22.12.1946
Efri deild: 45. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1299 í B-deild Alþingistíðinda. (1471)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls var af hv. þm. Barð. gerð aths. við niðurlagsorð 1. mgr. 6. gr., sem hljóðar þannig:

„Til þess að standast þau útgjöld, sem kann að leiða af ábyrgðum samkv. 2.–4. gr., skal ríkisstjórnin halda eftir og leggja í sérstakan tryggingarsjóð þann hluta af söluverði síldarafurða 1947, sem er umfram hrásíldarverð eins og það var 1946, að viðbættri hækkun, sem svarar til fiskverðshækkunar samkv. 1. gr. og vinnslukostnaði. Nú hækkar útflutningsverð einstakra fisktegunda meira en nemur ábyrgð ríkissjóðs, og skal þá það, sem umfram er, renna í tryggingarsjóð.“

Það var þá um talað, að athugun á þessu færi fram milli 2. og 3. umr., og hefur fjhn. komið saman til að athuga þetta og meiri hl. hennar fallizt á, að eins og 6. gr. sé nú orðuð, sé ekki ástæða til að halda þessu ákvæði, þar sem nú er gert ráð fyrir, að afgangi tryggingarsjóðs skuli skipt upp milli síldarútvegsmanna. Þetta ákvæði um að láta það, sem umfram yrði, renna í tryggingarsjóð, var eðlilegt á meðan stofna átti vaxanlegan tryggingarsjóð, en meiri hl. hefur fallizt á, að þetta ákvæði sé ekki nauðsynlegt, heldur óþarft, og flytur brtt. um að fella það niður. Ég leyfi mér því að leggja fram skriflega brtt. um þetta atriði. Minni hl. taldi sig ekki vilja flytja þessa till., en vildi láta afskiptalaust, þótt meiri hl. flytti hana.