29.11.1946
Efri deild: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Auðvitað veit hann ekki, hvað annar maður kynni að gera, en það, sem ég átti við, var, hverjir ættu að veita leyfin, en ég læt mér nægja, samkvæmt upplýsingum hans, að viðskiptaráð mun starfa áfram og veita leyfin, og að því leyti mun ekki um neina breytingu að ræða.