28.11.1946
Neðri deild: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1305)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Fjmrh. (Pétur Magnússon) :
Það er rétt, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það er ekki langur tími til að athuga þetta mál nú, þar sem það er seint borið fram. En honum er kunnugt um, hvernig á því stendur. Hann veit, að þetta er eitt af þeim málum, sem stendur í sambandi við væntanlega stjórnarmyndun, og að það er ekki fyrr en nú, þegar séð varð, að ekki yrði úr stjórnarmyndun, að ég taldi ástæðu til að koma með þetta mál.