13.11.1946
Neðri deild: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (1738)
66. mál, menntun kennara
Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson) :
Herra forseti. Á síðasta fjárlagaþingi flutti menntmn. þessarar hv. d. frv. um æfinga- og tilraunaskóla. Það var 99. mál þingsins á þskj. 173. Þetta frv. var samið af mþn. í skólamálum og flutt að beiðni hæstv. menntmrh. Örlög þess urðu þau á þinginu, að þessi hv. d. afgreiddi það breytingalaust, en það dagaði síðan uppi í hv. Ed. Menntmn. flutti einnig á sama þingi frv. um menntun kennara, sem var 100. mál þingsins á þskj. 174. Þetta mál var á sama hátt undirbúið, sem sé samið af mþn. í skólamálum og flutt að beiðni menntmrh. Menntmn. þessarar hv. d. tók það mál til mjög rækilegrar athugunar. Hélt n. um það marga fundi og ræddi það við ýmsa aðila, þar á meðal og fyrst og fremst við aðila frá Háskóla Íslands, en frv. tók nokkuð til starfa hans. Niðurstaðan varð sú, að ekki gat orðið fullt samkomulag við þá aðila frá háskólanum, sem um málið ræddu við n., í þeim búningi, sem það þá lá fyrir í. Menntmn. þótti þá rétt, að mjög vel athuguðu máli, að afgreiða ekki málið á því þingi, en freista þess að fá um það samkomulag milli aðila háskólans og annarra, sem um málið höfðu fjallað. Málið dagaði því uppi í þessari hv. d., þó að menntmn. hefði haft það til mjög rækilegrar meðferðar og komið sér saman um nokkrar breyt. á því. Síðan hefur mþn. í skólamálum haft þessi frv. bæði til endurskoðunar. Sú varð niðurstaðan af því, að þeim var steypt saman í eitt frv. Háskólinn hefur rætt um þann kafla þessa frv., sem hann varðar, og varð í haust fullt samkomulag milli mþn. í skólamálum og háskólaráðs og heimspekideildar háskólans um það, í hvaða formi málið skuli lagt fyrir Alþ. Málið er því komið hér á ný að beiðni hæstv. menntmrh. og flutt af menntmn., og þá í því formi, sem samkomulag varð um milli þeirra aðila, sem ég áður hef getið um.
Að sjálfsögðu væri hægt að stytta framsögu fyrir málinu mjög og vísa til þess, að á síðasta þingi var höfð allýtarleg framsaga hér í þessari hv. d. fyrir því og að þá fylgdi því næsta nákvæm grg. En mér þykir þó rétt að geta nokkurra höfuðatriða varðandi þetta frv., sem nú liggur hér fyrir, sem er 66. mál á þskj. 94. Tilgangurinn með þessu frv. er sá að skipa í eina heild öllum lagaákvæðum, sem varða kennaramenntun og sérstaklega uppeldisfræðslu með þjóð vorri, og að búa þeim skólum, sem um þessi mál fjalla, stað í því nýja skólakerfi, sem lögfest var á síðasta þingi.
I. kafli frv. fjallar um Kennaraskóla Íslands. Sá kafli má heita með öllu óbreyttur frá því, sem hann var lagður fyrir á síðasta fjárlagaþingi. Og breyt. frá núgildandi l. um Kennaraskóla Íslands eru ekki ýkja stórvægilegar. En þær helztu af þeim eru, að kennaraskólanum er skipað sæti í hinu nýja skólakerfi með þeim hætti, að miðskólapróf bóknámsdeildar er gert að inntökuskilyrði í skólann. M. ö. o., þar eru sett sömu inntökuskilyrði og í menntaskólum landsins. Þetta er ekki svo stór breyt. sem margir ætla, því að á undanförnum árum hafa verið inntökupróf í skólann með álíka kröfum og tveggja ára gagnfræðaskólapróf samkv. eldri l., og próflaust hafa nemendur mátt ganga í kennaraskólann, ef þeir hafa haft þetta próf. En hér er lagt til, að sömu reglur um inntökuskilyrði verði í kennaraskólanum og í menntaskólunum og að kennaraskólinn verði 4 ára skóli, m. ö. o., að þar sé um nákvæmlega sama námstíma að ræða- og hjá menntaskólunum.
