30.01.1947
Neðri deild: 62. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Herra forseti. Ég skal ekki verða langorður. Hv. 2. þm. N-M. taldi, að mér væri ekki vel ljóst, hvað væri í núgildandi l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð. Mér er það nú sæmilega ljóst, þó að ég læsi upp aðalatriðið í 2. gr. þessa frv., sem útvegsmannasambandið hefur sent okkur. Ég tók það skýrt fram, að þær till., sem í því felast, væru óframkvæmanlegar. Það væri ekki hægt að fela þessu ráði útflutning og innflutning og margs konar ráðstafanir í sambandi við hann, sem viðskiptaráð hefur ekki áður haft. En það er það, sem er meiningin, eins og líka nál. minni hl. ber með sér, þar sem segir í 4. gr. frv. útvegsmanna, með leyfi hæstv. forseta : „Nýbyggingarráð og viðskiptaráð skulu sameiginlega útbúa fyrir ár hvert heildaráætlun um útflutning og innflutning þess árs magn og verðmæti, svo og um, til hvaða landa útflutningurinn fari og frá hvaða löndum innflutningurinn komi. Skal áætlun þessi miðast við það að hagnýta sem bezt markaðsmöguleika og fullnægja sem hagkvæmast innflutningsþörf landsmanna:“ Það var lítið annað, sem ég sagði í minni ræðu, þó að það væri kannske lengra mál. Ég geri líka mikinn mun á því, hvort þetta ráð, sem á að hafa öll þessi völd, er skipað af ríkisstj., eða mennirnir séu tilnefndir af óskyldum og kannske ósamtaka félögum. Á þessu geri ég mikinn mun, og ekki sízt, ef þessu ráði skyldu verða falin fleiri verkefni en gert er ráð fyrir í frv. útvegsmanna, eins og kemur fram í grg, þeirra, að þeir muni helzt vilja óska. Það hjálpar ekki að benda á viðskmrh. einan. Það eru fleiri ráðh., sem kemur þetta við, og kannske öll ríkisstj. í heild.

Það má segja, að það hafi verið gefin loforð um breyt., og það eru líka eilíf loforð um ríkisstj., og það verður fátt um störf á þessu þingi, fyrr en fullnægt er þeirri grundvallarskyldu.

Mér skilst á hv. 2. þm. Reykv., að hann hafi slæma reynslu af ríkisstj., sem hann þó hefur stutt, og helzt væri þó von um úrbót, þegar engin stjórn væri. Ég man eftir, að ég heyrði sagt á Austfjörðum, að þegar kóngurinn væri dauður, mætti margt gera, og einn maður gifti sig í fjórða sinn, eftir að kóngurinn var dauður og annar ekki tekinn við. Og ég heyri nú, að hv. 2. þm. Reykv. hefur tröllatrú á þessu.

Ég játa það, að ég álít, að til þurfi að vera ábyrgur þingmeirihluti og að ríkisstj. sé studd af honum. Fyrr er ekki að vænta árangurs í þessu efni. Við vitum, hvað við höfum gert hér á hv. Alþ. í þessa fjóra mánuði.