21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður hefur talað vel fyrir heildsalastéttina: Hann ræddi um þá menn, sem væru að gera freklega árás á launþegana, og átti þá við sósíalista. En hverjar eru þær árásir? Það eru tvö meginatriði, sem sósíalistar vilja koma í framkvæmd. Í fyrsta lagi, að innflutningurinn sé tekinn úr höndum einstaklinga og rekinn verði landsverzlun til hagsbóta fyrir almenning, og í öðru lagi, að lagður verði skattur á stórgróða. En á hvað launþega er þetta árás? Árásin er á eina stétt, en það mun vera nýtt að kalla hana launþega, því að það er heildsalastéttin. Hv. ræðumaður ræddi um sem eins konar sönnun fyrir nauðsynjainnflutningi, og það voru bílar. Nú eru bílar ekki lúxustæki, að minnsta kosti ekki vörubílar, en hins vegar hélt ég, að hv. ræðumaður hefði getað fundið eitthvert betra dæmi. Annars er það vitað, að bifreiðaverzlunin er hneyksli og talið, að margir innflytjendur hafi látið menn borga til að fá bifreið, og enn fremur er sagt, að sumir þeirra selji bifreiðar eftir gangverði. Hér á árunum var hafin árás á bifreiðaeinkasöluna, en ástandið hefur lítið batnað hjá heildsölunum.

Mér þykir leitt, að hv. þm. Borgf. er farinn, en þó mun ég segja nokkur orð til hans. Hann gerðist svo lítillátur að þakka mér ræðu mína. Ég get ekki endurgoldið honum þessa vinsemd, því að bæði ræða hans og till. voru fullar af afturhaldi og þröngsýni. Hann ræddi um það, að hann þakkaði mér, að ég hefði upplýst, að með 9. gr. væri ekkert gert til að hefta dýrtíðina. En hvað vill hv. þm. Borgf. gera umfram 9. gr.? Hann vill, að frá 1. jan. 1947 verði verðlagsuppbót á laun ekki látin hækka. Þetta er eina leiðin, sem hv. þm. Borgf. sér til þess að lægja dýrtíðina. Jafnvel þeir, sem lengst ganga til árása á launþegana, fara ekki svo langt. Hv. þm. V-Húnv. stóð upp og lýsti stuðningi sínum við þessa brtt. hv. þm. Borgf., og kom engum það á óvart. En eitt sagði hann, sem var athyglisvert, og það var, að hann teldi, að brtt. væri ekki einhlít. Mér finnst, að þessi till. hv. þm. Borgf. og ræða hans mótist af þröngsýni, vegna þess að hann sér enga leið nema að ráðast á launþegana. Hann og fleiri hafa lýst vilja til að koma útgerðinni af stað, en ég vil benda þessum góða manni á það, að það er ekki nóg að reka útgerð, því að það eru líka menn í landi, sem vinna við skipin. Þess vegna undraði það mig, að þeir vilji hjálpa útvegsmönnum, en um leið vilja þeir ganga að launþegunum. Ég vil því beina því til hv. Alþingis, ef menn vilja útgerð á komandi ári, þá verður að minnast þess, að til eru verkamenn, sem vinna við útgerðina, og ef kjör verkamanna verða skert, getur skeð, að engin útgerð eigi sér stað á þessu ári.

Að endingu vil ég taka það fram, að þetta er alvörumál og lýsi ég stuðningi við frv. að undantekinni 6. gr. Ég vænti því, að frv. verði samþ., en vil skora á hv. þm. að fella brtt. hv. þm. Borgf.