21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að bera hér fram nýja skriflega brtt. við 6. gr. frv., svo hljóðandi: „Aftan við gr. bætist: Nú verður síldveiði með minna móti, og er ríkisstj. þá heimilt að greiða uppbætur úr tryggingarsjóði á afla ársins 1947. Ríkisstj. er heimilt að stofna sjálfstæð tryggingarsvæði að fengnum tillögum Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Uppbætur og tryggingargjöld fyrir útfluttan eða seldan afla skulu greidd í hlutfalli við afla á svæðinu og öllu landinu. Ríkisstj. ákveður nánar um sérsvæði og sérsjóði með reglugerð.“

Þessi till. er flutt í tilefni af þeim brtt., sem fram hafa komið að undanförnu. Menn hafa talað um, að það tap gæti orðið á næstu síldarvertíð, og hef ég þess vegna flutt fyrri hluta þessarar brtt. um, að greiða megi uppbætur úr tryggingarsjóði, ef afli yrði lítill. Ég hafði hugsað mér, að þetta yrði aðallega bundið við 3 svæði, Vestfirði fyrir sig, Norðurland fyrir sig og Austurland. Vitanlega yrði ríkisstj. að sjá um það, að svæðin yrðu nógu stór til þess að ábyrgð ríkissjóðs ykist ekki.

Það höfuðatriði, hvernig innheimtur skuli síldartollur, leysist auðveldlega þannig, að skipting á greiðslu síldartollsins milli svæða sé í hlutfalli við aflann og að í tryggingarsjóðinn verði greiddur tíundi hluti af síldarsölunni. Að öðru leyti þyrfti ríkisstj. að ákveða með reglugerð stærð svæðanna og annað þessu viðkomandi.

Vildi ég að síðustu óska þess, að forseti gæfi fundarhlé áður en fundi er slitið, svo að hv. fjhn. geti fengið málið til athugunar um stund.