22.05.1947
Efri deild: 141. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
255. mál, eignakönnun
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það eru víst fá mál, sem vakið hafa svo mikla eftirtekt af landsmálum sem þetta frv. Ég vil ekki tefja fyrir gangi málsins. En ég vildi þó láta mína skoðun í ljós um nokkur einstök atriði þess. Í fyrsta lagi er 1. kafli frv. lítið annað en hrein yfirlýsing frá Alþ. um nýja skatta. Hér er nú svo komið, að það er að verða hreint öryggisleysi í skattamálunum. Ég þarf ekki að fara langt út í þetta mál. En síðan skattalögin voru sett, hefur árlega, sí og æ, verið að breyta skattalöggjöfinni. Og hefur þá ávallt sú skattalöggjöf, sem sett hefur verið, verið látin verka aftur fyrir sig. Það hefur verið komið aftan að skattþegnunum, þótt þeir væru búnir að greiða skatt samkv. lögum. Þegar ný skattalög eru sett, verða þeir svo að borga annan skatt. Þegar lög voru sett um síðustu breyt., ég hygg, að það hafi verið 1941, þá var komið svo langt, að við lá, að allt væri tekið af mönnum, og að atvinnuvegunum var búið svo, að þeir fengu ekki meir en 6 prócent af sínum fyrirtækjum. Ég hygg, ef menn athuga skattalöggjöfina, að þeir komist að raun um hið sama. Allt þetta hefur leitt til þess, að menn hafa ekki talið fram og það í svo stórum stíl, að ekki hefur verið ráðið við það. Nú er farin ný leið. Þetta frv. gefur ekki fyrirheit, það er aðeins tilraun til að koma í rétt horf framtölum. Og ef menn verða við þessari ósk Alþ., þá er það ágætt. Ef þeir ekki gera það, þá stöndum við í sömu sporum. Ég tel ekki, að þetta sé nein bót fyrir skattalöggjöfina sjálfa. Og það mun því miður reynast svo í framkvæmdinni. Útgáfa skuldabréfa, eins og getið er um í 1. kafla frv., er til þess að ríkið fái til alllangs tíma undandregið fé til láns. Það mun sýna sig hins vegar, að það mun verða tæmandi. Menn hafa alls konar tækifæri til þess að koma eignum sínum undan. Og það mun því ekki koma að þeim vonum, sem gert er ráð fyrir, með endurheimtun réttmætra skattgreiðslna. Ekkert af þessu er til þess að laga það, sem óumdeilanlega þarf að laga í löggjöfinni.
Um annan kafla, um sérstakt framtal eigna og tekna, vil ég benda á það, að það er ekkert nýtt í þessum kafla annað en það, að það skuli raunverulega framkvæma þau lagaákvæði sem nú gilda um skattaframtal. Hann gæti því fallið úr frv., ef framkvæmd væru þau skattaákvæði, sem nú eru í lögum. En þrátt fyrir skattstofu og skattdómara þá hefur samt sem áður hver ríkisstj. veigrað sér við að láta beita skattal. Það voru nokkrar tilraunir gerðar á árunum fyrir stríðið. Þá var fyrirskipað, að bankar og sparisjóðir skyldu gefa upp innieignir. Það varð til þess, að menn stóðu í hópum fyrir utan Landsbankann til þess að hirða sínar innieignir, og var það næstum því búið að velta bankanum. Ef fjmrh. hefði gefið upp, að hann ætlaði að framkvæma þessi fyrirmæli, þá hefði það orðið til að stöðva öll viðskipti í landinu. Það er einnig vitað, að bankarnir og skattyfirvöldin hafa séð síðan í gegnum fingur sér um það ákvæði, vegna þess að þau hafa séð hættuna, sem þjóðinni stafaði af því, að féð væri tekið, eins og l. mæltu fyrir um, svo að ég sé ekki, að þessi kafli hafi neitt gildi, þessi ákvæði eru í lögum.
