21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Gylfi Þ. Gíslason:
Ég tel nauðsyn til bera að gera nú þegar öflugar ráðstafanir til þess að sporna við frekari hækkun vísitölunnar og vexti dýrtíðarinnar. Hins vegar álít ég það enga lausn á málinu, að ríkisstj. hefji nú almennar niðurgreiðslur á vöruverði skamman tíma. Ég tel hins vegar vel geta komið til mála, að verð ákveðinna vörutegunda, sem hækka kunna á næstu mánuðum, verði lækkað með greiðslu úr ríkissjóði, og hef ég þar tiltekna innlenda iðnaðarvöru í huga, sem mér er kunnugt um, að mjög mikil hækkun er í vændum á, sem valda mun 1–2 stiga hækkun á vísitölunni. Geri ríkisstj. ekki ráðstafanir til lækkunar á henni, mun ég ef til vill leggja fram till. um, að það skuli gert. En þar sem ég tel almenna niðurgreiðslu stuttan tíma enga lausn á þessum málum, get ég ekki fylgt þessari till. og segi því nei.
Brtt. 254,2 felld með 16:3 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já: JS, PU, GSv.
nei: GÞG, HB, HermG, JóhH, KTh, LJós, SG, SEH, StJSt, ÁkJ, ÁÁ, EOl, EmJ, FJ, GTh, BG. HelgJ, JPálm, JJ, JörB, ÓTh, SB, SkG, StgrSt, BÁ, EystJ greiddu ekki atkv.
6 þm. (HÁ, IngJ, PÞ, SigfS, SK, GÞ) fjarstaddir.
5 þm. gerðu grein fyrir atkv. sínu: