21.05.1947
Neðri deild: 136. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)

255. mál, eignakönnun

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls var nokkuð vitnað í álit hinnar svokölluðu hagfræðingan. og gerður samanburður á þeim till., sem þar eru, og þessu frv. Af þessu þykir mér rétt, þar sem ég átti sæti í þessari n., að gera nokkurn samanburð á þeim till. og því frv., sem hér liggur fyrir.

Þau rök, sem hagfræðingan. taldi hníga til nauðsynjar eignakönnunar, voru tvenns konar fyrst og fremst. Annars vegar var um að ræða mikla fjárhagslega nauðsyn að afla mikils fjár til framkvæmda, t. d. til áframhalds nýsköpunarinnar, hins vegar er lítið kunnugt um fjárhag borgaranna og enginn grundvöllur til þess að vita, á hvern hátt skyldi innheimta það fé, sem nauðsynlegt var að heimta inn, því að það er alkunnugt, að eignaskattsframtölin eru þannig úr lagi færð, að þau geta ekki kallazt grundvöllur. Einn meginþátturinn í því sem hagfræðingan. lagði til, var að kanna fjárhag borgaranna til þess að vita, hvar rétt væri að bera niður í fjáröflunarskyni, en megintilgangurinn var að vita, hvar skattsvikin ættu sér stað. Það er vitað, að í þessum efnum ríkir hið mesta misrétti vegna mismunandi aðstöðu til að skjóta undan skatti, og þetta misrétti hefur vaxið, eftir því sem lengur hefur liðið. Þótti því rétt að gera tilraun til þess að gera hreint borð og auk þess að ná þessu fé til framkvæmdanna.

Við vildum láta eignakönnunina þjóna báðum þessum sjónarmiðum. Einmitt þess vegna var nauðsynlegt, að eignakönnunin væri framkvæmd þannig, að hún yrði endurmat á öllum eignum, enda nauðsynlegt að meta eignirnar til þess að vita um raunverulega þjóðareign og gjaldþol þjóðarinnar. Þótti þó rétt að taka tillit til þess, að ríkisvaldið er ekki algerlega sýknt saka í þeim skattsvikum, vegna þess hversu lélegt eftirlit þess var með lögunum. Þess vegna er það ekki óeðlilegt, að ekki sé beitt neinum refsingum. Hins vegar væri lagður stighækkandi skattur á skattsvikin. Þó þótti rétt að sleppa fyrstu 20 þús. kr. undan þessum skatti. Þá væri nauðsynlegt, að upplýst væri, hvort skattsvikin ættu rót sína að rekja til skattsvikinna tekna annars vegar og hins vegar skattsvikinna eigna. Okkur voru ljósir erfiðleikarnir á því að komast að raun um, hvernig skattsvikin áttu sér stað. En nm. voru allir sammála um, að það væri hægt. Ég sé ekki ástæðu til að rekja þær till. Þm. allir áttu kost á að kynna sér þær í hagfræðingaálitinu. Þar lögðum við áherzlu á, að eignakönnunin yrði framkvæmd fyrirvaralaust, svo að ekki gæfust tækifæri til undanbragða, eða þau sem minnst.

Þá vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um samanburð á þessum tillögum hagfræðingan. og því frv., sem hér liggur fyrir.

Í fyrsta lagi áleit hagfræðingan. rétt að fá allar eignir taldar fram til skatts. En hér er ekki gert ráð fyrir raunverulegum eignum borgaranna. Hér er ekki heldur gert ráð fyrir skyldulánum og ekki heldur viðaukaskatti fasteigna. Þessi eignakönnun, sem hér um ræðir, hefur því aðeins annan tilganginn af þeim tveim, sem hagfræðingan. hefur gert ráð fyrir. Við í hagfræðingan. lögðum sérstaka áherzlu á að komast að raun um öll skattsvik, hvort sem skattsvikin eru fólgin í peningum, verðbréfum, skattsviknum vörubirgðum og hvers konar eignum, og voru till. nefndarinnar um framkvæmd og tilhögun eignakönnunarinnar einmitt miðaðar við það. Í þessu frv. er hins vegar gengið mjög rækilega og vandlega til verks gagnvart þeim skattsviknu eignum, sem fólgnar eru í peningum, bankainnistæðum og verðbréfum, en hins vegar eru ákvæðin um fasteignir og lausafjármuni yfirleitt því miður ekki eins ýtarleg og æskilegt hefði verið, og virðist fjhn. hafa verið þetta ljóst að verulegu leyti, þótt hún hafi ekki treyst sér til að gera þar verulega breytingu á, taldi það m. ö. o. lítt framkvæmanlegt. Hagfræðingan. hafði gert ráð fyrir sérstökum skatti af skattsviknu fé allt frá 20 þús. kr., og þó væri greinarmunur á eignarskattsvikum og tekjuskattsvikum. Þetta frv. gerir ráð fyrir 15 þús. kr. lágmarki og upp í 45 þús. kr. og að enn fremur sé hægt að kaupa ríkisskuldabréf til 25 ára fyrir þá eign, sem skotið hefur verið undan skatti og getur ekki samræmzt framtali. Það er þess vegna einkum og sér í lagi þrennt, sem mér finnst bera á milli tillagna hagfræðingan. og till. þeirra, sem felast í þessu frv.