Um þriðja kafla, um innköllun peningaseðla Landsbanka Íslands, er það að segja, að það er nýmæli, sem ég tel eiga fullan rétt á sér. Ég teldi rétt að innkalla alla seðla, þótt það væri ekki til annars en að fullvissa sig um, hve mikið hefði glatazt af seðlum. Ég geri ráð fyrir, að þessi ákvæði í l. gefi drjúgar tekjur til ríkissjóðs. Það hlýtur að hafa tapazt stórkostlega af seðlum, sem gefnir hafa verið út, síðan síðast var kallað inn. Sumt hefur verið flutt til útlanda með setuliðinu, og nokkuð hefur tapazt með þeim þegnum íslenzkum, sem fóru í hafið á sínum tíma, í brunum o. s. frv., svo að hér hlýtur að koma fram stór fúlga. Hins vegar er ég ekki viss um, og vil biðja fjhn. að athuga það, hvort það væri rétt að láta 2% af seðlafjárhæð þeirri, sem í umferð er á framtalsdegi, falla til Landsbankans. Ég vildi gjarnan fá upplýsingar um það, hvað þessi fjárhæð gæti numið miklu, hvort það yrði kannske allt það fé, sem væntanlega fengist við innköllun seðlanna, því að 2% af seðlaveltunni er ekki svo litið fé. Ég tel ástæðu til að athuga, hvort þessi tala ætti ekki að breytast eitthvað. Ég tel, að þjóðbankinn eigi ekki að hafa megnið af þeim gróða, sem hér fellur til. Ég legg til, að það falli til ríkisins. Hins vegar ætti bankinn að hafa fyrir þeim kostnaði, sem hann hefur við að láta prenta og gefa út nýja seðla. Í sambandi við þetta vil ég koma inn á það, að ég hefði talið, að það væri tímabært að athuga, endurskoða og breyta l. um seðlaútgáfu, vegna þess að seðlaútgáfa landsins hlýtur að verða byggð, ekki á innistæðum, sem þjóðin eignast á hverjum tíma erlendis, heldur á útflutningsverðmæti á hverjum tíma.
Fjórði kaflinn, um nafnskráningu á innistæðum í lánsstofnunum, hygg ég, að verði þau fyrirmæli í frv., sem koma harðast við almenning, og þá helzt hið fátækara fólk, því þó að því sé leyft að hafa frjálsa nokkra upphæð, þá tel ég samt of lítið gert að því að hafa það eins og það ætti að vera. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að sparsjóðsinnieignir hafa á þessum árum verið mikil lyftistöng undir allar framkvæmdir í landinu. Þjóðin á miklu meiri skyldur við þetta fólk en hún gerir sér almennt ljóst. Ef fólkið vildi ekki spara þetta fé og leggja það inn í sparisjóði, hvernig stæðu þá bankarnir eða peningastofnanir með að lána út til hinna ýmsu framkvæmda? Ég hefði talið nær, að allt fé, sem er í hreinum sparisjóðum, væri algerlega skattfrjálst, ekki eingöngu við þessa innköllun, heldur ævinlega. Það er ekki lítill skattur, sem þetta fólk leggur til í ríkissjóð og til þjóðarinnar, þegar það lánar þjóðfélaginu sína peninga með ekki hærri vöxtum en hafa verið þessi ár. Þess vegna er það frá mínu sjónarmiði rangt að minnka áhuga fólks með l. til þess að spara fé. Ég er ekki þeirrar skoðunar, sem kom fram í flokksblaði framsóknarmanna um daginn, að sem betur fer væru fáir og hefðu verið fáir milljónamæringar á Íslandi. Ég er þeirrar skoðunar, að bezt væri, að allir Íslendingar væru milljónamæringar. Ég hef aldrei skilið þessa hugsun, að það væri þjóðinni fyrir beztu að eiga sem fæsta efnamenn og sem flesta fjárhagslega aumingja. En sannleikurinn er sá, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, er runnið undan rifjum þeirra manna, sem árum saman hafa haft þann hugsunarhátt, að þjóðin skuli eiga sem minnst og sé sem aumust.