Þá er það nýlunda í þessu frv., að lagt er til, að kennarapróf fái að nokkru leyti sama gildi og stúdentspróf. Það er gert ráð fyrir, að í reglugerð megi ákveða, að próf í þeim námsgreinum, sem lokið hefur verið prófi í við kennaraskólann, skuli hafa stúdentsprófsgildi. Það þýðir, að tilgreina má í reglugerð, í hvaða námsgreinum kennarapróf hafi slíkt gildi, þannig að ef nemandi síðar óskar að ná stúdentsprófi, þurfi hann ekki að taka próf í þeim námsgreinum, heldur verði einkunnir hans við kennarapróf færðar inn á stúdentsprófskírteinið. Lagt er hér til, að um menntaskólana gildi gagnkvæmt þessu við kennaraskólapróf. Það er lagt hér til, að heimilt sé að ákveða í reglugerð, að stúdentspróf í vissum greinum skuli á sama hátt hafa gildi við kennarapróf, þannig að stúdentar, sem óska að taka fullgilt kennarapróf, þurfi ekki til þess að þreyta próf í þeim greinum, sem þeir hafa stúdentspróf í, heldur verði einkunnir frá stúdentsprófi í þeim greinum færðar inn á kennaraprófskírteini þeirra.
Þá er það nýlunda í þessu frv., að kennaraskólanemendur, sem prófi ljúka, og stúdentar öðlast rétt til þess að stunda nám í sérstakri deild, sem lagt er til, að stofnuð verði við Háskóla Íslands, og ætla ég þá, að upp séu taldar þær breyt., sem lagt er til í þessu frv., að gerðar verði á högum kennaraskólans.
II. kafli frv. hljóðar um kennslustofnun í uppeldisvísindum við Háskóla Íslands. Það er sá kafli, sem ekki tókst að ná um samkomulagi við fulltrúa háskólans á síðasta ári, sem varð til þess, að málið tafðist. Í þeirri mynd, sem þessi kafli liggur hér fyrir nú, er ætlazt til þess, að við heimspekideild háskólans verði komið á fót kennslustofnun í uppeldisvísindum, og að að þeirri stofnun eigi aðgang til þess að stunda nám þeir, sem lokið hafa kennaraprófi og stúdentsprófi. Þessi stofnun á aðeins að fjalla um uppeldisvísindi og önnur þau fræði, sem hagnýt eru þeim, sem við kennslu fást og uppeldisstörf. En eins og frv. var lagt fyrir á síðasta þingi, var starf þessarar stofnunar áætlað nokkru víðtækara. Þá var gert ráð fyrir, að hún veitti einnig nemendum ýmsa fræðslu í þeim sérgreinum, sem þeir ætluðu að verða kennarar í, og undirbyggju þá þannig bæði til þess að takast á hendur kennslu við skóla gagnfræðastigsins og aðra skóla innan fræðslukerfisins. Háskólinn vildi ekki taka upp þetta fyrirkomulag. Hann vildi skorða þessa deild við uppeldisvísindi, en að aðrir skólar veittu kennaraefnum fræðslu í sérgreinum, sem þeir ætluðu að gera að starfi sínu að kenna. Áður hefur verið á það bent af háskólans hálfu, að hvað íslenzku og íslenzk fræði snerti væri auðvelt að koma þessu við í sambandi við norrænudeild háskólans, hvað tungumál snerti væri kennt við háskólann í svo kallaðri A-deild, og mundu kennarar, sem ætluðu að kenna tungumál, geta stundað sérnám sitt þar, og loks var bent á það, að till. hefðu legið fyrir um að koma upp kennslu í náttúruvísindum í sambandi við Atvinnudeild háskólans. Mþn. í skólamálum hefur fallizt á þetta sjónarmið háskólans. Menntmn. þessarar hv. d. hefur að vísu ekki rætt þetta atriði málsins til neinnar hlítar. En ég hygg þó, að menntmn. muni fallast á þessar till. eins og þær liggja nú fyrir.
