28.11.1946
Neðri deild: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það var rætt um mál þetta í fjhn., og gat ég ekki orðið sammála meðnm. mínum um afgreiðslu á því. Ég álít, að það hefði verið heppilegra, að Alþ. hefði nú tekið fyrir viðskiptaráð, hvernig það hugsar sér það framvegis. Það er reynsla, að það hefur aldrei verið farið að vinna að þessum málum, fyrr en komið var að því, að l. um viðskiptar að áttu að falla úr gildi. Það fékkst ekki í fyrra að fá fram þær breyt., sem mjög margir álitu heppilegar á þeim l., og nú hefur þessum málum ekki verið hreyft, fyrr en komið er að því, að l. eigi að falla úr gildi, en þá kemur fjmrh. með till. um, að því sé breytt þannig, að það sé ótakmarkað, hve lengi það er látið gilda. Hins vegar er vitað, hve mikil óánægja er með viðskiptaráð. Hefði ég því kosið, ef það hefði verið framlengt nokkuð, að það hefði verið styttri frestur en til 1. febr., því að mín reynsla er sú, að það sé aldrei farið að vinna að þessu, fyrr en komið er að því, að þetta falli úr gildi, og álít ég, að hefði verið heppilegra, að að því hefði verið unnið fyrir nýárið. Því hef ég verið fylgjandi styttri fresti. Ég mun þó ekki bera fram brtt. um þetta til þess að tefja ekki fyrir, ef ljúka á afgreiðslu málsins í dag.