07.03.1947
Efri deild: 87. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

77. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :

Herra forseti. Mér þykir rétt í sambandi við þetta mál að beina alveg sérstaklega til hv. form. fjvn. smáuppástungu, sem komið hefur fram í sambandi við setningu þessara laga. Samkvæmt reglugerð er heimilt að greiða 40 króna skoðunargjald fyrir hverja bifreið á ári, enda sé hún ekki notuð allt árið. En fengist skoðunargjaldinu í þessari reglugerð breytt þannig, að gjaldið yrði fastákveðið og þá 100–200 kr. fyrir hvert ár, fengist nægilegt fé til þess að mæta þeim óhjákvæmilegu kröfum, sem eru gerðar viðvíkjandi styrk til byggingar slíkra gistihúsa, og þyrfti þá ekki að vera neitt að breyta sérleyfisgjaldinu eða fara aðrar leiðir til þess að afla þeirra tekna. Vildi ég sérstaklega beina þessu til hv. form. fjvn. til athugunar.