aflátssölu. Eins og menn muna, þá greip páfinn í Róm til þess úrræðis að selja mönnum aflátsbréf, til þess að þeir bættu með því fyrir drýgðar syndir. Og hér virðist ríkisstj. ætla að taka upp hið forna ráð og gefa mönnum tækifæri til að kvitta fyrir drýgðar syndir með því að kaupa skuldabréf til 25 ára, enda upplýsti ráðh, það, að tilgangur frv. væri ekki að gera menn seka, heldur að koma þessum málum í betra horf. Mér virtist ráðh. telja sökina liggja aðallega í löggjöfinni, þ. e. skattalöggjöfinni. Það hefur líka komið áður fram hjá ráðh., en þá var mér litið til núverandi menntmrh., en hann mun vera sá maður, sem mestan þátt átti í núverandi skattalöggjöf. Nú vil ég spyrja: Er hæstv. menntmrh. sama sinnis og hæstv. fjmrh., að þessi skattal., sem hann hefur átt mestan þátt í að skapa, hafi verið svo óbærileg, að það hafi verið réttmætt eða eðlilegt, eins og hæstv. ráðh. minntist á, að menn hefðu gerzt skattsvikarar, og sé því nú sjálfsagt að gefa mönnum upp sakir og leyfa þeim að kaupa ríkisskuldabréf? Hér virðist ekki heldur aðeins um það að ræða að gefa mönnum upp sakir, heldur á að koma í veg fyrir, að menn þurfi að syndga framvegis. Og skal það gert á þann hátt að breyta skattal. þannig, að ekki sé mikil hætta á því, að menn freistist til að svíkjast undan skatti vegna ofurþunga laganna. Um þetta vil ég spyrja sérstaklega hæstv. menntmrh. Er þetta hans stefna og stefna ríkisstj.?

Er um það þegar samið að breyta skattal. í það horf að létta stórkostlega skatti af þeim tekjum, sem þeir hafa verið þyngstir á og þar sem fyrst og fremst hefur verið svikið undan? Þessar spurningar vakti ræða hæstv. fjmrh. upp í huga mínum. Og er hæstv. ríkisstj. sammála um þetta? Telur hún, að skattalöggjöfin hafi verið of ströng og því afsakanlegt, þótt menn hafi svikið skatt? Og telur hún, að þess vegna verði að gefa mönnum tækifæri til að komast undan skatti með því að lækka skattana á hæstu tekjunum?

Ég skal ekki fara mikið út í einstök atriði frv. Eins og ég vék að í upphafi ræðu minnar, hef ég ekki haft tíma til að athuga það svo, að ég telji að í botn sé skoðað. Þó koma mér í hug nokkur atriði. Hvernig hyggst ríkisstj. fá yfirlit yfir þá fjármuni, sem Íslendingar kynnu að eiga og hafa falið erlendis? Það þýðir ekki að leyna því, að almenningur trúir því og hefur fyrir því sterk rök, að margir menn og fyrirtæki hafi komið fyrir erlendis gildum sjóðum, mörgum millj. Nú sé ég, að í 5. gr. þessa frv. er tekið fram, að menn eigi að skýra frá því, hvort þeir eigi fé erlendis í erlendri mynt hjá lánsstofnunum eða öðrum. Það er gott og blessað, að menn skuli eiga að skýra frá þessu En ef menn langar nú ekki til að skýra frá þessu, — er þá nokkurs staðar í frv. gerð grein fyrir því, hvernig skuli að því farið að leita að þessu dulda fé? Við fljótan yfirlestur hef ég ekki getað rekizt á það. Ég tel þó hér vera um mjög veigamikið verkefni að ræða í sambandi við eignakönnunina. Þá get ég ekki komizt hjá að minnast á það, að mér sýnist, að svo sé um þessi l. sem raunar flest önnur, að þau séu það, sem þau hafa tog, en það þýðir, að mjög er komið undir framkvæmd laganna. Og hverjir eiga að annast framkvæmdina? Eftir því sem