20.12.1946
Neðri deild: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1251 í B-deild Alþingistíðinda. (1395)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Pétur Ottesen:
Mér skilst, að það sé mjög komið í eindaga um afgreiðslu þessa máls. Það hefur verið gert ráð fyrir því, að þetta þing felli niður störf nú næstu daga eða um næstu helgi í síðasta lagi. Til að afgr. þetta mál er því ekki upp á annað að hlaupa en daginn í dag og á morgun. Ég geri ráð fyrir því, að þinghelgin verði ekki tekin fyrr en búið er að ljúka afgreiðslu þessa máls. Það er óverjandi, að þetta þing, sem setið hefur á þriðja mánuð og haft þetta mál fyrst og fremst til úrlausnar ásamt stjórnarmyndun, hlaupi nú frá því óafgreiddu. Á þeim ráðstöfunum, sem Alþ. gerir nú í þessum málum, veltur það, hvort meiri hl. bátaútvegsins tekur til starfa um áramót, eins og venja er til, eða ekki. Og ef þetta tekst ekki, er ómögulegt að sjá fyrir endann á því, hve langur frestur verður á því, að sú starfsemi hefjist aftur. En hitt er vitað, að á þeim tíma, sem útgerðin ekki tekur til starfa, gengur þjóðinni úr greipum mikið fjármagn, e. t. v. svo mikið fjármagn, að hún fær ekki undir því risið. Fyrir liggja yfirlýsingar um það frá samtökum útvegsmanna, að ef ekki verði uppfylltar þær kröfur, sem þeir hafa sett fram í sambandi við þetta mál, þá treysti þeir sér ekki til þess að hefja útgerð á næstkomandi vetrarvertíð eða á þeim tíma, sem útgerð á venjulegum tíma hefst. Þau skilyrði, sem þeir setja, eru, að þeir fái tryggingu á verði fisksins, sem nokkuð fer nærri því, sem sett hefur verið fram hér í tveimur frv., sem hér liggja fyrir, annað af minni hl. fjhn., en hitt af fjhn. allri og ekki var útbýtt fyrr en um miðjan dag, enda mun ekki hafa verið gengið frá samningu frv. fyrr en eftir miðnætti í nótt eða í morgun. Hitt skilyrðið er, að dýrtíðarvísitalan verði stöðvuð, en hún er verulegur hluti kaupgjaldsins. Það gefur auga leið, að það kemur að litlu haldi fyrir útgerðina, þótt hún fái slíka tryggingu sem þessa, ef dýrtíðin fær að halda áfram að vaxa á því tímabili, sem tryggingin nær yfir, eins og verið hefur undanfarið. Slík hækkun dýrtíðar mundi gera að engu þá tryggingu, sem þeir eru nú að fara fram á og tekið hefur verið undir af Alþ. með flutningi þessara tveggja frv. varðandi þetta efni. Ástæðan fyrir því, að útvegsmenn fara fram á þetta, er sú, að þeir eru ekki eins bjartsýnir á markaðshorfur og hæstv. forsrh., þeir sjá ekki fram á, að þeir fái það mikið verð fyrir þessa vöru á erlendum markaði, að það standi undir útgerðarkostnaðinum eins og hann er nú orðinn. Ég skal ekkert um það segja, hvort sjónarmiðið sé réttara, útvegsmanna eða forsrh., að vísu fullyrti hæstv. forsrh. ekkert um þetta. Hitt skiptir aðalmáli, að þeir aðilar, sem við útgerð fást, líta svona á málið. Það, sem hér er í veði, er ekki aðeins hagsmunir útvegsmanna. Útvegsmenn vita, að þeir fá enga sjómenn út á bátana, ef ekki verður veitt slík trygging og sú, sem hér er farið fram á. Þorskveiðum hér við land er svo háttað, að þeir, sem eru þátttakendur í útgerðinni, eru upp á hlut og eiga því allt sitt undir því, hvernig afkoma útgerðarinnar verður, jafnt og útgerðarmaðurinn sjálfur. Það er þetta spursmál, sem liggur fyrir Alþ. nú og hefur legið fyrir