19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

255. mál, eignakönnun

Finnur Jónsson:

Ég tek ekki þessa áminningu forseta til mín, ég hef ekki svo mikið talað í þessu máli. Það hafa aðrir meira lýst áliti sínu á framferði hv. 6. þm. Reykv. almennt, framferði, sem hæstv. forseti hefði fyrir löngu átt að víta í sambandi við algerlega ósæmileg ummæli þessa þm.

En í sambandi við það, sem hv. 6. þm. Reykv. hefur nú sagt um fyrirtæki það, sem hæstv. fjmrh. er meðeigandi í, hefur komið í ljós, að hann þekkir ekki einföldustu atriði íslenzks réttarfars, að það er ekki skylda sakbornings að sanna sakleysi sitt, þó að hann sé borinn sökum, og þegar hann er að gera kröfur til hæstv. ráðh. og ásaka hann í krafti þess, að þetta fyrirtæki hefur verið borið sökum, þá snýr hann þessari grundvallarkröfu íslenzks réttarfars alveg við, því að það er einmitt hlutverk þess, sem ber annan sökum, að sanna sektina, en ekki öfugt, að sakborningur eigi að sanna sakleysi sitt, en það virðist eins og hv. þm. geri þá kröfu í þessu máli. En það er vitað, að slíkt réttarfar, eins og hv. þm. vill hafa hér, hefur til skamms tíma þekkzt í Rússlandi og aðeins þar. Þar hafa sakborningar orðið að sanna sakleysi sitt. En ég sá í Þjóðviljanum nýlega, að nú væri búið að snúa þessu við í Rússlandi og taka upp það réttarfar, sem tíðkazt hefur á Vesturlöndum síðan á Napoleonstímanum, og ég vona, að hv. 6. þm. Reykv. taki sér þessa réttarbót í Rússlandi til fyrirmyndar.