Í fyrsta lagi skyldi eftir till. hagfræðingzn. lagður grundvöllur að stóreignaskatti, en hér er ekki gert ráð fyrir honum. Í öðru lagi var framkvæmd eignakönnunarinnar, eins og hagfræðingan. vildi hafa hana, sérstaklega við það miðuð að gera tilraun til að koma meir upp um öll skattsvik, en hér er gengið nokkuð misjafnlega vandlega til verks eftir því, um hvaða eign er að ræða, og skal ég fúslega játa, að fyrir því eru ýmsar frambærilegar ástæður. Hins þriðja mun mér hafa láðst að geta áðan, að hagfræðingan. hafði gert ráð fyrir, að eignakönnuninni væri fyrirvaralítið komið á og mætti ekki dragast, en nú hefur hins vegar orðið á málinu mikill dráttur og getur orðið enn lengri. Og fyrir getur komið, að eignakönnunin verði ekki framkvæmd fyrr en um næstu áramót.

Í samræmi við þetta, sem ég nú hef sagt, má telja, að höfuðgallar þessa frv. séu frá mínu sjónarmiði einkum þessir: Í fyrsta lagi er ekki grundvöllur að sérstökum stóreignaskatti. — Í öðru lagi finnst mér — óábyggilegt, að í umferð séu verðbréf, sem ekki séu framtalsskyld, og ég tel, að það mundi hafa áhrif í fjármálalífi þjóðarinnar, að til séu í umferð eignir, sem lagaákvæði séu til um, að ekki séu framtalsskyld og þar af leiðandi ekki skattskyld, og ég held, að óhætt sé að segja, að um slík lagaákvæði séu engin dæmi til, í nágrannalöndunum a. m. k. — Í þriðja lagi finnst mér óþarflega lítil byrði lögð á þá, sem skjóta undan skatti í mjög stórum stíl. Gengi 1% verðbréfa til 25 ára, miðað við 4%, er 72% og gengið þeim mun hærra, eftir því sem gert er ráð fyrir lægri vöxtum, svo að skattgreiðsla þeirra manna, sem kaupa þessi 1% bréf fyrir hinar skattsviknu eignir, nemur 28% af nafnverði bréfanna. sem þeir kaupa, og minna, ef þeir vilja treysta sér til að kaupa bréfin með lægri rentufæti en 4%. Það liggur í augum uppi, að það er ekki eingöngu, að allar sektir séu gefnar upp, sem ég get fúslega fallizt á, að eðlilegt sé, eins og á stendur, heldur sleppa þeir með mun minni skattgreiðslur en þeir ættu að borga samkvæmt venjulegum skattalögum. Og ég geri ráð fyrir, að um þá sé að ræða, sem skjóta verulega undan sköttum, en á þeim finnst mér óþarflega linlega tekið. Hins vegar er það bót í máli, að bréfin skuli framtalsskyld eftir 5 ár, og hefur það áhrif á þann útreikning, sem ég gat um áðan. Í fjórða lagi finnst mér ekki nægilega ýtarleg ákvæði í frv. varðandi það að tryggja, að upp komist um skattsvik atvinnurekenda, sem eiga margvíslegar eignir, þ. á m. vörubirgðir og fasteignir. Mér er óhætt að fullyrða þetta, enda um það kunnugt, að í ákvæðum eignarskattslaga nágrannalandanna er munurinn ýtarlegri en hér er gert ráð fyrir. Í frv. er að vísu heimild til rannsóknar á fasteignum og vörubirgðum. Það er ágætt, svo langt sem það nær. En þess verður að geta, að verði rannsókn ekki betur eða rækilegar innt af hendi en skattaeftirlitið undanfarið, er því miður stefnt í mikið óefni. Það má benda á, að skattayfirvöldin hafa víðtæka heimild til rannsókna á eignum og framtölum skattgreiðenda. En það hefur komið í sama stað. Það hefur verið bent á það, að óþarfi er að rannsaka skattsvik í sambandi við verðbréfaeignir og bankainnistæður, þar sem bankarnir ættu að geta gefið allt upp um innieigna- og verðbréfaviðskipti. Ef skattayfirvöldunum hefði tekizt að framfylgja skattalögunum, væri öll þessi löggjöf óþörf. Hún er þörf vegna þess, að gildandi skattalöggjafarákvæðum er ekki eins rækilega framfylgt og vera ætti. En hér er allt undir framkvæmdinni komið. Heimildin, sem gert er ráð fyrir í lögunum, er nægileg, ef það er fullkomlega öruggt, að vandlega og duglega verði gengið til verks. En venjulega þykir nú æskilegra fyrir löggjafann að búa svo um hnútana, að þeir, sem með framkvæmdirnar eiga að fara, eigi ekki allt of mikinn kost á að sýna linkind, og hef ég fyrir mitt leyti talið æskilegt, að þeir, sem um framkvæmd þessarar löggjafar eiga að fjalla, fengju nokkru meira aðhald en hér er gert ráð fyrir. — Í fimmta lagi held ég, að ekki sé gerður nægilega skýr greinarmunur á þeirri skattsviknu eign, sem á rót sína að rekja til skattsvikinna eigna, og þeirrar, sem á rót sína að rekja til skattsvikinna tekna. Ég hefði kosið, að ákvæðin um þetta yrðu skýr og því beinlínis slegið föstu, að fullkomlega er réttmæt ástæða til að gera eins gagngerða grein fyrir og unnt er um eignaskattsvik annars vegar og teknaskattsvik hins vegar.