Alþ. meiri hl. af þeim tíma, sem það hefur startað í vetur. Það var snemma á þingtímanum, sem fulltrúar útvegamanna héldu fund hér í Rvík og settu fram kröfur sínar. Það hefur því ekki verið nein hulin ráðgáta fyrir Alþ. þennan tíma, hvort taka þyrfti til hendinni í þessu efni eða ekki. En þannig hefur það samt farið, að ekkert hefur verið gert til þessa, sem úr sker um þetta atriði. Það þýðir náttúrlega ekki að vera að tala um orðinn hlut eða rekja ástæðurnar, sem til þess liggja, að svo er komið í atvinnulífi okkar. Þetta stafar af því, að tilkostnaðurinn við framleiðsluna hér á landi er orðinn hærri en sjómenn trúa, að þeir fái uppborið með núverandi verði á erlendum markaði. Þetta mál er þannig komið, að útgerðin fer ekki af stað, nema til einhverra aðgerða komi og stafar það af þeim ástæðum, sem ég hef bent á. Ég ætla ekki að fara að tala um sök eða sakleysi í því sambandi. Það er nóg viðfangsefni fyrir okkur að reyna að ráða fram úr þeim erfiðleikum, sam þessar orsakir hafa skapað hjá okkur. Eins og nú er komið, er ekki unnt að ganga lengur fram hjá því að gera sér grein fyrir, hvað sú ábyrgð virðist vera mikil, sem hér er um að ræða, að ríkissjóður gangi undir. Við eigum hér, eins og málin liggja fyrir, að gera það upp við okkur, hvort útgerðin eigi að fara á stað eða ekki. Við eigum að gera það upp við okkur, hvort sú ábyrgð, sem gætt fallið á landsmenn alla, verði svo mikil, að við ættum þess vegna að kinoka okkur við að veita, þessa ábyrgð samanborið við það, að útgerðin stöðvist. Mér finnst það vera þetta spursmál, sem við eigum að gera upp við okkur. Og mér fyrir mitt leyti getur ekki blandazt hugur um, hvorn kostinn við eigum að taka.
En jafnframt því sjónarmiði, að við komumst ekki hjá að gera þessar ráðstafanir, verðum við að gera okkur ljóst, að slíkar ráðstafanir sem þessar eru ekki eðlilegar. Þær er hægt að gera einu sinni, máske tvisvar, og það býst ég við, að sé hámarkið. Þessar ráðstafanir eru ekki þess megnugar að koma sjávarútveginum aftur á þann grundvöll, að hann ekki aðeins uppfylli þarfir þeirra, sem að honum vinna, heldur allrar þjóðarinnar, en það er sá grundvöllur, sem áframhaldandi atvinnurekstur útgerðarinnar verður að hvíla á hér á landi. Þetta tekur til allra landsmanna, eins og nú er komið. Og þeir menn, sem þjóðin felur umboð sitt hér á Alþ., þeir verða allra manna fyrst að gera sér það ljóst, að þetta er eina lausnin, sem verður að gera eftir að búið er að gera ráðstafanir sem þessar, því að þessar ráðstafanir er ekki hægt að endurtaka nema takmarkaðan tíma.
Hv. frsm. fjhn. sagði, að í öðrum löndum, þar sem sjávarútvegur, er stundaður — og mun hann þar hafa haft Noreg í huga —, væri gefið með sjávarútveginum. En við verðum að athuga það, að sjávarútvegurinn er 5. eða 4. atvinnuvegurinn í röðinni af þeim atvinnuvegum, sem afkoma Norðmanna byggist á. Þar í landi eru aðrir atvinnuvegir miklu þýðingarmeiri en sjávarútvegurinn. En hér er þetta höfuðatvinnuvegurinn hvað gjaldeyrisöflun snertir, sá atvinnuvegur, sem afkoma þjóðarinnar og líf hlýtur að byggjast á, svo framarlega sem þjóðin vill lifa menningarlífi. Við sækjum brauðið í skaut náttúrunnar aðeins með tveim atvinnuvegum, sjávarútveginum og landbúnaðinum. Öll afkoma okkar byggist á þessum atvinnuvegum.
