29.11.1946
Efri deild: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Hv. þm. Barð. beindi þeirri fyrirspurn til mín, ef að l. yrðu framlengd, hvort viðskiptaráð ætti að vera eins skipað og áður, þ. e. sömu mönnum. Einnig gat hv. þm. þess, að útgerðarmenn sæktu nú allfast á að fá fulltrúa í ráðið sér til tryggingar.

Mér virtist hv. þm. leggja þann skilning í þetta, að einhverjar stofnanir tilnefndu menn í ráðið, en svo er ekki. Ríkisstj. skipar það, en auðvitað eftir samkomulagi innan hennar, en engin stofnun hefur tillögurétt um mannaval í ráðið.

Mér er að vísu kunnugt um þessar kröfur útgerðarmanna, en við þeim er ekki hægt að verða, og þó að ég hafi gefið vilyrði um að skipa nýjan mann í ráðið, sem vel kann rétt að vera, vil ég ekki kannast við, að útgerðarmenn hafi neinn rétt til að ráða um mannaval í ráðinu. En segja má, að laust sé eitt sæti í ráðinu, síðan Sveinbjörn Finnsson verðlagsstjóri hætti þeim störfum, en verðlagsstjóri á jafnframt sæti í viðskiptaráði. En í verðlagsstjóraembættið var skipaður maður úr viðskiptaráði, en enginn skipaður fyrir hann í ráðið, og þar við situr nú. En ég hef, aðeins gefið vilyrði um, að nýr maður yrði skipaður í ráðið, sem útvegsmenn gætu sætt sig við, en við rétt þeirra vil ég ekki kannast. Hv. þm. Barð. lagði áherzlu á þær kröfur útgerðarmanna, að þeir ættu rétt á að fá mann í viðskiptaráð. Þetta get ég engan veginn fallizt á. Ég veit ekki betur — að minnsta kosti síðan ég varð viðskiptamrh. — heldur en að allar sanngjarnar kröfur útgerðarmanna hafi verið teknar að fullu til greina. Þeir fóru fram á það t. d. á öndverðu þessu ári, að innkaupastofnun, sent þeir höfðu sjálfir stofnað, fengi innkaupaheimild fyrir því, sem þeir þyrftu sjálfir til útgerðarinnar. Þetta braut í bága við kvótareglurnar. En eftir að rætt hafði verið við viðskiptaráð, var þetta leyfi veitt, eins og farið hafði verið fram á. Hins vegar geta útgerðarmenn ekki búizt við að fá leyfi til innflutnings á hvaða vörum sem þeim sýnist, og allra sízt á vörum, sem nota á til annarra hluta en útgerðar, né vörum sem bannaður er innflutningur á til landsins.

Hv. þm. Barð. minntist á viðskiptin við Ítalíu, sem nú eru að hefjast, og mér skildist á honum, að hann teldi, að útgerðarmönnum stöfuðu einhver vandkvæði af viðskiptaráði í sambandi við þau viðskipti. Ég kannast ekki við það. Það hefur verið gert allt, sem unnt hefur verið að gera til þess að greiða fyrir þessum viðskiptum, bæði viðkomandi saltfiski og hraðfrystum flökum. Hins vegar hefur ekki verið unnt að fallast á, að útgerðarmenn fengju ráðstafað þessum gjaldeyri, sem þeir afla, að eigin vild. Það hefur verið gert ráð fyrir því, að vissir innflytjendur taki við gjaldeyrinum og annist um innkaup á vörum, sem þeim þykir heppilegast að fá inn í landið, jafnóðum og gjaldeyririnn kæmi inn. Annað eða meira en þetta get ég ekki séð, að útgerðarmenn eigi réttlætiskröfu á.

