30.01.1947
Efri deild: 61. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)

66. mál, menntun kennara

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Á síðasta fjárlagaþingi voru flutt hér tvö frv., annað um æfinga- og tilraunaskóla, en hitt um menntun kennara. Fyrra frv. náði samþykki Nd. og fór gegnum 1. umr. í þessari d. og til n., en fékk þar ekki afgreiðslu, en frv., um menntun kennara fór gegnum eina umr. í Nd. og svo til menntmn. þeirrar d., en ekki lengra. Og ástæðan til þess, að bæði strönduðu, var m. a. sú, að það þótti við athugun réttara að steypa þessi tvö frv. saman í eina heild, sem nú hefur verið gert, og koma till. úr báðum frv. fyrir í því frv., sem hér liggur fyrir.

Það má segja, að þær till., sem hér liggja fyrir, séu aðeins eðlileg lausn á því viðfangsefni, sem hér er um að ræða, og aðeins þáttur í þeirri löggjöf í skólamálum, sem samþ. var á síðasta þingi, þáttur, sem verður að koma, ef hitt á ekki að verða að meira eða minna leyti hégómi. En af því að þetta mál fór umræðulaust til menntmn. þessarar d. við 1. umr., vil ég leyfa mér að gera nokkra grein fyrir því, hvaða breyt. hér er um að ræða frá eldri l., og eins ný ákvæði, sem ekki hafa verið í l. áður.

I. kafli fjallar um Kennaraskóla Íslands. Það er ekki hægt að segja, að veruleg breyt. sé gerð á l. um hann. Síðast voru samþ. l. um hann 1943, og breyt. þær, sem hér er um að ræða, eru nokkrar, en ekki stórvægilegar.

Í fyrsta lagi er sú breyt. gerð, að kennslutíminn verður 8 mánuðir í stað 7 mánaða í eldri l.

Í öðru lagi er sú breyt. gerð, að aldurstakmarkið til að fá inntöku í skólann er 16 ár, en ekki 17 eins og verið hefur. Er þetta gert í samræmi við annað ákvæði um undirbúningsmenntunina, en þar er það ákvæði, að í undirbúningsmenntun undir skólann þurfi nemendur að hafa tekið miðskólapróf við bóknámsdeild gagnfræðaskóla í staðinn fyrir, að áður þurfti 2 vetra gagnfræðanám til þess að fá inntöku. Nú er þannig gert ráð fyrir í l. um gagnfræðaskóla, að miðskólaprófi skuli vera lokið við 16 ára aldur. Það þótti ekki rétt að hafa bil á milli, heldur væri réttast að heimila nemendum, sem hefðu lokið miðskólaprófi, að ganga inn í kennaraskólann, þegar því væri lokið.

Þá eru hér í 8. og 9. gr. ákvæði, sem ekki hafa verið í l. áður. Þau eru þannig, að það skuli gilda gagnkvæm réttindi um kennaraskólann og menntaskólana, þannig að nemendur úr hvorum fyrir sig geti gengið inn í hinn án þess að taka sérstök próf í þeim fræðum, sem kennd eru sameiginlega í báðum skólunum. Það hefur að vísu áður verið praktiserað og mun hafa staðið í reglugerð hvað við kemur stúdentum, að þeir hafa farið í kennaraskólann, tekið þar uppeldisfræði, tekið próf í þeim fræðum og síðan öðlazt full kennararéttindi, en hér er svo ákveðið, að þetta er sett í l. um stúdenta og ákveðið, að með reglugerð megi heimila, að kennaraskólapróf í almennum námsgreinum skuli gilda sem stúdentspróf í þeim greinum og að menn útskrifaðir úr kennaraskólanum þurfi ekki að taka próf í þeim námsgreinum, ef þeir ganga undir stúdentspróf.

Ég hef þá gert grein fyrir öllum aðalbreyt. á tillögun kennaraskólans.

Þá er II. kafli í frv., sem fjallar um kennslustofnun í uppeldisvísindum við Háskóla Íslands. Í 37. gr. l. um gagnfræðanám er svo ákveðið, að til þess að verða kennari við skóla gagnfræðastigs skuli í fyrsta lagi verða að uppfylla skilyrði um almenna menntun kennara og til viðbótar hafa stundað 1–2 ára nám við háskóla í þeirri fræðigrein, sem ætlazt er til, að verði aðalkennslugrein hlutaðeigandi manns við viðkomandi skóla. Hins vegar er það af flestum talið mjög æskilegt, að kennarar við barnaskóla geti einnig átt kost á að stunda meira framhaldsnám en hægt mun verða að veita við kennaraskólann, þó að hann verði 4 ára skóli, sambærilegur við menntaskólana, en til þess að fullnægja þessu skilyrði, sem er hér komið í l., þá er gert ráð fyrir að stofna kennslustofnun í uppeldisvísindum við Háskóla Íslands, svo fljótt sem aðstaða er fengin til að hafa tilraunakennslu í sambandi við kennaraskólann. Hlutverk þessarar stofnunar á að vera að mennta kennara betur í uppeldisvísindum en tök yrðu á í kennaraskólanum, þá sem æskja eftir því framhaldsnámi. Enn fremur eru hér ákvæði um kennsluna í þessari deild, að hún skuli veita barna- og unglingakennurum framhaldsmenntun og búa þá, sem lokið hafa kennaraprófi, undir kennslu við miðskóla og gagnfræðaskóla.