Ég vil styðja þetta frv. í aðalatriðum, þótt ég hafi ýmislegt við það að athuga. Og ég vil taka það skýrt fram, að þetta eru augnabliksráðstafanir, sem nú verður að gera, og þær koma ekki að liði, nema við séum þeir menn, að við kunnum að laga búskap okkar þannig, að þessi atvinnuvegur verði rekinn sem sjálfstæður atvinnuvegur, svo að hann geti gefið mikið í beinar tekjur fyrir alla þjóðina.
Mér skilst, að ákvæði 1. gr. um að tryggja 65 aura verð fyrir kg af nýjum fiski taki eingöngu til bátaútvegsins, en taki ekki til þess aflamagns, sem togarar selja t. d. á erlendum markaði, og þeir eigi því undir því markaðsverði, sem þar er á hverjum tíma á uppboðsmarkaði enskra fisksala. Þá mun líka mega líta svo á, að sú ábyrgð, sem hraðfrystihúsaeigendur fá fyrir sína söluvöru, eftir að þeir hafa keypt fiskinn á 65 aura af útvegsmönnum og fiskimönnum, muni líka taka til alls þess fisks, sem aflað hafa aðrir bátar en togarar.
Aftur á móti lít ég öðrum augum á ákvæði 3. gr., þar sem talað er um ábyrgð á saltfiski til útflutnings. Ég sé ekki annað en þetta taki til alls saltfisksútflutnings án tillits til þess, hvort fisksins er aflað af bátaflotanum eða togaraflotanum. (Forsrh.: Fyrirsögn frv. og 1. gr. þess sker úr um það, að ekki er átt við togara). Hún sker ekki úr um þetta, 3. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkissjóður ábyrgist saltfiskútflytjendum það, sem á kann að vanta, að söluverð verði kr. 2.25 fyrir kg fob. miðað við fullstaðinn stórfisk (þorsk) 1. flokks, og skal verð annarra flokka og fisktegunda vera tilsvarandi. Sambærilegt verð skal ábyrgzt fyrir hertan fisk útfluttan.“ Ég lít þannig á þetta. Ég tel þetta frv. rýmra að þessu leyti en frv., sem minni hl. fjhn. flutti, þar sem í því er ábyrgðin takmörkuð við 30 þús. tonn eingöngu til þess fisks, sem aflaður er af bátaflotanum. Ég er viss um, að þetta getur orðið deilumál, ef það er meiningin, eins og hæstv. forsrh. sagði áðan, að þetta eigi ekki að taka til saltfisks, sem aflaður er af togurum. Ef þetta er meiningin, legg ég til, að orðalaginu verði breytt strax, svo að þetta valdi ekki ágreiningi síðar. Ég skal ekkert um það segja, hvort aðstaða togaranna til að afla fisks sé svo miklu betri, að rétt sé að gera hér upp á milli. Ég get trúað því, að þegar svo stendur á, að togarar afla þorsks eingöngu og greiðlega gengur með aflann, að þá kosti þeir tiltölulega minna til en bátaflotinn. En nú er það svo, að togarar afla ekki alltaf tóms þorsks, heldur ufsa og annars fisks, sem lítið verðgildi hefur, ef ekki er hægt að selja hann sem ísaðan fisk á erlendum markaði, þótt hann verði alltaf verðminni en þorskurinn og aðrar dýrari fisktegundir.