Hið sama er að segja um menn, sem hafa keypt ríkisskuldabréf. Hvar væri ríkissjóður staddur, ef þegnarnir hefðu ekki keypt ríkisskuldabréf með lágum vöxtum? Fyrir þetta fé hefur verið ráðizt í að byggja t. d. Sogsvirkjunina og margar aðrar stórkostlegar framkvæmdir. Nú finnst mér þingið höggva of nærri þessum mönnum, jafnvel þótt þeir eigi að fá 1½% af þessu. Þetta eru þeir, sem nú eru á Tímamáli kallaðir braskarar, heildsalar og auðkýfingar. Langsamlega mest af þessu fé liggur hjá almenningi í landinu, og tel ég því vafasamt, hvort rétt er að höggva svo nærri því eins og hér er gert.
Ég vil í sambandi við 17. gr. frv., eins og hún er eftir breyt. í neðri deild, leyfa mér að benda hv. fjhn. á, hvort ekki þarf hér athugunar. Þar segir að af 25000 kr., sem sannanlega hafa verið til fyrir 1. jan. 1940. skuli ekkert gjald greiða, en af því, sem umfram er, greiðist skattur samkvæmt gildandi skattalögum. Svo kemur rétt á eftir, að það skuli ekkert greiða af 15000 kr., af 15000–25000 kr. greiðist 5%, af 25000–35000 kr. greiðist 10%, af 35000–45000 kr. greiðist 15%. Mér skilst því, að ef einhver maður á 100 þús. kr. og gefur aðeins upp 25000 kr., en síðan finnst hjá honum 75000 kr., — mér skilst, að þá geti hann ekki fallið undir þetta. Vil ég biðja n. að athuga þetta. Sama er að segja um breyt., sem gerð hefur verið á þskj. 943 við 4. gr. Þar er settur inn nýr framtalstími, þannig að sölutími bréfanna verður frá 1. júlí til 15. ágúst í stað 15. júní til 1. ágúst. Vil ég biðja n. að athuga, hvort þessi tími er ekki of stuttur.
Í sambandi við fjórða kafla frv. vil ég benda á, að ef þetta á að verða nokkuð annað en pappírsgagn, þá er alveg óskiljanlegt annað en að annaðhvort verði þetta að koma ákaflega mismunandi niður á þegnum þjóðfélagsins eða þá að veita verður hlé frá öllum störfum svo og svo langan tíma til þess að gera það, sem á að gera. Ef telja á allar vörubirgðir í landinu og meta allar eignir, þá held ég, að sé vafasamt, hvort það gæti ekki tekið 2–4 ár. Ef á að gera þetta í sambandi við þennan lagabókstaf, þá verður að gera annað tveggja: að gera talningu til reynslu einhvers staðar og einhvers staðar af handahófi eða það verður að stöðva alla framleiðslu þjóðarinnar til þess að gera þetta verk, sem hér er ætlað að gera. Hið sama mætti segja um skattaákvæðin almennt, að ef ætti að framfylgja þeim eins og ætlazt er til, þyrfti svo mikið af fólki, að það mundi fara mikið af þeim sköttum, sem næðust, í laun. Ég vil svo ljúka máli mínu með því að álykta, að þetta frv. verði ekki til þess að bæta úr þeim sjúkleika, sem er í skattalöggjöf þjóðarinnar. En það kann að verða til þess að opna betur augu löggjafans fyrir því, að þetta er ekki réttasta og eðlilegasta leiðin til þess að fá menn til að hætta að svíkja skatt. Hér er verið að reyna að taka menn í eitt skipti, og þeir, sem bezt vita, hversu mikið öryggisleysi hefur verið í skattalöggjöf þjóðarinnar undanfarin ár, þeir munu sjálfsagt margir ekki bíta á þá nýju beitu, sem hér er látin út. Ég hygg, að því miður hafi allt umtal um þetta mál gert okkur meira ógagn en frv. sjálft kann að geta vegið upp aftur, þó að það verði að lögum. Ég mun greiða atkv. með frv., en alveg sérstaklega til þess, að menn nú fái þó a. m. k. að reyna, að þessi stóradómsaðferð, sem var hér viðurkennd á 17. öld. sé ekki til þess fallin að koma hinni sjúku skattalöggjöf í það horf, sem hún á að vera.