19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1214)

255. mál, eignakönnun

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki að neinu leyti blanda mér í umræður, en það lítur út fyrir, að þeir, sem tala sérstaklega um 17. gr., hafi ekki lesið hana mjög gaumgæfilega. Það hefur verið talað um, að með henni væri sérstaklega níðzt á þeim, sem hefðu komið tiltölulega litlu undan skatti, en þó stendur þar, að af eign allt að 25 þús. kr., sem orðið hefur til fyrir 1940 og þá og síðan hafi verið dregin undan framtali, skuli ekkert gjald greiða. Í öðru lagi, að af eign, sem orðið hefur til eftir 1. jan. 1940 og dregin hafi verið undan framtali, skuli ekkert gjald greiða af fyrstu 15 þús. kr., af 15–25 þús. greiðist 5%, af 25–35 þús. greiðist 10% og af 35–45 þús. greiðist 15%, eða samtals sé greitt af undandreginni eign upp í 45 þús. einar 3000 kr. Og ég get ekki með bezta vilja séð, að sérstaklega illa sé farið með þá, sem tiltölulega litlu hafa komið undan skatti. En það ber vott um, að greinin hefur ekki verið lesin rækilega, að í 3. málsgr. stendur, að af því, sem umfram kann að vera, greiðist skattur samkv. næstu málsgr. En í henni sjást ekki nein ákvæði um skattgreiðslu, svo að sennilega mun ein málsgr. hafa fallið niður, en þessu virðast menn ekki hafa tekið eftir, þegar þeir hafa verið að gagnrýna þessa grein. En meiningin mun vera sú, að það, sem er fram yfir 45 þús., eigi að skattleggjast samkvæmt gildandi skattal. án skattsektar, það er nú öll herkjan.

Ég heyrði, að hv. 6. þm. Reykv. nefndi eitthvað mitt nafn, en ég heyrði ekki, hvað hann sagði til mín. Hitt hef ég heyrt, að hann hefur hér ausið hæstv. fjmrh. auri hvað eftir annað, og sumt af því hefur verið beinar getsakir eða dylgjur um óráðvendni, sem enginn veit til, að hæstv. fjmrh. hafi haft í frammi nokkurn tíma. Því fer mjög fjarri, að ég mæli hæstv. fjmrh. undan sökum, en ég get ekki annað en sagt, að það er sjúkleiki á hv. 6. þm. Reykv. að geta ekki tekið svo til máls, að hann hafi ekki þessi leiðu og mjög óviðurkvæmilegu ummæli um hæstv. ráðh. hér í þinghelginni, en það gerir hann ekki utan hennar, svo að maður verði var við. Það virðist sem hann kjósi að svala fýsnum sínum í skjóli þeirrar verndar, sem hann nýtur hér. Hann virðir hvorki helgi þingsins, þingeið sinn né sóma, og ég hygg, að það sé hvorki honum né flokki hans til framdráttar. Við, dm. allir, erum fyrir löngu orðnir leiðir á þessu, og fyrirlitning okkar á þessu eykst í hvert sinn, sem hv. þm. svalar sér þannig sér og þinginu til smánar.