Í sjötta lagi álít ég ákvæðin um, að greiða megi 1% bréfin með verðbréfum, allvarhugaverð. Þeir, sem hafa keypt bréfin, geta unnið upp tapið með því að greiða með bréfum, sem þeir hafa keypt með afföllum. Það er þess vegna því miður mjög hætt við, að þeir, sem ætla að kaupa 1% bréfin, kaupi verðbréf, og þá líkindi til, að takist að fá þau undir nafnverði og greiða síðan með þeim, þannig að þeim takist að skjóta sér undan vaxtabyrðinni, af því að bréfin eru svo vaxtalág, og er þá mjög hætt við, að ríkið fái verðbréf fyrir 1% bréfin, en lítið fé. Er þá ekki að neinu leyti séð fyrir fjárþörf ríkissjóðs, sem ætlazt var til að bæta úr.

Í síðasta lagi finnst mér nokkur ágalli að gera ráð fyrir, að það geti orðið nokkur dráttur á framkvæmd eignakönnunarinnar, og eins og ég sagði áðan, jafnvel allt til áramóta. Og það er vissulega nokkuð langur frestur til að hagræða fjárreiðum sínum í samræmi við það, sem fram mun koma við eignakönnunina. — Þetta eru helztu ágallar frv. frá mínu sjónarmiði. Hitt vil ég taka fram, að að því er ég fæ bezt séð og þekki til að dæma um, er frv. mjög vel samið frá teknisku sjónarmiði, svo vel samið, að ástæða er til að fara um það viðurkenningarorðum.

Þá vildi ég fara nokkrum orðum um það, sem fram kom við 1. umr., að hagfræðinganefndarálitið hefði haft óheppileg áhrif á sínum tíma. Það er fyrst að geta þess, að hagfræðingan. átti alls ekki frumkvæðið að því, að hér færi fram allsherjar eignakönnun. Á Alþingi 1945 fluttu allir þm. Alþfl. svo hljóðandi till. til þál.: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa 5 manna mþn. til þess að gera tillögur um sérstakan skatt á stórgróða, sem fallið hefur í hlut einstaklinga og fyrirtækja á stríðsárunum, og gagngerða eignakönnun í því sambandi“ o. s. frv. Þetta er fyrsta till., sem fram kem opinberlega um nauðsyn þessa máls. Hagfræðingan. á því síður en svo heiðurinn af því að hafa fyrst vakið athygli á því. Auk þess má svo geta þess í sambandi við stjórnarmyndunina á s. l. hausti, að þrír flokkanna gerðu að skilyrði, að eignakönnun færi fram, og voru þessi skilyrði kunn, áður en hagfræðingan. tók til starfa. Hagfræðingan. hélt lengi leyndu áliti sínu, en þm. fengu álitið fjölritað. Eitt dagblaðanna, Vísir, hafði fengið nál. hjá einhverjum, sem átti að fara með það sem algert trúnaðarmál, og skýrði frá ýmsum atriðum, að vísu á villandi hátt, m. a. frá eignakönnuninni. Var þetta gert, áður en stjórnarsamvinnan var til lykta leidd og afstaða tekin til þess, að hve miklu leyti byggt skyldi á till. hagfræðingan. við væntanlega stjórnarsamvinnu. — Ég sé ekki ástæðu til að taka fleira fram í sambandi við þetta, en geri það þá að gefnu tilefni síðar.