Þá er eitt atriði. Í frv. því, sem var til meðferðar í fyrra vetur, var gert ráð fyrir því, að þessi kennaradeild við háskólann skyldi ekki eingöngu veita stutta framhaldsmenntun í uppeldisvísindum, heldur einnig í öðrum námsgreinum, sem kynni að þurfa að leggja stund á til að fá rétt til að kenna við gagnfræðaskóla. Ein ástæðan til þess, að þetta frv. dagaði uppi, var sú, að háskólinn vildi ekki fallast á þetta, vildi hins vegar binda þetta alveg við uppeldisvísindin, en aðrar deildir háskólans skyldu kenna aðrar þær fræðigreinar, sem menn þyrftu að leggja stund á. Í samræmi við þessar óskir háskólans er gert ráð fyrir í þessum kafla, að heimspekideild Háskóla Íslands annist kennsluna í uppeldisvísindum, en aukakennurum, er heimspekideild ræður, skuli falin önnur kennsla. Enn fremur er hægt, að vísu ekki nema fyrir stúdenta, að taka hin svo kölluðu AB-próf í tungumálum, sem hafa verið ákveðin ekki fyrir löngu. En ég vil benda á, að þetta er samkvæmt till. háskólans sjálfs, að þessu hefur verið breytt frá því, sem var í frv. á síðasta fjárhagsþingi.

Þá er III. kafli frv., sem fjallar um æfinga- og tilraunaskóla. Hér er um að ræða að nokkru leyti nýmæli, en þó ekki að öllu leyti, vegna þess að 9. gr. núverandi l. um kennaraskólann ákveður svo, að stofna skuli æfingaskóla við kennaraskólann. Þeir, sem eru kunnugir því, hvernig möguleikar hafa verið á að viðhafa æfingakennslu við kennaraskólann, hafa viðurkennt fyrir löngu, að full þörf sé á umbótum á því sviði, því að aðbúnaður sé þar mjög slæmur vegna húsnæðisleysis. Æfingadeildinni hefur verið ætluð ein léleg stofa í kjallara. Hún hefur að vísu fengið nokkurt viðbótar húsnæði undanfarin ár í húsi, sem þó er alls ekki byggt sem slíkt, Grænuborg. Þetta hefur gert mun erfiðara en skyldi að hafa æfingakennsluna í eins góðu lagi og þurft hefði. Þetta var líka Alþingi ljóst 1943, þegar það gekk frá hinum nýju l. um kennaraskólann, þar sem svo var ákveðið, að svo fljótt sem við yrði komið skyldi stofnaður æfingaskóli með öllum ársdeildum barnaskóla, þar sem hægt væri að hafa æfingakennsluna í fullkomnu lagi. Í frv. er þessi stefna tekin upp og henni sniðnar fastari skorður og sett um stofnunina þau ákveðnu ákvæði, sem um er að ræða hér. Auk þess er gert ráð fyrir því, að þessi stofnun skuli ekki eingöngu hafa það hlutverk með höndum að veita kennaraefnum æfingu, heldur einnig rannsóknir og tilraunir í þágu uppeldismálanna, svo að þar geti fengizt niðurstöður, sem gagn megi að verða.

IV. kafli frv. fjallar síðan um Íþróttakennaraskóla Íslands. Það er stofnun, sem hefur verið starfrækt nokkur ár á Laugarvatni. Ekki eru stórvægilegar breyt. gerðar á ákvæðunum um hann, heldur eru l. um hann fyrst og fremst felld inn í þetta kerfi, en þó eru í 28. gr. ákvæði, sem hljóða þannig, að til þess að öðlast íþróttakennararéttindi samkv. 1. tölulið 24. gr., skuli menn hafa lokið prófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands og almennu kennaraprófi. Þetta er aðalbreyt., sem um er að ræða á skólanum, þ. e. a. s. að nemendur, sem vilja taka íþróttakennarapróf, verða ekki einungis að ljúka prófi frá íþróttakennaraskólanum, heldur einnig almennu kennaraprófi.

