13.12.1946
Neðri deild: 37. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (160)

55. mál, aðflutningsgjöld o. fl.

Gylfi Þ. Gíslason:

Ég var andvígur flugvallarsamningnum við Bandaríkin og þar á meðal þeim ákvæðum hans, sem hér er gert ráð fyrir að lögfesta. Mér væri því skapi næst að segja nei við frv. Hins vegar á hér aðeins að vera um að ræða staðfestingu á ákvæðum í milliríkjasamningi, sem þegar hefur verið gerður og ekki verður breytt að svo komnu, og má því segja, að um formsatriði eitt sé að ræða, sem ekki verði hjá komizt. Ég tel heppilegra að lögfesta þau atriði samningsins, sem sérstakrar lögfestingar þurfa, með einum l., en setja ekki sérákvæði í mörg l. þann stutta tíma, sem ég vona, að samningurinn verði í gildi. Á hinn bóginn tel ég brýna nauðsyn bera til, að þessi einu l., sem lögfesta ákvæði samningsins, séu alveg sérstæð, þannig að enginn vafi sé á því, hvað séu l. hér á landi að þessu leyti og hvað ekki, og þannig ætti að vera hægt að hafa þau. Þess vegna get ég ekki fylgt dagskrártill. hv. minni hl. fjhn. — Frv. því, sem hér liggur fyrir, er þó ábótavant í þessu tilliti. Af þessum ástæðum get ég heldur ekki fylgt því. Ég mun því ekki greiða atkv., hvorki um dagskrártill. né um frv.