28.11.1946
Efri deild: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1807)
77. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Gísli Jónsson:
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinagóða skýrslu um þetta mál og skal ekki ræða um frv. sjálft sökum þeirra ýtarlegu upplýsinga, sem gefnar hafa verið. Ég vil aðeins bera fram fyrirspurn til hæstv. ráðh. um það, hvað líði löggjöf um hótel eða gistihús hér á landi, sem er í undirbúningi. Ég hygg, að frv. um þetta liggi hjá vegamálastjóra, og hafi jafnvel legið þar í mörg ár. Ég veit að áhugi ríkir fyrir því, að lagabálkur þessi komi fram og þá eðlilega í sambandi við þær ferðir, sem hér á að skipuleggja. Ég mælist til þess, að hæstv. ráðh. upplýsi þetta góðfúslega.