Þegar menn athuga þetta mál, þá er ekki hægt að mæla móti því, að ýmislegt mælir með því, að svo skuli vera. Í fyrsta lagi er það, að þessir menn fá þarna aukin réttindi og meiri en almennir kennarar, því að þeir fá réttindi til að kenna almennar námsgreinar og íþróttir að auki. Auk þess verður því tæplega neitað, að almenn kennaramenntun er nauðsynleg þeim, sem við íþróttakennslu fást, og þessir menn hafa betri aðstöðu um stöðuval en aðrir kennarar. Í þriðja lagi hagar svo til, að það er ekki nema við stærri skóla í kaupstöðum, sem íþróttakennslustarf er svo mikið, að nægileg þörf sé fyrir einn mann. Í flestum skólum er mjög æskilegt, að íþróttakennari geti kennt fleira, og er það ein ástæðan til þess, að þetta ákvæði er komið inn í frv. Þetta er aðalbreyt., sem gerð er um skyldur og réttindi þeirra, sem 1júka námi frá íþróttakennaraskólanum.

Auk þess vil ég geta þess, að hér er um að ræða brtt. frá n. við 30. gr., þar sem hún er orðuð um. Efnislega er þar engin breyt., heldur aðeins fært til betra og eðlilegra máls.

V. kafli frv. fjallar um Handíðakennaraskóla Íslands. Þar er raunverulega um nýja stofnun að ræða. Að vísu hefur starfað hér í Rvík frá 1939 handíðaskóli, sem hefur veitt kennaraefnum nokkra kennslu í handavinnu. Hann var einkaskóli til 1942, er varð þá sjálfseignarstofnun. Hins vegar hafa ekki verið þar ástæður til að hafa kennslu fyrir kennaraefni svo mikla og góða sem æskilegt væri, sem er ekki heldur von. Með l. um gagnfræðaskóla, sem samþ. voru í fyrra, skapaðist enn þá meiri nauðsyn á að efla þessa kennslu, vegna þess að í þeim er gert ráð fyrir, að þeir skuli skiptast í bóknámsdeild og verknámsdeild, en til þess að hægt sé að halda verknámi uppi, svo að gagni sé, verður ekki komizt hjá að sérmennta kennara til að taka við þeim störfum, og þá er það vitanlega eitt aðalhlutverk þessarar stofnunar að sérmennta kennara til þess, jafnframt því sem hún veitir barnakennurum þá kunnáttu, sem þeir þurfa á að halda til starfs síns við barnaskólana. Sömuleiðis eru ákvæði um það í þessum kafla, að þeir, sem ætla sér að fá fullkomin kennararéttindi, skuli auk þess að taka próf frá handíðaskólanum hafa lokið almennu kennaraprófi.

Þá er VI. kafli frv., um húsmæðrakennaraskóla. Þessi stofnun hefur verið starfrækt hér í Rvík undanfarin ár og starfar samkvæmt reglugerð frá 11. maí 1942, en um hana eru engin l. Í raun og veru munu ekki verða miklar breyt. á starfsháttum þessa skóla, þó að þessi kafli verði að l. Hann er felldur hér inn í skólakerfið, þar sem eðlilegt er, að hann verði í þeim lagabálki, sem sameinar öll lagaákvæði um kennaramenntun við alla þessa hliðstæðu skóla, en annars er gert ráð fyrir sams konar kennslu og þar hefur farið fram, en þar er sett inn þetta sama ákvæði og í kaflanum um íþróttakennaraskólann og handíðaskólann, að þeir, sem búa sig undir kennslu í þessum sérgreinum, skuli verða að ljúka almennu kennaraprófi ásamt prófi í sinni sérgrein.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um það.

VII. kafli frv. fjallar um réttindi kennara, og er þar ekki nein stórbreyt. á því, sem nú er í l. Í 50. gr. er gert ráð fyrir sams konar orlofi og ákveðið var í l. um barnafræðslu, sem samþ. var á síðasta fjárlagaþingi, og ýmis önnur ákvæði, sem eru að flestu leyti tekin upp úr eldri l. Í sambandi við þetta vil ég enn fremur geta þess, að ég hef lýst áður einni brtt. við 30. gr. frv., sem n. flytur, en hún flytur einnig brtt. við 16. gr. frv., þar sem lagt er til, að upphaf gr. orðist svo : „Í kennslustofnun í uppeldisvísindum skal kenna eftirtaldar greinar“, — í staðinn fyrir, að í gr. stendur nú : „Barnakennurum, sem stunda nám í uppeldisvísindum í háskólanum, er skylt að leggja stund á eftirtaldar greinar.“ Eins og þetta er nú í frv., mætti halda, að þeir stúdentar, sem ætluðu sér að fara inn í þessa deild, þyrftu ekki að stunda þessar greinar. Þetta mun stafa af athugaleysi mþn. og n., sem fjallaði um þetta mál í Nd., því að það er augsýnilega gert ráð fyrir, að allir, sem í þessa deild fara, skuli leggja stund á þessar námsgreinar, hvort sem þeir hafa stúdentspróf eða kennarapróf.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. N. er sammála um að mæla með því, að það verði samþ. með þeim tveimur breyt., sem ég hef lýst.