20.12.1946
Neðri deild: 45. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Pétur Ottesen:
Já, ég lýsti við 1. umr. þessa máls þeim brtt., sem ég hef borið hér fram, sem eingöngu snerta tvær gr. þessa frv., þ. e. 6. gr. og 9. gr. Mér þykir ekki ástæða til að bæta á þessu stigi neinu verulegu við það, sem ég sagði þá um þetta mál. Það er aðeins örskammt um liðið, og nú, í þeim umr., sem hér hafa farið fram, hefur ekki komið fram nein gagnrýni á þessum till. mínum.
Ég tel það sem sé alveg sjálfsagðan hlut, að ef ákvæði 6. gr. verða samþ., verði bætt aftan við 3. málsgr., þar sem gert sé ráð fyrir, að stj. setji reglur um þann tryggingasjóð, sem gert er ráð fyrir þar, og mundi hún setja þá reglugerð að fengnum till. Fiskifél. Íslands og Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Þessar stofnanir fara með mál þeirra manna, sem eiga þetta fé, og þess vegna eðlilegt og raunar sjálfsagt, að tekið sé tillit til þeirra till., sem þeir gera um ráðstafanir þessa sjóðs. Mér virðist, að það hnígi svo rík rök að því, ef Alþ. getur á það fallizt, að þessir aðilar hafi þarna hönd í bagga, ef til kemur, að þessi ákvæði 6. gr. verði endanlega í lög tekin.
Hinu lýsti ég svo einnig við 1. umr., að á 9. gr. þessa frv. eru ákaflega mikil vettlingatök. Það er samkvæmt henni, sem á að takast að stöðva dýrtíðina, og þar er eingöngu gert ráð fyrir skipun 4 manna n., sem geri till. um, á hvern hátt verði komið í veg fyrir, að dýrtíðin í landinu vaxi. Ég benti á það við 1. umr. þessa máls, að við höfum dæmi um það, hvað störf flokkaskipaðra n. hafa orðið hraðfara, bæði á þessu þ. og oft áður, við það að gera till., sem að nokkru haldi komi í þessum málum. Þess vegna vil ég láta það koma hér fram, ef nokkur alvara er á bak við það hjá Alþ. að stöðva dýrtíðina eða stöðva það, að hækkun á vísitölu komi fram á kaupgjaldi og launagreiðslum. Ég tel því sjálfsagt, að þau ákvæði séu tekin inn í þetta frv., sem marki þessa stefnu alveg skýrt og ágreiningslaust, og það er gert með þeirri brtt., sem ég hef flutt í sambandi við 9. gr. þessa frv. En eins og ég lýsti, þá er ekki frekt í farið með þeirri brtt. Það er eingöngu gert ráð fyrir, að stöðvað verði eins og við stöndum nú eða 1. janúar, og skilst mér, að ef hún verður tekin inn í þetta frv., kunni það að verða nokkurt aðhald fyrir þessa menn og aðra, sem koma til með að fjalla um þessi mál, að nokkru frekari árangurs mætti vænta, eftir að slíkt spor er stigið. En þessi ákvæði ein, sem eru í 9. gr., álít ég þýðingarlítil.
Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta. Þessar brtt. mínar koma til atkvæða, og með síðari brtt. minni, við 9. gr., kemur skýrt fram hér á þ., hvort nokkur raunverulegur vilji eða ásetningur Alþ. er að taka þetta mál þeim tökum, að nú verði stigið fyrsta sporið um að stöðva dýrtíðina. Mér finnst, að till. mín skeri alveg úr um þetta.