30.01.1947
Efri deild: 61. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1370 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)
66. mál, menntun kennara
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég sakna þess mjög, að hv. menntmn. hefur ekki gert ýtarlegra nál. um þetta mál en fram kemur á þskj. 326. Hér eru m. a. tekin upp í I. kafla frv. l. um Kennaraskóla Íslands, sem samkv. 56. gr. eru þá um leið numin úr gildi. Einnig væri fróðlegt að fá að vita, hvaða breyt. yrðu gerðar á þessu frá núgildandi l. og hvort um er að ræða breytingu á sjálfum fræðslulögunum. Sömuleiðis, hvað gert er ráð fyrir, að byggt verði fyrir mikið fé. — Hv. frsm. hefði gjarnan getað getið um í fyrsta lagi, hvaða breyt. eigi að vera á 1. gr. — Viðkomandi verksviði prófessorsins, sem um getur í 15. gr., langar mig til þess að spyrja, hvað honum sé eiginlega ætlað að gera til þess að starfskraftar hans komi að fullum notum.
Um þriðja kaflann væri fróðlegt að fá að vita, hvað gert er ráð fyrir, að þessi kafli kosti í rekstri, ef svo mætti að orði kveða, undir þeim kringumstæðum, sem nú ríkja í landinu.
Varðandi fjórða kaflann, þá vildi ég spyrja að því, hvort ætlazt er til, að sá kafli verði felldur inn í fræðslulögin, og einnig, hvað þau nýmæli kosta, sem þar eru ákveðin, og hvort þar mundi þurfa að auka húsnæði. Einnig væri fróðlegt að heyra, hvort ætlazt er til, að við þann skóla starfi sérstök skólanefnd.
Einnig vildi ég fá upplýsingar varðandi 5. kafla, hversu mikið gert er ráð fyrir, að stofnunin kosti. Mér skilst, að þetta sé nýr skóli, eða a. m. k. ný deild, og þá væri æskilegt að fá að vita, hvað álitið er, að þurfi að auka húsakynni hans mikið.
Um 6. kafla er það að segja, að ég vildi sérstaklega benda á 37. gr., sem hljóðar m. a. svo: „Hann skal hafa aðstöðu til þess búreksturs, sem nauðsynlegur er vegna námsins.“ Nú vildi ég fá að vita, hvort hér er átt við, að koma þurfi upp í sambandi við skólann mjólkurbúi eða einhverju skepnubúi eða hvort hér er aðeins átt við rekstur heimavistar. Ef á að hafa skepnubú, þá þarf að kaupa land og kostar það vitaskuld mikið fé, auk þess sem það er illfáanlegt. Gert er ráð fyrir, að við skólann verði heimavist, og væri fróðlegt að vita, hve stór hún á að vera, e. t. v. 20–30 nemendur, og vitanlega þarfnast hún í öllu falli einhvers húsnæðis. Hv. flm. gat þess réttilega, að skólinn starfar nú eftir reglugerð. Þegar ákvæði eru sett um einhverjar stofnanir, þá er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir, hvaða kostnað það hefur í för með sér. Í kaflanum er einnig gert ráð fyrir þriggja manna skólanefnd, og skal aðeins einn þeirra skipaður af fræðslumálastjórn. Mér skilst, að allir þessir skólar eigi að vera reknir af ríkinu, og því finnst mér eðlilegast, að ríkisstj. beri ábyrgð á öllum starfsmönnum þeirra og skipi þá, enda er það svo bæði við menntaskólana, stýrimannaskólann og aðra ríkisskóla.
Ég lýsi yfir því, að ég er mótfallinn 11. gr., að efni hennar eigi heima í reglugerð fyrir alla skóla, en mun bera fram till, um, að hún verði felld burtu úr þessu frv. — Hvað við kemur 50. gr., þá tel ég rétt að fella hana niður úr frv., tel hana ekki eiga þar heima, þótt ég sé í sjálfu sér ekki að öllu leyti andvígur henni.
Ég skal svo ekki ræða þetta frekar að sinni, en vildi gjarnan fá áðurgreindar upplýsingar, sérstaklega sökum afgreiðslu fjárl., sem gert er ráð fyrir, að ýmis ákvæði frv. hafi áhrif á.