Ég vil minnast á afstöðu Sósfl. til þessa frv. Og ég verð að segja almennt, að mér finnst öll stjórnarandstaða Sósfl. vera hvort tveggja í senn með fágætum klaufaleg og máttlaus. Það er svo í þessu frv. eins og öðrum, að gagnrýni þeirra er alls ekki málefnaleg, heldur er hún að mestu leyti flutt í áróðurs stíl, hefur á sér algeran áróðursblæ, en ber að mjög litlu leyti keim af málefnalegri gagnrýni. Það er ágætt, að stjórnarandstaða Sósfl. skuli vera með þessum hætti. Það er sérstaklega ánægjulegt, að vindur sá, sem einu sinni var í Sósfl., virðist úr honum rokinn, að andstaða hans er ekki einungis klaufaleg, heldur og mjög máttlaus. Sósfl. komst í algert undanhald í kosningunum í sumar og lenti í stjórnarandstöðu. Virðist hann nú hafa þá einu meginreglu að vera á móti öllum stjfrv. En svo undarlega vill til, að gagnrýni hans er stundum til vinstri og stundum til hægri. Það, sem sagt hefur verið frá hálfu Sósfl., hafa verið almennar upphrópanir og þó aðallega tilraunir til að leita uppi, hvað hljómar vel í eyrum ýmissa kjósenda. Og þess vegna er gagnrýnt fyrir að refsa skattsvikum og fyrir að refsa þeim ekki. En ekki veit ég, hvernig hægt er að samræma í lögum að ganga hart að skattsvikum og taka lint á þeim um leið. Mér virðist augljóst, að afstaða Sósfl. til frv. miðist eingöngu við það að vera á móti stjfrv. og svo ala á óánægju ýmissa millistéttarmanna. Og þannig ber að skilja ummæli hv. þm. Siglf., sem hann viðhafði við 1. umr. málsins, að eignakönnunin yrði þannig framkvæmd, að öllum almenningi yrði þar sleppt. Voru fyrri ummælin æluð til þess að kynda undir óánægju, sem þeir vita, að muni verða hjá nokkrum hóp kjósenda, en síðari ummælin til þess að friða þá í flokknum, sem heimta róttæka eignakönnun. En þvílíkur málflutningur og frestun eignakönnunarinnar er síður en svo Sósfl. til nokkurs sóma og hefur enn fremur mjög lítil líkindi til að bera nokkurn árangur eða verða flokknum til fylgisaukningar, eins og þó mun vera til ætlazt.

Ég get ekki annað en vakið sérstaka athygli á þeim furðulegu ummælum hv. þm. Siglf., að eiginlega hefði alls ekki átt að gera almenna eignakönnun, heldur sleppa almenningi, og gera þá eingöngu sérstaka rannsókn hjá þeim, sem verulegar ástæður eru til að rannsaka hjá. En hver átti að meta það? Maður gæti látið sér detta í hug, hvernig sú eignakönnun yrði, sem hv. þm. Sósfl. hefur viljað skapa, ef hann hefði fengið að ráða. Maður fer að halda, að fyrst svona ummæli koma frá hv. þm. Siglf., að alvaran hafi ekki verið mjög mikil um eignakönnunina, sem sett var fram í sambandi við stjórnarmyndunina. Þeir hafa talað verulega um þann drátt, sem orðið hefur á málinu, og kvartað yfir honum. Þeir vita, að Alþfl. lagði fram þáltill. um þetta 1945. Mér er ekki kunnugt um, að Sósfl. hafi sýnt málinu neinn óhug, hvorki á þingi né heldur í ríkisstj. Og nú kórónar hv. þm. Sósfl. með því að leggja til, að eignakönnuninni verði frestað, undir því yfirskini, að hún sé ekki nægilega undirbúin. En flokknum er fullljóst, að verði hún ekki gerð nú, verður hún aldrei gerð, svo að það, sem dagskrártill. hv. þm. Siglf. þýðir, er, að aldrei fari fram nem eignakönnun.

Að lokum vildi ég segja þetta, að þótt ég sé ekki ánægður með þetta frv., tel ég betra, að það nái fram að ganga, heldur en engar ráðstafanir séu gerðar. Ég tel eftir það umtal, sem orðið hefur um eignakönnunina, og þann mikla þátt, sem hún hafði átt í stjórnarmynduninni. að henni beri að hraða sem mest.

Sem einn nm. í hagfræðinganefndinni hef ég gert grein fyrir, hvernig ég álít, að eignakönnun eigi að vera, en þetta frv. er ekki í samræmi við það, og er ekki um það að sakast. Þetta frv. er niðurstaða samninga milli þriggja flokka, og er enginn þeirra fullkomlega ánægður með það. Ég hef þegar gert grein fyrir minni skoðun á þessum málum, og er hún önnur en fram kemur í þessu frv., en þar sem það er flutt af mínum flokki ásamt öðrum, mun ég ekki greiða atkv. gegn því, og mun ég sitja hjá við atkvgr. um það.