21.05.1947
Neðri deild: 136. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (1224)

255. mál, eignakönnun

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Herra forseti. Hv. minni hl. hefur gert grein fyrir afstöðu sinni til þessa frv. og sagði, að hér væri um stærðar bákn að ræða. Ég get ekki fallizt á það, því að það er ekki stærra bákn en árlegt eftirlit með skattaframtölum. Hv. minni hl. heldur því samt fram, að kostnaður við framkvæmd þessara laga muni nema um 10 millj. kr., en kostnaður við Skattstofu Reykjavíkur og skattanefnd er um 530 þús. kr., og með þeirra hjálp ætti kostnaðurinn ekki að fara fram úr því. Hér er því um stórlegar ýkjur að ræða hjá hv. minni hl., en þó hikar hann ekki við að leggja til, að almenn birgðakönnun sé látin fram fara. En ef svo yrði gert, þá þyrfti að skipta þjóðinni í tvo hópa, sem leituðu þjófaleit hvor hjá öðrum. En meiri hl. leggur til, að það sé gert, sem framkvæmanlegt er. Hv. minni hl. lýsti mjög átakanlega hinum berhöfðaða skattsvikara, en ef hann hefur svikið undan skatti, þá á hann 45 þús. kr. Þetta er þá smælinginn. Hv. þm. lagði áherzlu á, að óforsvaranlegt væri að stimpla þessa menn sem skattsvikara. En í núv. löggjöf er mönnum sleppt við sektir. Árið 1926 voru framtöl leiðrétt stórlega, án þess að menn væru stimplaðir skattsvikarar. Öll þessi vorkunnsemi kemur því úr hægri áttinni, en ekki úr þeirri vinstri.

Hv. minni hl. telur einnig höfuðljóð á þessu, að margir munu kaupa verðbréfin, en ég fæ ekki séð, að mönnum sé það nokkur vorkunn, og ég er ekki hræddur um, að þessi bréf valdi fjármálaspillingu, því að þau eru lægri en nafnverð. Ég skal svo ekki eyða mörgum orðum um þetta, en útásetningar hv. minni hl. eru skýr vottur þess, að frv. er vel samið, enda hefur hv. minni hl. ekki flutt brtt. við það, og efast ég ekki um, að það kemur að gagni, þó að hv. minni hl. leggi til í sínu nál., að því sé frestað. Einnig veldur þetta frv. því, að það fé, sem hefur verið skattsvikið, hefur ekki eins truflandi áhrif og það hefur haft, og svo, að framtöl verða að miklum mun réttari en áður, og enn fremur, að ríkissjóður mun fá nokkurt fé til framkvæmda sinna. Ég þarf svo ekki að hafa þessi orð fleiri. Hv. minni hl. hefur að ýmsu leyti stutt frv. með röksemdafærslu sinni.