20.12.1946
Neðri deild: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Mér þykir leitt, hve seint ég hef komið til afgreiðslu þessa máls, þar sem ég hef verið að gegna öðrum störfum fyrir þjóðina nú undanfarið. Mér þykir enn fremur leitt, að ég get ekki fylgt þessu frv. eins og það nú liggur fyrir, þótt mér sé ljóst, að nauðsynlegt er, að þetta frv. sé samþ. í höfuðatriðum, þótt ekki sé nema til þess að koma útgerðinni af stað. En ég get ekki fallizt á að jafna milli hlutarsjómanna, því að mér skilst, að ef farið er inn á þá braut að taka væntanlegan gróða af síldarútgerðinni til að jafna á milli vertíða, þá sé verið að láta hlutarsjómenn borga dýrtíðarráðstafanir, sem annars öll þjóðin á að standa straum af. Legg ég því til, að 6. gr. frv. verði felld niður. Það er ekki forsvaranlegt, að engir borgi dýrtíðarráðstafanirnar nema útgerðarmenn og hlutarsjómenn. Hagsmunir allrar þjóðarinnar eru í veði, ef útgerðin fer ekki af stað á réttum tíma, og því verður þjóðin öll að bera þær ábyrgðir, er hlotizt geta af ráðstöfunum útgerðinni til handa. Verzlunarmenn og verkamenn í landi eiga að halda sínum launum, en hallann á að taka af síldarútgerðarmönnum og sjómönnum, eftir að síldarútgerðin hefur verið rekin með tapi tvö undanfarin ár, ef ákvæði 6. gr. verða samþ. Og þá hafa síldarútvegsmenn enga möguleika til að bæta upp tjón tveggja síðustu ára. Það er jafnvel svo langt gengið, að lagt er til, að kúfurinn af síldarverðinu sé tekinn, áður en nokkur vissa er fyrir því, hvort síldveiðin verði rekin með tapi eða ekki. Ég held, að hv. þm. ættu að íhuga vandlega þessar staðreyndir, áður en þeir samþykkja ákvæði 6. gr., því að færi svo, að síldin brygðist á þessu ári, hvað verður þá af þeim mönnum, sem rekið hafa síldveiðar með tapi tvö undanfarin ár og hvað verður af þeim sjómönnum, sem á sama tíma hafa tæplega verið matvinnungar?

Það eru því fyrst og fremst tvö atriði í þessu frv., sem ég get ekki sætt mig við. Í fyrsta lagi, að það á að leggja þær skyldur á vissar stéttir að borga dýrtíðarráðstafanir, sem öll þjóðin á að borga, og í öðru lagi, að þeir, sem eiga að borga þessar ráðstafanir, eru einmitt þeir, sem beðið hafa halla tvö undanfarin ár. Nú er sagt, að útvegsmenn geti grætt það mikið á þorskveiðunum, að þeir geti greitt síldartollinn. En þorskveiðarnar bera sig ekki nema í Faxaflóa og Vestmannaeyjum. Annars staðar er engan afgang að fá af þorskveiðunum. Ég þekki persónulega til fyrirtækis eins á Vestfjörðum, sem tapaði 1 milljón króna á síldveiðunum undanfarin tvö ár. Og svona dæmi mun víðar mega finna. Hvernig getur nú Alþ. fengið af sér að leggja þriðja tapsárið á þessa menn? Með ákvæðum 6. gr. er ekki einungis gerður jöfnuður milli hlutarsjómanna, heldur og jöfnuður milli landshluta. Vissir landshlutar eiga alla afkomu sína undir síldinni, t. d. Norðurland og að miklu leyti Vesturland í flestum árum. Ef nú Alþ. tekur ágóðann af síldveiðunum frá Norður- og Vesturlandi til að verðbæta þorskinn, má vera, að nokkuð réttlátum jöfnuði megi koma á fyrir báta, er héðan að sunnan fara til síldveiða á sumrin, en stunda þorskveiðar hér sunnanlands á vetrum. En skip, sem sæktu sjó frá Vestfjörðum, mundu greiða meira í tryggingarsjóð en þá uppbót, er þau fengju á þorskaflann. Skip, sem fiskar 300 tonn af þorski, fengi 45000 kr. uppbót, en greiddi 200 þúsund kr. í tryggingarsjóð, ef það veiddi 10 þúsund mál síldar. Hér er því um að ræða jöfnuð milli landshluta, jöfnuð frá útgerð, er verr stendur að vígi, til útgerðar, er betur stendur að vígi. Það er kunnugt, að sjómenn á síldveiðum tvö síðustu ár hafa haft minni laun en landverkamenn, og þurfa þeir því að fá nokkra uppbót. En með ákvæðum 6. gr. er sá möguleiki tekinn af þeim. Þau ákvæði eru einnig brot á því, sem sagt hefur verið við hlutarsjómenn, að þegar lítill afli sé, fái þeir eðlilega lítil laun, en þau fari eftir því hækkandi sem aflinn vex. Meðan hungur og feitmetisskortur ríkir úti í heimi, getum við ef til vill í nokkurn tíma fengið hækkandi verð fyrir síldarafurðir, en slíkt verður aldrei til langframa.

Af öllu framansögðu legg ég því til, að 6. gr. verði felld niður, og mundi leggja fram brtt. þess efnis. Falli gr. hins vegar ekki niður, mun ég til vara gera við hana brtt. Í fyrsta lagi, að aftan við 1. málsl. 5. gr. bætist: „Eigi má þó innheimta slíkt gjald fyrr en veiði síldveiðiskips hefur náð meðalafla síldveiðiskips í hverjum flokki árin 1942–1944.“ Með samþykkt þessarar till. getur Alþ. firrt sig því ámæli, að það taki af sjómönnum, sem ekkert hafa undanfarið úr býtum borið. Í öðru lagi legg ég til, að aftan við 2. málsgr. 6. gr. komi ný málsgr., svo hljóðandi: „Fé því, er innheimt verður af afla hvers síldveiðiskips, skal fyrst og fremst verja til að greiða útgerðarmanni þess halla þann, er hann kann að hafa beðið af útgerð skipsins á síldveiðum 1945 og 1946, þó þannig, að frá verði dreginn hagnaður sá, er orðið hefur á hverju skipi á þorskveiðum á þeim árum. Jöfnum höndum skal skipverjum á skipum þessum greidd uppbót þannig, að tekjur þeirra af síldveiðum nái meðaltekjum verkamanna við Síldarverksmiðjur ríkisins á því ári.“ Vera má, að einfaldara væri að fella 6. gr. alveg niður, en ég flyt þessar varabrtt. til þess að ríkið taki ekki gjöld af mönnum, sem rekið hafa útgerð með tapi, og ekki heldur af fátækum sjómönnum, og enn fremur til þess að útgerðarmenn hafi möguleika til að bæta upp tjón tveggja síðustu ára. Þau áhöld, sem þarf til síldveiða, eru nú orðin geipilega dýr. Til dæmis kostar ein herpinót 50–60 þús. kr. og herpinótabátur 50 þús. kr., eða alls um 110 þús. kr. — Eins og menn sjá, þarf ekki lítinn afla til að borga þetta upp, og síldarútgerðinni mundi því ekki nægja eitt stórgróðaár til að koma upp fjárhagslegum grundvelli og rétta kjölinn.

Ég læt nú útrætt um þetta að sinni. Ég er sammála því, að leysa þurfi þessi vandræði, en það er ekki sanngjarnt, að hallinn sé settur á síldarútveginn.