21.12.1946
Efri deild: 41. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

119. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o. fl.

Frsm. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti. Eins og nál. á þskj. 249 ber með sér, hefur n. athugað þetta frv. og gert á því lítils háttar breyt., þ. e. viðauka, sem snertir útlendinga, sem hafa aðrar atvinnutekjur en þær, sem nefndar eru í 2. gr. Kom í ljós í n., að a. m. k. sumir í fjhn. Nd. litu þannig á, og raunar með réttu, að eins og 2. gr. er, þá næði þetta bæði yfir þá, sem ynnu iðnaðarvinnu, og eins hina, sem öfluðu sér tekna með list sinni. En n. álítur, að rétt væri að hafa nokkra skilgreiningu þarna og hafa sérstök ákvæði um þá útlenda listamenn, sem hingað koma til þess að afla sér tekna með list sinni. Dvöl þeirra er venjulega skemmri en annarra, þ. e. listamanna, en þeir taka aftur, sérstaklega nú orðið, með þeim aðgangseyri, sem er að skemmtunum þeim eða sýningum, sem þeir koma á stað, mjög mikla peninga og ástæðulaust að sleppa þeim að öllu leyti við greiðslu á skatti. Nú er svo ákveðið í 2. gr. frv., að útlendingur, sem dvelur hér einn mánuð eða lengur eða hefur í hreinar tekjur 10 þús. kr. eða þar yfir, þó að dvalartími hans hér sé skemmri en einn mánuður, sé skyldur að greiða skatt og útsvar. Nú, n. virðist, og hefur þar fyrir augum reglur, sem gilda sums staðar annars staðar en hér, að rétt sé að skattleggja tekjur útlendra listamanna, þó þannig, að eitthvert tillit sé tekið til þess, að þessir menn leggja oft á sig dýr ferðalög fyrir mjög stutta dvöl, og því virtist n. ekki ástæða til að heimta skatt af öllum þeirra tekjum, heldur af hluta þeirra, eða eins og segir í grg. till., þeim er ætlað að greiða skatt og útsvar af 2/3 hlutum þeirra tekna, er þeir afla sér á þann hátt, að frádregnum beinum kostnaði við starfsemina. Þó er gert ráð fyrir, að nánari reglur megi setja um þetta í reglugerð, en beinan kostnað við starfsemina má telja t. d. leigu á húsum til sýninga eða einhverra slíkra hluta í sambandi við starfsemi listamannanna.

Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja um þetta. Ég vil þó aðeins minnast á orðalag brtt., þar sem stendur „hvort heldur þeir starfa í eigin nafni eða á annarra vegum.“ Stundum eru listamennirnir, þó að sjaldan sé kannske, þannig hingað komnir, að þeir eru ekki pantaðir eða fyrir fram ráðnir af öðrum, menn, sem koma t. d. til að halda hér málverkasýningar eða sýna eitthvað annað í sambandi við list sína, að þeir geri það sem sé fyrir eigin reikning. En þau tilfelli munu vera fleiri, og á það einkum við um söngmenn og hljóðfæraleikara, að þessir listamenn eru ráðnir fyrir sjálfsagt eitthvað ákveðið af íslenzkum aðilum, t. d. Tónlistarfélaginu eða þess háttar. En gr. á við, að hvernig sem þessara tekna er aflað, hvort sem mennirnir starfa á eigin vegum eða á annarra vegum, þá eigi þeir að greiða skatta og útsvör af 2/3 hlutum þessara tekna, að frádregnum þeim beina kostnaði, sem við starfsemina er tengdur. En eins og ég áður sagði, þótti n. rétt að undanskilja 1/3 af tekjunum. Í sambandi við slíkar ferðir er oft mikill ferðakostnaður og slíkt, þó að dvölin sé stutt, og þótti því rétt að seilast ekki lengra en þetta og fylgja þeirri reglu, sem látin er gilda í Stóra-Bretlandi í þessum efnum, en þar eru útlendir listamenn látnir greiða skatt af 2/3 hlutum teknanna.

Ég hef þá skýrt frá því, hvers vegna þessar brtt. eru fram komnar. Það er aðallega til þess að draga gleggri markalínu milli þeirra útlendinga, sem ekki afla sér tekna með list, og hinna, sem það gera.