Hér hefur allmikið verið talað um 6. gr. þessa frv. Og maður miðar við það, sem kom hér fram hjá hv., frsm. og þetta frv. ber með sér, að hv. fjhn. stóð öll, þ. e. a. s. fulltrúar allra flokka í fjhn. stóðu að flutningi þessa frv., þó að það sé nú að vísu tekið fram í grg. frv., að einstakir nm. áskilji sér rétt til að bera fram brtt. En þetta virðist að vísu horfa nokkuð öðruvísi við í umr. þeim, sem hér hafa farið fram, þar sem bæði hv. 2. þm. Reykv., hæstv. dómsmrh. og hv. 1. þm. S-M., þessir menn úr þremur flokkum hafa talað hér, og virtust þeir allir rísa öndverðir gegn þessu ákvæði. Hv. 2. þm. Reykv. lýsti yfir því, að allir flokksmenn Sósfl. mundu með tölu greiða atkv. gegn þessari gr. (Forsrh.: Nei). Hæstv. dómsmrh. vill ekki vera með þessari gr., nema svo mjög sé dregið úr ákvæðum hennar, að mér skilst, að ef það væri gert eins og hann vill, þá mundi það stappa nærri því, að gr. yrði þýðingarlaus. En mér fyrir mitt leyti finnst, að ég gæti vel gengið inn á þá hugmynd, sem í þessu felst, ef það kemur í ljós, að þessar vörur, sem um er að ræða, verði í svo háu verði, að það fari langt fram úr því, sem við höfum nokkru sinni þekkt, en hins vegar ríktu erfiðleikar viðkomandi öðrum þætti útgerðarinnar. Í því tilfelli gæti komið til mála að taka kúfinn af verðinu fyrir þær útgerðarvörur, sem seldust svo sérlega vel, til þess að bæta um fyrir hinum þáttum útgerðarinnar. En hins vegar finnst mér, að með þessu ákvæði þessarar gr. sé nokkuð langt gengið í þessu efni. Og vil ég mjög skjóta því til hv. frsm., að hann taki þetta til athugunar. Mér skilst nefnilega, að það gæti farið svo með ákvæðum þessarar gr., eins og þau eru nú, að þetta fé yrði tekið í þennan sjóð að nokkrum hluta af þeim útgerðarmönnum, sem rækju útgerð sína með tapi, og þeim sjómönnum, sem bæru úr býtum lægra kaup en t. d. starfsmenn síldarverksmiðjanna í landi. Þetta ber vitanlega ekki að garði nema því aðeins, að aflafengur verði mjög lítill. Þess vegna álít ég, að setja þyrfti lágmarksaflamagnsákvæði í þessa gr., sem tryggðu það, að þau atvik kæmu ekki fyrir, sem ég gat um, að útgerðarmenn, sem reka útgerð með tapi, og sjómenn, sem bera minna úr býtum en verkamenn í landi, sem ég nefndi. þyrftu að greiða skatt í þennan sjóð. Því að mér virðist ekki ná nokkurri átt að skattleggja taprekstur útgerðarmanna og kaupgreiðslur þeirra manna, sem á bátum eru, þannig, að það mundi draga þá langt niður fyrir það, sem þeir menn bera úr býtum, sem í landi vinna að hagnýtingu aflans. Mér skilst, að hægt væri að draga nokkuð úr hættu á þessu, ef ákvæði væri sett um það í þessu sambandi, að þegar afli hvers skips væri kominn upp fyrir eitthvert visst lágmarksaflamagn, þá kæmu ákvæði þessarar gr. fyrst til framkvæmda.
Ég vildi mælast til þess við hv. frsm., að hann vildi athuga þetta, og það mundi þá e. t. v. geta orðið til þess að sætta þá menn, sem hér telja sig ekki vera beint á móti stefnu þeirri, sem fram kemur í þessu, en geta hins vegar ekki fellt sig við þetta eins og það er, af því að þeir telja, að með þessu ákvæði óbreyttu geti orðið gengið of nærri þeim mönnum, sem gera út á síld, og þeim, sem eru hásetar á síldveiðiskipum. Og í þessu máli má heldur alls ekki gleyma því, að síldarútgerðin hefur á undanförnum tveimur árum — eins og hér hefur verið tekið fram — verið rekist hjá ýmsum með verulegum halla. Og ástandið á árinu 1945 var svo í þessu efni, að ekki þótti hjá því verða komizt að gera alveg sárstakar ráðstafanir með fjárframlögum úr ríkissjóði og lánastarfsemi í sambandi við það, sem skipti nokkrum millj. kr., til þess að þeir menn, sem þá gerðu út, gætu haldið áfram atvinnurekstri með útgerð bátanna. Það hafa að vísu ekki verið gerðar neinar slíkar opinberar ráðstafanir gagnvart síldarútveginum vegna afkomu hans á síðasta sumri. En hitt er vitað, að við þann atvinnurekstur bar þá margur skarðan hlut frá borði, svo skarðan, að það veikir mjög aðstöðu þeirra sömu manna til áframhaldandi útgerðar.