Rétt er að minnast á annað atriði í þessu sambandi, af því að ég hef oftar en einu sinni heyrt bæjartal um, að viðskiptaráð hafi torveldað viðskipti við sum af þeim löndum, sem tekin hafa verið upp viðskipti við nú og reynt að selja vörur til, eins og Tékkóslóvakíu, þannig að torvelduð hafi verið í sambandi við gjaldeyrisleyfi vörukaup frá þessum löndum. Strax er samningur var gerður við Tékkóslóvakíu, skrifaði viðskmrh. viðskiptaráði, verzlunarráði og Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og lagði fyrir viðskiptaráð að greiða fyrir þessum viðskiptum, svo sem unnt væri, þar með veitingu gjaldeyrisleyfa. Og ég vil segja, að gjaldeyrisleyfi hafi verið veitt til innkaupa þaðan frjálslegar kannske heldur en til nokkurs annars lands. Og til verzlunarráðs og sambands íslenzkra samvinnufélaga voru gerð tilmæli um, að innflutningsviðskiptum væri beint, svo sem auðið væri, til þessa lands. Ég hygg, að allar þessar stofnanir hafi gert allt, sem í þeirra valdi hefur staðið, til þess að auka innflutning frá þessu landi til þess aftur, að hægt væri að örva útflutning þangað. En það hefur torveldað þetta, að það hefur reynzt erfitt að fá vörur, og sérstaklega heppilegar vörur, frá Tékkóslóvakíu. Mér er kunnugt um, að fyrir sumum vörum, svo sem skófatnaði, hafa verið veitt há gjaldeyrisleyfi, svo hægt væri að flytja þær þaðan, en innkaup þó orðið sáralítil, af því að ekki hefur verið hægt að fá vörurnar. Þetta er ekki hægt að kenna viðskiptaráði. Hitt er annað mál, að viðskiptaráð hefur eftirlit með því, jafnt viðkomandi viðskiptum við þetta land sem önnur, að einhver skynsemd sé höfð í viðskiptunum. Þegar t. d. tvær umsóknir koma um innflutning á sama vörumagni af sömu vöru og annað tilboðið sýnir sig að vera á, um helmingi dýrari vöru heldur en hitt og ef ekki er hægt að veita bæði leyfin, þá er veitt það leyfið, sem hagkvæmara þykir, og synjað um hitt. Þessari fyrstu fyrirspurn hv. þm. Barð. get ég því ekki svarað á annan hátt heldur en þann, að framlenging l. hefur engin áhrif á það, hvort nýr maður kynni að verða skipaður í viðskiptaráð eða ekki, í það sæti, sem að forminu til að minnsta kosti má telja, að sé nú autt. Og framlenging þessara l., þetta nýja frv., sem hér liggur fyrir, breytir vitanlega engu um það.

