20.12.1946
Neðri deild: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :
Ég get sem einn af flm. brtt. fallizt á það, sem hv. þm. V-Ísf. stakk upp á, að hraða þessari umr. og taka brtt. fyrir við 2. umr. En út af þeim aths., er hann lét fylgja, vil ég ítreka, að með 6. gr. finnst mér of langt gengið, þegar á að láta eina stétt gjalda segna ráðstafana, sem gerðar eru í þágu allra landsmanna. Það er vissulega of langt gengið, þegar á að flytja fjármagn frá fátækari landsfjórðungum til ríkari landsfjórðunga, ég get ekki sætt mig við það vegna míns kjördæmis, og býst ég við, að fleiri þm. að norðan og vestan fari svo. Það er sannarlega ekki til þess að auka álit Alþingis að taka frá þeim, sem lítið hafa, og færa það til þeirra, sem meira bera úr býtum. Vona ég því, að fjhn. taki til athugunar, hvernig koma megi í veg fyrir þennan ágalla.