heitið er í 45. gr., er það sérstök n., sem fjmrh. skipar. N. skal skipuð 3 mönnum. Það eru þessir menn, sem eiga að ákveða það, hversu mikið tog l. sé. Það eru þessir menn, sem í einu og öllu virðast eiga að sjá um framkvæmdina. Til þess að sýna fram á, að nokkuð sé undir framkvæmdinni komið, þá tel ég rétt að grípa niður í næstu gr., 46. gr. frv., en þar er m. a. talað um, að framtalsn. geti falið sérstökum mönnum eða matsnefndum að framkvæma mat á vissum eignum eða tegundum eigna, svo sem vörubirgðum, byggingum, skipum, vélum, tækjum o. s. frv. Sem sagt er það á valdi 3 manna, sem fjmrh. skipar, hvaða eignir skulu í raun og veru rannsakaðar eða hjá hvaða mönnum skuli gerð „stikkprufa“, eins og það er kallað á vondri íslenzku, til þess að vita, hvort það stenzt, sem þeir segja. En þeir, sem þessi n. vill sleppa, þeir geta sloppið og þeim verður sleppt, svo að ekki virðist sterklega um þetta búið. Auðvitað átti í þessu frv. að vera skýlaust ákvæði um það, að fram skuli fara rannsókn t. d. á öllum „vörulagerum“ hjá innflytjendum og á ýmsum öðrum eignum, sem nokkurt vafamál gat talizt um, að væru rétt fram taldar. Það eru helzt vörubirgðir, vélar og aðrar hreyfanlegar eignir. Og ég vil spyrja hæstv. ríkisstj., hvort hún telji ekki rétt og eðlilegt að gera þetta ákvæði ljósara og nothæfara. Við þann fljóta yfirlestur á frv., sem ég hef gert, hef ég ekki fundið annað út úr þessu en það, að rannsókn á þessu fari fram, ef þessi 3 manna n., trúnaðarmenn hæstv. fjmrh., ákveða hana, en annars ekki. Ég get ekki rætt um þennan trúnað, sem þessum mönnum er falinn, án þess að minna á þá staðreynd, að hér liggja nokkur heildsölufyrirtæki undir kæru fyrir brot á verðlagsl. og gjaldeyrisl. Og í þeirra hópi er firma, sem hæstv. fjmrh. er meðeigandi í og einn stærsti eigandinn. Ég veit af fyrri reynslu, að þegar þessar staðreyndir eru rifjaðar upp, muni hæstv. fjmrh. bregðast reiður við, en hann um það. Þessar staðreyndir verða ekki fengnar, hvorki með stórum orðum né reiði, eins og komið hefur fram hjá hæstv. ráðh., þegar minnzt hefur verið á þetta mál. En sem sagt, það er vitað, að sá hæstv. fjmrh., sem er eigandi í fyrirtæki, sem liggur undir kæru fyrir að hafa komið undan eignum með því að brjóta tvenn lög, gjaldeyrisl. og verðlagsl., hann á að skipa 3 manna n., sem á að ákveða, hvaða eignir skuli rannsakaðar, og eiginlega, hvernig framkvæmd þessara laga skuli vera. Ég hlýt að benda á þessa staðreynd, og mér finnst það furðulegt, að maður með aðstöðu hæstv. fjmrh. skuli koma með svona ákvæði og leggja þau fyrir Alþ. Ég skal svo ekki fjölyrða um málið frekar á þessu stígi þess. Sjálfsagt verður, eins og hæstv. fjmrh. sagði, hver einstök gr. frv. vandlega athuguð og gagnrýnd hjá fjhn. Mun þá koma í ljós, hvort ríkisstj. vill ganga að því að gera frv. ótvíræðara en það er nú á ýmsum sviðum. Og ég óska einnig eftir því að fá að vita, helzt við þessa umr., hvort þetta frv. sé fyrirheit um það, að á eftir komi frá ríkisstj. frv. um breyt. á skattal., sem verulega létta skattþunganum af þeim tekjum, sem hann hefur hvílt þyngst á, svo að hægt sé að tryggja hrein framtöl, eins og mér fannst, að mætti skilja á ræðu hæstv. fjmrh.