III. kafli frv. fjallar um æfinga- og tilraunaskólann, og er hér um að ræða það frv., sem lá fyrir síðasta þingi, óbreytt að kalla, eða raunverulega má segja alveg óbreytt. En í þessu sambandi vil ég minna á, að það frv. var á sínum tíma fram borið til þess að fullnægja ákvæðum í l. um Kennaraskóla Íslands, sem eru l. nr. 50 frá 14. apríl 1943. En þar segir í 9. gr., með leyfi hæstv. forseta: „Stofna skal, svo fljótt sem því verður við komið, æfingaskóla í sambandi við Kennaraskólann með öllum ársdeildum venjulegra barnaskóla.“ Með þessum kafla frv. erum við að leggja drög að því, að þetta ákvæði hinna gömlu kennaraskólal. verði uppfyllt, og ætla ég, að engar deilur standi um það, að ríka nauðsyn beri til þess, að kennaraskólinn eignist slíka stofnun, þar sem kennaraefni geti stundað verklegar æfingar í námsgreinum sínum. Ætla ég ekki, að deilur standi um það, að nauðsynlegt sé fyrir uppeldisvísindi í landinu að hafa slíkan skóla til þess að reyna nýjar kennsluaðferðir og gera vísindalegar tilraunir um árangur þeirra.
Þessir tveir kaflar, II. og III. kafli, eru þau einu nýmæli, sem nokkru skipta, sem felast í þessu frv., og þykir mér ekki ósennilegt, að hv. þm. muni spyrja, hvort þau muni ekki hafa mikinn nýjan kostnað í för með sér. Því er ekki að leyna, að kaflinn um kennslustofnun í uppeldisvísindum við háskólann hlýtur að hafa nokkuð verulegan aukinn kostnað í för með sér. Það er gert ráð fyrir því, að þar verði nýr maður kvaddur til starfa, og verður hann að sjálfsögðu á dósentslaunum. Og einnig er rétt að gera ráð fyrir því, að kaupa verði nokkra aukakennslu, en reynslan ein getur úr því skorið, hve miklu það muni nema. En hitt ætla ég sjálfsagt, að ef við eigum að fá okkar kennslu- og skólamál í æskilegt horf, þá hljóti þessi deild að stækka með tíð og tíma og þeim mönnum að fjölga, sem leita sér þangað fræðslu til þess að undirbúa sig fyrir ævistarf sitt sem kennarar.
Um æfinga- og tilraunaskólann er það að segja, að ég tel ekki sennilegt, að hann hafi í för með sér mikið aukin útgjöld. Nokkrir af þeim kennslukröftum, sem nú starfa við kennaraskólann, mundu færast yfir á þennan skóla. Þó hygg ég vafalaust, að það þyrfti að bæta nokkrum kennslukröftum þar við. En þó mundu þau börn, sem stunda nám við þennan skóla, ekki þurfa að stunda nám í öðrum skólum, og mundi við það sparast húsnæði við aðra barnaskóla þessa bæjar. M. ö. o., þessum börnum mundi með þessum skóla vera séð fyrir lögboðinni fræðslu. Og sá kostnaður, sem mundi verða meiri við þennan skóla en aðra skóla fyrir börn, mundi ekki verða meiri en sem svaraði launum þeirra manna, sem mundu flytjast frá kennaraskólanum yfir til þessa skóla.
