29.11.1946
Efri deild: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Það var aðeins lítils háttar fyrirspurn til hæstv. fjmrh. í sambandi víð þetta mál, ef það fer ekki til n. Gert er ráð fyrir, að l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð falli úr gildi 1947. Venja hefur það verið í viðskiptaráði, að gjaldeyrisleyfi séu veitt snemma á árinu, jafnvel í janúar, fyrir fyrri helming ársins. Ef á að breyta þessu, vildi ég vita, hvort viðskiptaráðið á að halda umboði til að veita gjaldeyrisleyfi fyrir fyrri helming ársins 1947. Ég vil því spyrja hæstv. fjmrh., hvort hann vilji koma í veg fyrir, að viðskiptaráð veiti þessi leyfi eða ekki, og er undir svari hans komið, hvort ég ber fram brtt. við frv. eða ekki.