20.12.1946
Neðri deild: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Þetta frv., sem flutt er af hv. fjhn. d., sýnir, að þeir, sem hafa ráðin hér á Alþ., horfa ekki á staðreyndirnar. Ég minntist á það við 1. umr. málsins, að verðlag útgerðarinnar hefði aukizt um 30% og að nú þurfi 65 aura verð pr. kg fiskjar. Ég minnist á þetta vegna verðbólgunnar. Augljóst er, að verði hún ekki stöðvuð, þá eru allar ráðstafanir litlar, þótt komi að gagni til bráðabirgða. Ef dýrtíðin heldur áfram, þá verður útgerðin jafnilla sett með 65 aura verð sem 50 aura verð í fyrra.
Í frv. eru neyðarákvæði til bráðabirgða. 9. gr. frv. hljóðar svo, að ríkisstj. skuli setja 4 manna nefnd eftir tilnefningu þingflokkanna til þess að gera tillögur um, á hvern hátt komið verði í veg fyrir að dýrtíðin í landinu vaxi, og skal n. skila áliti sínu fyrir 1. febr. 1947. Nú hefði átt að vera búið að mynda stjórn á þessu ári. Stjórnarmyndun er samt sem áður á döfinni, en svo kemur fram n., sem á að skila áliti fyrir 1. febr. Ég vil skjóta því að, að það er engin stjórn, sem skýtur sér undan að leysa vanda sem þennan. Það er fyrst og fremst stjórnarinnar að byggja úrræðin. Þess vegna finnst mér þessi gr. verra en ekki neitt, og hún spáir ekki góðu um ætlun ráðamanna frv.
Fulltrúar framsóknar í fjhn. munu leggja aðaláherzlu á, að Alþ. feli ríkisstj. að leggja fyrir þingið till. um stöðvun dýrtíðarinnar, og hvort þetta sé ekki aðalvandamálið og fela hæstv. stj. forystu í þessu. Ef dýrtíðin verður ekki lækkuð, er ólin enn um háls útvegsmanna. Frv. þetta losar um ólina, en hún er látin vera áfram. Nú er spurning útvegsmanna svo: Getum við gert út, nema með 1) Stöðvun dýrtíðarinnar og 2) Ríkisábyrgð til bráðabirgða? Hér á að sinna öðru atriðinu, en ekki hinu. Nú hafa fulltrúar Framsóknarfl. tekið þann kost að flytja frv., og við framsóknarmenn verðum með þessu til bráðabirgða. Ástæðan fyrir afstöðu okkar er sú, að við vitum um hengingarólina, en viljum hana lausa, þó að við höfum ekki afl til að nema hana alveg burt nú.
Þetta vildi ég segja almennt um málið. Eitt aðalatriði þessa máls er verðjöfnunin. Um afstöðu okkar, að við leggjum til, að öflugar dýrtíðarráðstafanir verði gerðar í byrjun næsta árs, gerir þá ráðstöfun óþarfa. Þetta ætti að vera hægt samkvæmt söluhorfum. Út af skattlagningu á síld, er hv. þm. V-Ísf. minntist á, þá álít ég það freklegt ósamræmi að borga þannig annan halla vegna vaxandi verðbólgu: Það er hægt að sýna þetta á margan hátt. Það er erfiður vegur, ef fara á að færa í milli og mjög hál braut að fara inn á. Svo hefur afkoma síldarútvegsins verið mjög léleg síðastliðin 2 ár og afkoman mjög í ósamræmi við aðrar stéttir. Menn hafa og lagt í það að kaupa dýra báta, sem þeir þurfa að afskrifa sem fyrst. Að vísu hefur verð síldarafurða verið hátt vegna skorts á feitmeti í heiminum, en vafasamt er, hve lengi slíkt helzt. Síldarútvegurinn þarf þess vegna að sópa inn peningum til þess að greiða töpin frá aflabrestsárunum og hin nýju dýru skip. Það er því hreint neyðarúrræði að leggja skatt á þessa atvinnugrein.
Nú er gert ráð fyrir í frv., sem samið var kl. 5.30 í gær og hefur því lítinn undirbúning haft í nefnd, þá er gert ráð fyrir að taka hina 30% hækkun á síldarverði, sem leggist í sérstakan tryggingarsjóð, eða það sem er yfir 40 kr. málið. Ég hygg, að það væri rétt að endurskoða þetta, hvort hægt sé að taka sem nemi yfir 40 krónur málið, og hvort ekki væri réttara að breyta frv. og miða við það, sem er yfir 50 kr. málið. Spurningin er, hvort þetta er nauðsynlegt, og mundi ég við seinni umr. bera fram brtt.
Svo vek ég athygli á öðru. Það stendur í 6. gr. frv.: „Nú verður afgangur af fé tryggingarsjóðs, og skal þá sjóðurinn starfa áfram til tryggingar síldveiðum eftir þeim reglum, er ríkisstjórnin setur.“ Oft er talað um háar tölur við síldveiðar, svo sem 100 pund tonnið. Þá gætu það orðið 2 millj., sem færu í tryggingarsjóðinn samkv. frv. Ekkert er minnzt á vald ráðh. í þessu efni. Gæti ráðh. því ráðið hér yfir tugum milljóna króna og ráðstafað þeim að öðru en því, sem færi til tryggingar síldveiðanna. Þetta munu sjómenn ekki geta samþykkt, og ég er hissa á þessu ákvæði í frv. frá nefnd á Alþingi. Ég vil skora á fjhn. að breyta þessu, og það er óhugsandi, að ráðh. ráðstafi öllu þessu fé. Það er í ósamræmi við okkar þjóðskipulag. Setja þarf hér ákvæði að fengnum tillögum Landssambands útvegsmanna, Alþýðusambandsins og Farmanna- og fiskimannasambandsins.
Ég veit, að þetta var rætt í n. áður en frv. kom fram, en skýt því hér að, sem frsm. sagði, að Alþ. gæti síðar samþ. þetta. En það er augljóst, að hér verður um gífurlega fjárupphæð að ræða, ef vel tekst.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar.