20.12.1946
Neðri deild: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Við höfum orðið sammála í fjhn. um að flytja þetta frv., sem hér liggur fyrir, þótt skoðanir okkar hafi að ýmsu leyti verið nokkuð sundurleitar. Ég fyrir mitt leyti er algerlega mótfallinn 6. gr. frv., en mér er þó ánægja að flytja frv. í heild, því að aðalatriði þess eru samhljóða frv. því, er ég flutti að beiðni atvmrh. nú fyrir fáum dögum. Er ég gerði grein fyrir því frv., taldi ég líklegt, að hægt væri að fá það verð fyrir sjávarafurðirnar, sem ákveðið er í frv., án þess að skuldir kæmu til með að falla á ríkið, ef vel er á utanríkisverzluninni haldið. Alþ. hefur áður tekið á sig sams konar ábyrgðir án þess að nokkuð þyrfti að greiða. Ef markaðsmöguleikar okkar eru réttilega notaðir, er engin ástæða til að ætla, að borga þurfi með fiskafurðunum. En ef sett er í lög að með þeim þurfi að greiða, þá gerir það það að verkum, að við stöndum verr að vígi gagnvart útlendingum, sem kaupa afurðirnar, og auk þess skapar það óánægju meðal síldarútvegsmanna, sem hafa nú tvö undanfarin ár haft mjög lélega afkomu. og það því fremur sem ekki er sannað, hvort nauðsynlegt sé að skattleggja síldarútgerðina. Hins vegar þýðir þetta, að þegar við semjum um sölu annarra sjávarafurða, þá verður vitnað í það hverju sinni, að Alþ. sé búið að taka kúfinn af andvirði síldarinnar til að greiða uppbætur á þær sjávarafurðir, er samið er um sölu á, og skapar þetta okkur hina verstu aðstöðu. Það er því réttara að fella niður 6. gr., bæði vegna allra útvegsaðila og til þess að gera aðstöðu ríkisins sterkari, en að öðru leyti að samþykkja þetta frv. Það er alveg óbætanlegt tjón, sem hlýzt af því, ef vertíðin getur ekki hafizt á tilsettum tíma og fiskurinn verður óveiddur í sjónum. Ég held því, að Alþ. hafi gert rétt í fyrra, er það samþykkti ríkisábyrgðina á fiskverðið, og þess vegna tel ég eðlilegt og sjálfsagt, að þessu frv., sem í öllum aðalatriðum miðar að því sama, sé flýtt í gegnum þingið. Betra væri að vísu, að fyrir lægi, hvaða samninga væri hægt að gera, en ég held, að ástæðulaust sé að óttast, að ekki sé hægt að ná þeim samningum, sem við þurfum. Af hálfu útgerðarmanna, er sætta sig við það verð, sem hér er ákveðið, er gert ráð fyrir, að vísitalan hækki ekki frá því, sem nú er. Ef vísitalan hækkar, er það verð, sem hér er lagt til, þegar orðið of lágt. Það er því fullkomlega nauðsynlegt að athuga gaumgæfilega, til hvaða ráðstafana mætti grípa til þess að stöðva dýrtíðina, og vildi ég leyfa mér nú þegar að benda á eitt atriði, en það er skarpara verðlagseftirlit. Það ætti að reyna að sjá svo til, að ekki væri farið geyst í að verða við hækkunarkröfum í hvert sinn, er þær koma fram.

Ég vil svo að lokum geta þess, að þegar til 2. umr. kemur, mun ég óska eftir, að 6. gr. sé borin upp út af fyrir sig. Að öðru leyti legg ég áherzlu á, að þetta mál sé afgr. og samþ. sem fljótast.