Svo er annað atriði viðkomandi efni 6. gr. frv., sem hv. frsm. minntist á o. fl. og ég vildi hreyfa hér, og það er það ákvæði, hvað gera eigi, ef afgangur verður af fé þessa tryggingarsjóðs, þá eigi sjóðurinn að starfa áfram til tryggingar síldveiðunum, eftir þeim reglum, er ríkisstj. setur. Ég get tekið undir með þeim, sem látið hafa orð falla á sömu lund, að ég tel þetta ótækt ákvæði. Mér finnst, að a. m. k. þurfi að bæta þarna aftan við þessa 3. málsgr. 6. gr. annaðhvort: „að fengnum tillögum Fiskifélags Íslands“ eða „að fengnum tillögum Landssambands íslenzkra útvegsmanna“ eða, sem ég hefði heldur kosið, „að fengnum tillögum beggja þessara aðila.“ Hv. frsm. taldi að vísu sjálfsagt, að þessir aðilar fengju að leggja orð í belg um það, hvernig þessu fé yrði varið til tryggingar síldveiðunum, ef afgangur verður í þessum sjóði. En mér finnst málin horfa þannig við, að það sé alveg sjálfsagt, að þessir aðilar fái að gera till. þarna um, og mun ég bera fram brtt. þessu viðvíkjandi við 2. umr., ef hv. n. gerir það ekki. Það mætti líka segja, að það væri ekki óeðlilegt í sjálfu sér að setja í þessi 1., að þessu fé skyldi vera varið til þessara hluta eftir ráðstöfun Alþ. Ég minnist þess, að þegar veitt var hér 5 millj. kr. fjárframlag til þess að styrkja bátabyggingar, þá var slíkt ákvæði sett inn í l. um það, þar sem svo var til tekið, að þessu fé skyldi vera varið samkv. ráðstöfunum Alþ. Og Alþ. gerði sína ráðstöfun þar að lútandi, sem sé að fela stjórn Fiskveiðasjóðs framkvæmd þessa máls. Og Fiskifélag Íslands gerði svo tillögur til stjórnar sjóðsins um veitingar á fénu. Svo að það gæti verið í fullu samræmi við það, sem Alþ. hefur gert í svipuðum kringumstæðum, að ákveða, að þessu fé skuli vera varið eftir ráðstöfunum Alþ. — En undir öllum kringumstæðum tel ég sjálfsagt, að bæta þurfi aftan við 6. gr., að Fiskifélag Íslands og Landssamband íslenzkra útvegsmanna geri till. til ríkisstj. um það, hvernig þessu fé skuli varið.
Ég er þá kominn að því, sem ég ræddi nokkuð um hér áðan, að útvegsmenn hefðu sett tvö skilyrði á öndverðu þessu þingi á þeim fundi, sem fulltrúar þeirra héldu hér í L. Í. Ú. Síðara skilyrðið, sem þeir ræddu þar, er náttúrlega ekki minna um vert fyrir þá, að tekið sé til greina heldur en hið fyrra. Og í sjálfu sér má segja, að allt geti oltið á því fyrir útgerðarmenn, að þetta síðara skilyrði verði tekið til greina. Því að eins og ég leiddi rök að og ræddi um áðan, þá er þeim ekki gagn að því að fá þessa ábyrgð, ef vaxandi dýrtíð í landinu gerir hana að engu fyrir þeim í sambandi við það endanlega verð, sem þeir fá fyrir vöruna á erlendum markaði. Og þetta ákvæði er þá um það að stöðva dýrtíðina. En hér finnst mér vera ákaflega lint á tekið í þessu frv. Og ég verð að segja það, að ég get varla búizt við því, að útvegsmenn leggi mikið upp úr svona ákvæðum eins og þeim, sem felast hér um þetta atriði, sem er aðeins ein gr. upp á hálfa þriðju línu. Þarna er nefnilega ekkert annað að gert og ekkert sagt um stefnu eða aðgerðir Alþ. í þessu höfuðviðfangsefni Alþ. nú annað en að svo er kveðið á um þetta, að kjósa skuli fjögurra manna nefnd eftir tilnefningu þingflokkanna — þ. e. einn mann úr hverjum flokki — til þess að gera till. um