30.01.1947
Efri deild: 61. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)

66. mál, menntun kennara

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki fara mörgum orðum um þessa ræðu hv. 8. landsk. Það er augljóst mál, að svo kynni að vera, að menn hefðu gert sér grein fyrir ýmsu því, er í frv. um getur, ef einhverjar upplýsingar hefðu legið þar fyrir. Ég er ekki að syrgja það, að það kynni að hafa í för með sér svo geysimikil fjárútlát fyrir ríkið, heldur finnst mér ekki nema eðlilegt, að þm. geri sér grein fyrir hvað framkvæmdin mundi kosta, áður en frv. er samþ. Ég hef athugað grg., sem vísað er til um ákvæði frv. í þessu efni, þ. e. a. s. kostnaðinn, en tel lítið upp úr henni leggjandi. Ég tel, að það væri nauðsynlegt þingi og stj. að gera sér grein fyrir, hvað búið víð húsmæðrakennaraskólann komi til með að kosta. Í sambandi við það vil ég minna á það, að í fyrra hafði ríkið forkaupsrétt að Reykjahlíðarlandi fyrir 1 milljón kr. Það er öllum ljóst, hversu dýrt er að kaupa land, auk þess sem erfitt er að fá það.

Ég er á móti því, að 11. gr. sé annað en reglugerðarákvæði, og álít, að um þau atriði, sem hún fjallar um, sé eðlilegt að setja ákvæði eftir aðstæðum á hverjum tíma.

Hvað viðkemur 50. gr., þá er ég á móti henni. Ég tel enga meiningu í því að gefa einni stétt manna frí með fullum launum 10. hvert ár, — stétt, sem hefur frí 3 mánuði á ári hverju. Ef þetta yrði samþ., gæti það leitt til þess, að gefa yrði starfsmönnum annarra stétta hliðstæð frí með fullu kaupi. — Skólanefndir við umrædda skóla komu til á þeim tíma, þegar aðrir ráku þá en ríkið, sumpart á sína ábyrgð og kostnað, en sumpart á ábyrgð og kostnað ríkisins, en nú er þetta breytt á þann hátt, að ríkið rekur þá upp á eigin spýtur.

Ég ætla svo ekki að fara fleiri orðum um þetta að sinni.