29.11.1946
Efri deild: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Þegar l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð voru framlengd á síðasta þingi, var sett ákvæði í 9. gr. l. þess efnis, að l. skyldu falla úr gildi 1. des. 1946. Það munu ekki vera skiptar skoðanir um það, að það hefur ekki orðið sú breyting á, frá því l. voru sett 1946, að óhætt sé að leggja niður þá tilhögun, sem verið hefur um innflutnings- og gjaldeyrismeðferð, og það munu heldur ekki skiptar skoðanir um það, að nauðsynlegt sé að halda áfram einhverri stofnun, sem hafi þessi mál til meðferðar. — Að tilhlutun fjmrn. var borið fram frv. í hv. Nd., þar sem lagt var til, að 9. gr. l. yrði felld úr gildi. Afleiðing þessa varð þá sú, að l. voru framlengd óbreytt um óákveðinn tíma. Hv. Nd. vildi ekki fallast á að framlengja l. um ótiltekinn tíma, og er því lagt til, að l. þessi falli úr gildi 1. febr. 1947, og er hugsunin með þessari breytingu sú, að endurskoðun fari fram á 1. fyrir þann tíma. Ég verð að segja það eins og það er, að ég álít það orki mjög tvímælis, hvort ástæða sé til að tímabinda l. að nýju, því að vitanlega hefur hv. Alþ. það í hendi sér að endurskoða l. án tillits til þess, hvort þau eru tímabundin eða ekki, og get ég því tekið undir með hv. 1. þm. Eyf. (BSt), hvað snertir þá tilhögun, sem ríkir í þessum efnum, sem sé, að hún orkar mjög tvímælis. Þau einu rök, sem færð verða fyrir þeirri tilhögun, sem komin er á í þessum efnum, eru þau, að ef lagasetning orkar tvímælis, en ákvæði er í l. um niðurfelling þeirra, þá minnir það hv. Alþ. á árlega endurskoðun þeirra, en ég hef þó enn sem komið er fellt mig við, að l. verði afgreidd á þann veg, sem hv. Nd. hefur gert. — Auk þessara breyt. er svo lagt til, að gerð verði ein smábreyt. á 6. gr. l. Þau ákvæði hafa gilt fram að þessu, að leyfisveitingagjald er greitt, um leið og varan kemur, og innheimt af tollstjóra, um leið og tollur er greiddur. Það hefur borið á því frekar en áður, að menn hafa sótzt eftir að fá gjaldeyrisleyfi, án þess að séð verði, að þeir hafi tryggt sér að fá vöruna keypta og fá útflutningsleyfi fyrir vörunni frá því landi, sem þeir ætla að flytja inn frá. Þetta hefur því orðið til þess, að miklu fleiri gjaldeyrisleyfi eru í umferð heldur en æskilegt væri. Því er hér lagt til, að leyfisveitingagjaldinu verði breytt á þann veg, að það greiðist um leið og leyfi er afhent. Þetta mun verka á þann hátt, að menn munu sækjast síður eftir að fá leyfi, nema þeir hafi nokkuð góðar vonir um að geta fengið vöruna keypta og fengið útflutningsleyfi fyrir henni frá viðkomandi landi. Ég ætla því, að þessi breyt. á l. sé til bóta. — Eins og ég gat um áðan, þá falla l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð úr gildi 1. des. næstkomandi. Það má segja, að óþarflega lengi hafi dregizt að koma fram með frv. um framlengingu á l., en ástæðan til þess er, eins og hv. þm. munu renna grun í, að þetta er eitt af þeim málum, sem allmikið hefur verið rætt um í sambandi við stjórnarmyndun, og þótti því ekki ástæða til að bera fram frv. um framlengingu l. þessara, fyrr en séð yrði fyrir endann á því, hvort stjórnarmyndun tækist fyrir mánaðamót, en sem kunnugt er nú, að verður ekki úr fyrir þann tíma. Ég vil því bera fram eindregin tilmæli til hæstv. forseta, að hann setji fund að þessum fundi loknum og taki þá málið fyrir. Ég skal geta þess, að málið hefur verið til athugunar hjá fjhn., og vil ég því mælast til, að málið verði afgreitt, án þess að því sé vísað til n. En ef hv. d. fellst ekki á það, vil ég mælast til, að hv. fjhn. afgreiði málið tafarlaust. En ef hv. d. felist á, að ekki þurfi að vísa málinu til n., vildi ég mælast til þess við hv. forseta, að hann setti fund þegar að þessum loknum og tæki málið á dagskrá, því að nauðsyn er, að l. fái staðfestingu þegar á morgun.