það, á hvern hátt komið verði í veg fyrir, að dýrtíðin í landinu vaxi, og að þessi n. skuli skila áliti sínu fyrir 1. febrúar 1947. Þegar maður ber þetta saman við aðgerðir Alþ. í dýrtíðarmálunum á undanförnum árum, þ. e. á þeim tíma, sem næstur okkur er, þá verð ég að segja, að þau dæmi, sem við höfum þar fyrir okkur, eru ekki uppörvandi til þess, að við getum vænzt mikils árangurs af fjögurra vikna starfi þessarar fjögurra manna nefndar (BÁ: Það er tólfmannanefndarþriðjungur). Ég ætlaði að benda á það, að hér er tólf manna n., þrír menn úr hverjum þingflokki, búin að sitja og ræða um þetta mál í fullar sex vikur, og hefur öll sú starfsemi engan árangur borið. Því að það hefur vitanlega verið eitt höfuðviðfangsefni þessarar tólf manna n. að finna leiðir til að slá svo á verðbólguna og dýrtíðina í landinu, að hér væri hægt að reka lífvænlegan atvinnuveg, sem byggðist á sölu framleiðsluvara á erlendum markaði. Árangurinn í þessar sex vikur hjá þessum tólf mönnum — og það var ekki valið af lakari endanum, þegar valdir voru menn í þessa tólf manna n. — er næstum að segja enginn í dýrtíðarmálinu. Mér finnst þess vegna, að þetta ákvæði frv. sé þess eðlis, að það sé ósamboðið Alþ. eins og ástandið er nú og uppfylli að engu leyti þær kröfur, sem útvegsmenn og sjómenn gera og á veltur, hverju svarað er, hvort útvegurinn fer af stað á tilteknum tíma eða ekki. Mér finnst, að sjómenn geti ekki lagt neitt upp úr ákvæðum þessarar gr., ef ekki er sýnd önnur eða meiri viðleitni til að stöðva dýrtíðina en hér er gert. — Ég mun því bera fram brtt. við 2. umr. þessa máls, sem markar skýrar stefnu Alþ. í þessu efni, þótt þar sé ekki langt gengið að vísu. Ég veit, að á þessu stigi, sem við stöndum nú á í þessu máli, þýðir ekki að bera fram róttækar till. hér að lútandi. En ég vil freista þess að bera í þessu efni fram till., sem markaði stefnuna strax. En það kemur vitanlega ekki til fyrr en við 2. umr. þessa máls, að þessi brtt. komi fram, en ég get gjarnan við þessa umr. lýst efni hennar, og það því fremur sem ekki virðast horfur á, að prentaðar fáist brtt., sem menn bera fram í hv. Nd. við þetta mál. Því að miðað við þann nauma tíma, sem ætlaður er þessu máli, verður hv. Nd. að skila þessu máli frá sér á þessum sólarhring eða fyrri hluta næsta sólarhrings, til þess að hv. Ed. fái til þess nokkurt tóm að athuga málið. — Þessi brtt. mín felst í því að bæta aftan við 9. gr. frv. ákvæði um það, — því að ég vil láta það standa, að þessi n. verði kosin, — að þangað til öðruvísi verði ákveðið með l., skuli verðlagsuppbót á launa- og kaupgreiðslur allar ekki vera hærri en svo, að miðað sé við þá verðvísitölu, sem reiknuð var út í desember 1946 og gildir fyrir janúarmánuð 1947, en ef vísitalan lækkar meðan þetta ákvæði gildir, þangað til ný l. koma um þetta, þá skuli verðlagsuppbótin lækka að sama skapi. Í þessu felst ekkert annað en það, að Alþ. tekur ákvörðun um að stöðva vísitöluna, þannig að hún hækki ekki frá þessum degi — og þá, að laun skuli ekki hækka —, er þessi l. verða sett, og gildir þetta þangað til ný l. verða sett af Alþ. um þetta, hvort sem sú löggjöf kemur af starfi þessarar fjögurra manna n. eða þar koma fleiri til. Ég býst við, að sjómönnum og