18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (124)

23. mál, gjaldaviðauki 1947

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. — Hv. frsm. fjhn. og form. er ekki staddur hér í hv. d. Vil ég því segja nokkur orð um þetta mál, svo að það geti haldið áfram göngu sinni gegnum þingið. — Það er nú svo, að fjhn. þessarar hv. d. hefur ekki orðið alls kostar sammála um, að frv. þetta gangi fram óbreytt, eins og það er, en er þó sammála um framgang þess í meginatriðum. Fjhn. leggur til, að frv. verði samþ., að svo miklu leyti sem það framlengir fyrri lagaákvæði í þessum efnum. En í frv. þessu, eins og það liggur fyrir, er tekinn til viðbótar því einn kafli l. um aukatekjur ríkisins frá 1921, sem ekki hefur verið áður í l. tilsvarandi þessum, en gert er nú ráð fyrir í þessu frv., að honum sé bætt inn í þessi l. En við athugun þessa máls í n. sýndist nm., að ástæðulaust væri að taka þennan kafla hér inn í þessi l. Þetta er VII. kafli l., um það, að hækka megi með 50% viðauka ýmis gjöld, sem nm. sýndist ekki þess eðlis, að ástæða væri til að breyta ákvæðum um frá því, sem áður hefur verið. Þessi gjöld eru ýmis skipagjöld, skipstjóraskírteini og fleiri gjöld, svo sem gjöld í sambandi við sjóferðapróf og slíkt. N. áleit ekki ástæðu til að gera breyt. á þessu frekar nú en áður og leggur því til, að frv. verði samþ. með þeim. breyt., að tekið verði út úr því, að hækkuð verði gjöld samkv. þessum VII. kafla l. nr. 27 frá 1921, um aukatekjur, en að öðru leyti verði frv. samþ. óbreytt.