Þá spurðist hv. þm. Barð. einnig fyrir um það, hvaða reglur mundu verða látnar gilda í framtíðinni um það, hvaða vörur væru óháðar innflutningsleyfum (GJ: Nei). Já, það er hér í byrjun 2. gr. l., þar sem svo er mælt fyrir, að viðskiptaráð hafi þau verkefni með höndum að gera tillögur til ráðherra um það, á hvaða vörutegundum innflutningur skuli vera háður leyfisveitingum og frá hvaða löndum, en ráðh. skuli setja um þetta ákvæði, eftir að leitað hafi verið álits Verzlunarráðs Íslands og Sambands íslenzkra samvinnufélaga. Hv. þm. Barð. gat þess, að hann mundi vilja gera kröfu um það, að það yrði leitað ekki einungis álits verzlunarráðsins og Sambands íslenzkra samvinnufélaga, heldur einnig útgerðarmanna, í þessu efni. Ég hélt nú, að það þyrfti ekki að gefa þessum hv. þm. upplýsingar um það, að þetta ákvæði hefur fram að þessu verið, því miður, aðeins pappírsgagn. Eftir að þessi l. komu í gildi, síðla á síðasta ári, vildi það nú til, að upplýsingar komu um það frá Bretlandi, að Bretar mundu ekki vilja kaupa neitt af hraðfrystum fiski eftirleiðis af okkur. Það var álitið þá, að þetta hefði svo verulega breyt. í för með sér fyrir útflutningsverzlun landsins, að ekki þótti fært að slaka neitt til á innflutningshömlunum. Og þá var gefin út auglýsing um það, að allar innfluttar vörur væru eftir sem áður, þrátt fyrir þá breyt., sem gerð var á l. í fyrra, háðar innflutningsleyfum. Nú réðst vetur úr þessum málum, eins og kunnugt er, heldur en vonir stóðu til í upphafi. Hraðfrysti fiskurinn var seldur til Rússlands og Suður-Evrópu fyrir hagkvæmara verð heldur en hafði verið á honum áður. Ég áleit, að nú væri kominn tími til að undanþiggja ýmsar vörur innflutningsleyfum. Um þetta var rætt í ríkisstj., en aldrei gat orðið samkomulag um það þar að slaka til á innflutningshöftunum. Og var svo mikil áherzla lögð á það að gera það ekki, að ég sá mér ekki fært á eigin spýtur án samþykkis minna samverkamanna að gera það. Ég álít þetta illa farið. Ég álít, að frjáls innflutningur á brýnustu lífsnauðsynjum mundi fljótt verka á þann hátt, að verðið lækkaði á þeim. Það mundi skapa grundvöll að frjálsri samkeppni um að selja þessar vörur. Innflytjendur mundu þurfa að hugsa meira um það en áður að gera hagkvæm innkaup. Og sú hvöt, sem innflytjendur fengju um það að vanda innkaup sín, mundi ótvírætt verða til þess að lækka verð á þessum vörum. Það hefur sýnt sig, bæði fyrr og síðar, að verðlagseftirlitið er ekki nægilegt til þess að halda niðri vöruverðinu. Og ég býst við, að það mundi reynast erfitt að koma því í það horf, að það eitt út af fyrir sig nægði til þess, að verðið yrði hóflegt. — En þetta ástand hefur sem sagt haldizt, og þýðir náttúrlega ekki um það að sakast. En afleiðing þess er hins vegar sú, að það hefur enga þýðingu, hvaða álits er leitað um innflutninginn, því að það eru allar vörur háðar innflutningsleyfum. Annars verð ég að segja, að ég mundi eiga ákaflega erfitt að finna rök fyrir því, að það ætti að leita sérstaks álits útgerðarmanna um það, hvaða vörur ættí að flytja til landsins. Ég held, að þeirra þarfir séu ákaflega svipaðar og annarra landsmanna að öðru leyti heldur en því, að þeir fái þær vörur, sem þeim eru nauðsynlegar atvinnu sinnar vegna. Og ég held, að enginn maður hafi reynt að leiða rök að því, að nokkru sinni hafi verið neitað um innflutning á þeim vörum. Ég hygg það alveg víst, að svo hafi ekki verið. Með þessu tel ég, að annarri fyrirspurn hv. þm. Barð. sé svarað.

Þá spurðist hv. þm. Barð. fyrir um það, hver ætlun væri um það að sameina útflutning og innflutning, þ. e. a. s. að setja undir einn hatt, ef svo má segja, innflutningsverzlunina og útflutningsverzlunina. Ég get náttúrlega illa svarað því, hvaða ráðagerðir eru um það. Ég hef heyrt þessu hreyft nú. Og það hafa komið fram uppástungur í þessa átt í sambandi við umr. um stjórnarmyndun. En hvað úr því verður, get ég náttúrlega ekki sagt. Það má vel vera, að það sé ýmislegt, sem mælir með því að hafa þetta hvort tveggja undir einni og sömu stofnun. En hins vegar hygg ég þó, að ýmis vandkvæði yrðu á því. Það mundi verða erfitt, að minnsta kosti með því að hafa nefndirnar ekki fjölskipaðri heldur en þær eru nú, að láta þær ráða yfir þeirri þekkingu, sem nauðsynleg er til þess að standa fyrir hvorum tveggja málunum. Þar fyrir vil ég alls ekki fullyrða, að þetta væri ókleift.

Þessi hv. þm. spurðist einnig fyrir um það í sambandi við samninganefnd utanríkisviðskipta, hvort ætlunin væri að halda henni áfram starfandi og hvernig fjárhagur hennar væri. Því er ekki að neita, að verksvið samninganefndar utanríkisviðskipta hefur færzt mjög mikið saman. Þessi nefnd hafði um eitt skeið á hendi samninga um meginhlutann af útflutningsvörum okkar, seldi hann eða annaðist um sölu á honum, og yfirleitt þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru í sambandi við utanríkisverzlunina, þ. á m. veitingu útflutningsleyfa. Og það verk hefur hún enn þá að veita útflutningsleyfi að talsvert miklu leyti. En nú er annars mjög breytt um starf þessarar nefndar. Bæði hefur ríkið sjálft með sérstökum samningum selt allmikið af framleiðslu þessa árs að minnsta kosti og annazt um sölu á öðru með sérstökum samninganefndum. Og innflutningur og útflutningur einstaklinga fer nokkuð vaxandi. Hins vegar er það svo, að einhver stofnun verður að hafa á hendi eftirlit með útflutningnum og einhverri stofnun verður að vera falið að veita útflutningsleyfi. Og í sambandi við veitingu útflutningsleyfa er nauðsynlegt að rannsaka verðlag á þeim vörum, sem sótt er um útflutning á. og fylgjast með, hvert verð má telja hæfilegt á þeim útfluttu vörum. Ég held, að það væri naumast fært, að minnsta kosti eins og viðskmrn. er nú skipað, því að þar er mjög lítið starfslið, að láta það ráðuneyti hafa þetta starf með höndum, sem samninganefnd utanríkisviðskipta hefur haft. Einhverjum yrði að fela störf nefndarinnar. En mér skilst, að það eina, sem orðið gæti til þess að láta samninganefnd utanríkisviðskipta hætta störfum — en um þetta get ég ekkert sagt á þessum tíma — sé það, að sameinuð yrði stjórn útflutnings- og innflutningsverzlunarinnar. Þá gæti vitanlega mjög vel komið til mála og væri jafnvel sennilegt, að þeirri stofnun, sem með þau mál færi, eða þeim sömu mönnum, væri einnig falið að taka við störfum samninganefndar utanríkisviðskipta.

Um fjárhag þessarar stofnunar get ég ekki upplýst nú. Ég hef ekki grennslazt eftir því, hvernig ástatt er um hann. En sennilegt er, að sjóður stofnunarinnar hafi heldur vaxið heldur en minnkað, því að kostnaður hygg ég, að hafi talsvert minnkað á þessu ári.

Þá gerði hv. þm. Barð. þá aths. við 2. málsgr. 1. gr., að hann sagði, að ekki væru nein ákvæði um endurgreiðslu á leyfisbréfagjöldum, ef leyfin eru ekki notuð. Ég er á annarri skoðun en hv. þm. viðkomandi þessu atriði. Þetta ákvæði er sett í frv. í því skyni að koma í veg fyrir, að menn séu að leika sér með innflutningsleyfin, til þess, að menn séu ekki að biðja um að fá innflutningsleyfi til þess að spekúlera með þau án þess að vita, hvort þeir geta fengið vörur eða ekki. Ef þeir vita nokkurn veginn, hvort þeir geta fengið keyptar vörur til innflutnings, þá er engin hætta hjá þeim í sambandi við að hafa greitt leyfisbréfagjaldið. Og ég held, að jafnan hafi verið veitt framlenging á leyfum, þegar menn hafa sýnt fram á, að þeir geti fengið keyptar vörur, og ef leyfi eru framlengd, er ekkert aukagjald fyrir þau. En það er öðru máli að gegna undir þeim kringumstæðum. þegar menn geta ekki notað leyfin. En ég er sannfærður um það, að það er nauðsynlegt að setja þennan hemil, að leyfisbréfagjöldin séu greidd við móttöku, á það, að menn séu að biðja um innflutningsleyfi út í loftið. Því að ég er sannfærður um, að sú óánægja, sem jafnan hefur verið út af þessum leyfisveitingum — og sjálfsagt mun jafnan verða einhver óánægja út af þeim málum, sem kannske hefur þó sjaldan verið minni en einmitt nú, frá því þessi tilhögun hefur verið tekin upp hér á landi — en sú óánægja, sem nú er út af þessum málum, stafar ekki sízt af þessu, að synjað hefur verið oft um innflutningsleyfi fyrir vörum, af því að búið hefur verið að veita innflutningsleyfi fyrir svo miklu af vörum, en vörurnar svo ekki komið. Þeir, sem geta fengið keyptar vörur, eru svo óánægðir og segja: Ég fæ ekki að kaupa inn vörur, af því að einhverjir angurgapar, sem ekkert vita, hvað þeir eru að gera, eru búnir að fá leyfi áður. — Mér finnst vorkunn, þó að mönnum þyki þetta ekki gott. En þó að tafir verði á flutningi á vörum, t. d. vegna verkfalla, þá stafar innflytjendum engin hætta af því. Ef menn sýna fram á, að þeir muni geta fengið vörur keyptar og útflutningsleyfi fyrir þeim, þá fá þeir innflutningsleyfi, ef æskilegt þykir að fá vörurnar til landsins.