útvegsmönnum þyki þetta ekki langt gengið í þá átt að koma í veg fyrir, að grípa þurfi til meiri ábyrgðar ríkisins. En ég veit, að þeir mundu sætta sig við þetta, ef Alþ. lýsti yfir því, að það ætlaði að stöðva greiðslur eftir hærri vísitölu en kemur til með að gilda fyrir janúar n. k., sem er 306 stig að ég ætla, því að þarna sæju þeir, að Alþ. væri staðráðið í því að ráðast nú á dýrtíðina og verðbólguna. Og það fer svo eftir Guði og lukkunni, hvernig tekst um það að koma atvinnulífinu á þann fót aftur, að hér sé hægt að reka sjálfstæðan og arðvænlegan sjávarútveg frjálst og óháð, og aðra atvinnuvegi sömuleiðis í þessu landi. Því að menn skulu ekki halda, að útvegsmönnum sé það sársaukalaust að þurfa að krjúpa þannig fyrir Alþ. viðvíkjandi sínum atvinnurekstri, útgerðinni, og flýja á náðir þess. Þeir líta allt öðruvísi og miklu stærri augum á sinn þátt og sína starfsemi í þessu þjóðfélagi en svo, að það sé ekki gert af ýtrustu nauðsyn og með sárindum að þurfa þannig að flýja á náðir Alþ. um þennan atvinnurekstur, sem meginafkoma þjóðarinnar byggist á. Þeim er þetta fullkomið hryggðarefni. Og það mun ekki standa á útvegsmönnum og sjómönnum að leggja til þess sitt lið og fórnir af sinni hálfu, að atvinnulífinu á landinu verði aftur komið á þann fót, að hér sé hægt að reka sjálfstæðan, óháðan atvinnurekstur.
Ég vil í þessu sambandi benda á það, sem ég taldi mjög miður farið, að þegar búnaðarþing á símun tíma neyddist til þess árið 1944 að hafa um það forgöngu að lækka þá verðbólgu og dýrtíð, sem þá var skollin á og var ískyggileg gagnvart afurðasölunni á erlendum markaði, og rétti þar fram fórn af hálfu bændanna í vændum þess, að aðrar stéttir í þjóðfélaginu og þá líka Alþ. tæki í þá útréttu hönd, þá var það ekki gert. Ég harma þetta. Og þótt ég sé ekki fær um að spá eða segja fyrir um óorðna hluti, þá býst ég við því, að ef farið hefði verið inn á þessa braut þá, sem búnaðarþing benti til, þá gæti skeð, að við stæðum ekki frammi fyrir þeim erfiðleikum, sem við stöndum nú frammi fyrir hér í dag og við neyðumst sennilega til á síðustu stundu fyrir hátíðina að gera tilraun til þess að greiða úr, þó alls ekki þannig, að í því finnist nein framtíðarlausn á þessu máli, heldur aðeins ráðstafanir til þess að bjarga því, sem bjargað verður, þangað til Alþ. og þjóðin hefur þroska til að haga svo búskaparháttum sínum, að við getum haft í þessu landi sjálfstæðan óháðan atvinnurekstur.
Ég skal svo ekki tala lengur um þetta. Ég sé, hvað setur, hverju fram vindur á þessu máli. Ég ref lýst hér tveimur brtt. Og ég mun kynna mér það hjá hv. n., viðvíkjandi því, sem ég talaði hér um 6. gr. þessa frv., hvort hún vill ekki taka til athugunar að leggja til þær breyt. á frv., að við það verði miðað viðkomandi ákvæðum 6. gr., að þá komi ákvæði hennar fyrst til framkvæmda, er afli hvers skips fer yfir eitthvert visst lágmark, þannig að það verði aðeins það, sem þar er fram yfir, sem til greina kemur að greiða af fé til tryggingarsjóðs, sem um getur í þessari 6. gr. Á þennan hátt tel ég, eins og málin standa nú, óhjákvæmilegt að breyta þessu frv. Hins vegar er einnig alveg gagnslaust að gera það, sem gera á með ákvæðum þessarar 6. gr., ef dýrtíðin verður ekki stöðvuð.