11.03.1947
Neðri deild: 90. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)
191. mál, einkasala á tóbaki
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að bera fram breytingar á tollal., sumar til þess að afla ríkissjóði frekari tekna en nú standa l. til. En á meðan það er í undirbúningi, þá ber það að, að mjög aðkallandi er að láta þá hækkun, sem höfð er í huga, ná til tóbakseinkasölunnar. Og þar stendur svo sérstaklega á, að hér liggja nú fyrir töluvert miklar birgðir af tóbaki, sem ekki hafa verið teknar til sölu, en hefur verið sótzt eftir, þ. e. a. s. vissum tegundum, en ég hef haldið til baka að væru settar í umferð, þar til verðlagi væri breytt á tóbakinu. Er þarna aðallega um sígarettur að ræða. Þess vegna var hnigið að því ráði að leita heimildar Alþ. til þess að hækka álagningu á þessari vöru frá því, sem má eftir l., eins og gert er ráð fyrir í frv. á þskj. 510.
Það er um heimild að ræða, en ráðuneytið verður að meta, hversu langt sé hægt að fara í þeim efnum. En ég tel nauðsynlegt, að þessi heimild sé til. Álagning er nú hjá tóbakseinkasölunni upp í löglegt söluhámark.
Ég þarf ekki að fjölyrða um það, hversu mikil knýjandi þörf er fyrir meiri tekjur ríkissjóðs. Ég mun hafa tækifæri til þess að víkja að því við meðferð annarra mála.
Ég vænti þess, að þetta heimildarfrv. sæti engri mótspyrnu h já hv. Alþ., og við höfum gert ráðstafanir til þess að draga úr sölu á tóbaki, á meðan þetta frv. er á ferðinni gegnum þingið, og það er það, sem aðallega rekur á eftir nú, að mjög verður vart við, að keyptar séu óþarflega miklar birgðir af þessari vöru, sem kann að vera, að stafi aðallega af því, að menn búist við, að hún hækki í verði.
Ég vil svo vænta þess, að hv. d. sjái sér fært að samþykkja þessa heimild. Og enda þótt ráðuneytið noti sér ekki þessa heimild til hins ýtrasta, tel ég nauðsynlegt að hafa hana svona rúma í þessu efni. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að hv. Alþ. geti fallizt á, að þessi heimild geti fengið afgreiðslu í báðum d. í dag, og vil að óreyndu vona, að svo verði, enda er, eins og allir sjá, nauðsynlegt, að slíkt mál fái fljóta afgreiðslu, ef ekki á að horfa upp á það, að menn viði að sér óþarflega miklum birgðum með hækkunarvitundina fyrir augum, og er þá ekki nema sá kostur fyrir hendi að hætta sölu, á meðan slíkar ráðagerðir eru á döfinni. Er því nauðsynlegt, að hv. Alþ. taki skjótar ákvarðanir og málið gangi í gegn, án þess að það þurfi að fara aftur til fjhn., og þó að það sé ekki nema meiri hl. n., sem flytur málið, geri ég ráð fyrir, að allir sjái, að hér er um nauðsynlega tekjuöflun að ræða.