28.11.1946
Neðri deild: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)

32. mál, héraðsskjalasöfn

Frsm. (Barði Guðmundsson) :

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. þd. hefur athugað frv., sem er prentað á þskj. 46. N. hefur orðið sammála um að mæla með frv., þó með ofurlitlum breyt. á 1. og 3. gr. frv.

Breyt. á 1. gr. er því fólgin, að orðin „í kaupstöðum utan Reykjavíkur“ falli niður. N. lítur svo á, að Reykjavík skuli ekki hafa neina sérstöðu hér um.

Við 3. gr. frv. er breyt. í því fólgin, að með undirskattanefnd komi yfirskattanefnd. Hv. flm. hefur tjáð, að hann samþykki þessar breyt. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um einstakar gr. frv., þar sem mjög ýtarleg grg. fylgir því.