IV. kafli frv. er um Íþróttakennaraskóla Íslands. Sú stofnun starfar nú á Laugavatni, og eru hér í raun og veru ekki gerðar neinar verulegar breyt. á hennar högum, aðrar en þær, að krafizt er kennaraprófs til inngöngu í skólann fyrir þá nemendur hans, sem ætla sér að öðlast rétt til að vera íþróttakennarar. Það þótti sjálfsagt að gera ekki minni kröfur til þeirra manna um almenna menntun, sem verða sérkennarar í íþróttum, heldur en til annarra kennara. En ég tek skýrt fram, að að sjálfsögðu er mönnum heimilt að stunda nám við Íþróttakennaraskólann, þó að þeir ekki hafi lokið kennaraprófi. En þeir öðlast þá ekki rétt til þess að vera kennarar við íþróttaskóla landsins. Hins vegar geta þeir haft með höndum leiðbeiningarstarfsemi hjá íþróttafélögum og verið leiðbeinendur á ýmsan hátt í íþróttamálum.
V. kafli frv. er um Handíðakennaraskóla Íslands. Sú stofnun er enn ekki til, en handíðaskóli er starfandi hér í Rvík, og hefur hann m. a. haft það hlutverk með höndum að veita kennaraefnum, sem stundað hafa nám í kennaraskólanum, kennslu í ýmsum handíðum, ef þeir hafa haft í hyggju að gerast sérkennarar síðar í þeim greinum við barnaskóla. Það skal tekið fram, að handíðaskólinn hefur notið styrks frá ríkinu sem svarar þeim kostnaði, sem hann hefur haft af þessari kennslu fyrir kennaraefnin. Hér er lagt til, að sett verði lagaákvæði um þetta, og gert ráð fyrir, að stofnaður verði handíðaskóli, sem verði ríkisskóli og starfi sem liður í því kerfi, sem hér er verið að byggja upp utan um kennaramenntunina. En meðan ekki verður að því ráði horfið að stofna þennan skóla sem ríkisskóla, þykir rétt að heimila að halda þeim hætti, sem nú er, að fela handíðaskólanum, sem er hér í Rvík. þetta starf og greiða úr ríkissjóði þann kostnað, sem verður af kennaradeild við þann skóla.
Hér eru gerð sömu inntökuskilyrði eins og í íþróttaskólann, sem sé þau, að nemandi hafi lokið kennaraprófi, því að ekki þykir hlýða að gera minni almennar kröfur til þeirra, sem ætla að kenna verklegar greinar, en annarra kennara. Að sjálfsögðu gildir svo sama regla og við íþróttakennaraskólann, að mönnum sé heimill aðgangur að honum, þó að þeir hafi ekki kennarapróf, en fái þá ekki rétt til að vera kennarar við slíka skóla.
VI. kaflinn er um húsmæðrakennaraskóla. Hann er nú til starfandi samkv. l. Er líkt um hann að segja og íþróttakennaraskólann, að hér er fyrst og fremst sú breyt. gerð á, að krafizt er kennaraprófs til inntöku í skólann fyrir þá nemendur, sem ætla að verða sérkennarar í þeim fræðum, sem skólinn fjallar um.
Síðast er VII. kafli frv. Hann fjallar um réttindi og skyldur kennara, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þann kafla. Ákvæði hans eru almenns eðlis og hliðstæð því, sem komið er inn í þau l., sem samþ. voru á síðasta þingi um fræðslumál þjóðarinnar yfirleitt.
Ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í þetta mál í þessari framsögu, en vísa aftur til þeirrar ýtarlegu framsögu, sem fylgdi þessu frv. á síðasta þingi. Ég býst ekki við, að menntmn. telji sig þurfa að fjalla mjög mikið um þetta mál fram yfir það, sem orðið er, svo ýtarlega meðferð sem það hlaut af n. á síðasta þingi. Að sjálfsögðu er þó n. ljúft og skylt að taka til athugunar aths. og brtt., sem fram kunna að koma hjá hv. þm., hvort sem er við þessa umr. málsins eða aðrar umr.
Ég vil svo óska, að málinu verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni.