05.03.1947
Efri deild: 85. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)
77. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það kom fram í ræðu hv. frsm. allshn., að óréttlátt væri að láta þetta gjald eingöngu hvíla á þeim, sem ferðast með áætlunarbifreiðum, en láta alla aðra, sem ferðast með bifreiðum, vera undanþegna því. En því ekki að taka upp skatt á allar bifreiðar, svona hálfa milljón á ári, og láta það renna í sérstakan sjóð. Einkabifreiðar eru orðnar mjög margar. Þær gætu alveg eins lagt fram sinn skerf, og ég sæi ekki eftir því, þótt hver þeirra legði fram þúsundkall á ári til að koma gistihúsunum upp.